Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Kjartan Kjartansson skrifar 14. október 2026 14:01 Andri Már Mortenssen Birgisson, höfuðpaurinn í hrottalegri fjárkúgun í Reykholti. Vísir/Anton Brink Andri Már Mortenssen Birgisson var talinn hafa stýrt atburðarásinni og átt stærstan þátt í frelsissviptingu og stórfelldri líkamsárás á maltneskan leigjanda tengdaföður hans í Reykholti. Hann var eini af sex sakborningum í málinu sem var sakfelldur fyrir að beita manninn ofbeldi. Andri og fimm aðrir, þar á meðal barnsmóðir hans, tengdafaðir og bróðir, hlutu fangelsisdóma á mánudag fyrir að frelsissvipta mann, kúga úr honum fé, ræna hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti í Biskupstungum í apríl 2024. Fórnarlambið var maltneskur leigjandi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar, garðyrkjumeistara, sem Sigurður taldi að skuldaði sér leigu. Frelsissviptingunni lauk ekki fyrr en kvalarar mannsins höfðu rænt hátt í átján milljónum króna af bankareikningi hans og svo neytt hann úr landi. Í ákæru sagði að það hefði verið með hótunum um að þeir ynnu dóttur hans mein. Dómurinn var kveðinn upp á mánudag en hann var ekki birtur í heild sinni fyrr en í gær. Í honum má lesa það mat dómara við Héraðsdóm Suðurlands að Andri hafi stýrt atburðarásinni, sem hefði ekki átt sér stað án hans, og átt stærstan þátt í henni. Aðrir sakborningar hafi farið að vilja Andra sem hafi tekið allar ákvarðanir. Allir sakborningarnir neituðu sök í málinu nema barnsmóðir Andra sem játaði brot þótt hún gengist ekki við öllum lýsingum í ákæru á hendur henni. Andri Már Mortenssen Birgisson, átta ára fangelsi. Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir Andra Más, þriggja ára fangelsi. Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar og tengdafaðir Andra, tveggja og hálfs árs fangelsi. Pétur Már Mortenssen Birgisson, bróðir Andra, þriggja ára fangelsi. Níels Pálmar Benediktsson, eins árs fangelsi. Halldór Logi Sigurðsson, hálfs árs fangelsi. Hlutur Andra Andri gaf ekki skýrslu fyrir dómi og hjá lögreglu þóttist hann ekki kannast við margt þess sem honum var gefið að sök. Sakfelling hans fyrir líkamsárás, langvarandi frelsissviptingu í ávinningsskyni, ólögmæta nauðung, rán, þjófnað á bíl brotaþola og peningaþvætti byggðist meðal annars á framburði brotaþola, hinna sakborninganna og upptökum úr síma hans. Dómurinn taldi að Andri hefði fengið þá Níels og Halldór með sér í Reykholt. Eftir að þeir „beiluðu“, með orðum Andra, hefði hann fengið Ingunni og Pétur austur. „Er augljóst af hljóðupptökum úr síma ákærða Andra, þar sem heyra má samtöl hans við aðra í málinu, að hann stjórnaði atburðarásinni og gaf öðrum ákærðu fyrirmæli sem þau fóru svo eftir,“ segir í dómnum. Talið var hafið yfir vafa að Andri hefði beitt brotaþola ofbeldi með því að slá hann í andlit eða höfuð hans. Við það hefði brotaþoli nefbrotnað og hlotið brot á kjálka. Ekki var talið hægt að eigna sakborningnum tiltekin ofbeldisverk umfram þetta. Því var Andri ekki sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem allt að sextán ára fangelsisrefsing hefði legið við. Andri var talinn drifkrafturinn í frelsissviptingunni og þeirri ólögmætu nauðung sem fórnarlambið sætti. Hann hefði einnig gerst sekur um rán þegar ofbeldið og hótanirnar sem hann beitti fórnarlambið gerðu honum kleift að millifæra fé af reikningi þess á eigin reikninga og annarra sakborninga. „Er fráleitur og að engu hafandi framburður sem gefinn var hjá lögreglu að brotaþoli hafi verið að gefa þessa peninga, hvort heldur sem er vegna þakklætis eða af öðrum ástæðum,“ segir í dómnum. Andri var einnig sakfelldur fyrir vopnalagabrot vegna ýmis konar vopna sem fundust á heimili hans og Ingunnar við húsleit. Dómurinn vísaði frá ákærunni vegna hluta þeirra muna sem fundust á heimilinu. Refsing Andra var ákveðin átta ár enda var hann sakfelldur fyrir langstærstan hluta þeirra brota sem honum voru gefin að sök. Brot hans voru sögð framin í hagnaðarskyni, af einbeittum ásetningi og af algeru skeytingarleysi gagnvart heilsu, velferð og frelsi brotaþola. Hlutur Níelsar og Halldórs Um hlut þeirra Níelsar Pálmars Benediktssonar og Halldórs Loga Sigurðssonar, sem fylgdu Andra inn á heimili fórnarlambsins, taldi dómurinn augljóst að þeim hefði ekki getað dulist að brotaþoli væri frelsissviptur og beittur ólögmætri nauðung, hvort sem þeir hefðu haft ásetning til þess eða ekki. „Með nærveru sinni og því að vera með ákærða Andra í íbúðinni og fylgja honum í frelsissviptingunni og þeirri ólögmætu nauðung sem brotaþoli mátti sæta tóku þeir í framkvæmd fullan þátt í frelsissviptingunni og hinni ólögmætu nauðung og er hafið yfir skynsamlegan vafa að þeir hafa gerst sekir um hana,“ segir í niðurstöðukafla dómsins. Dómurinn gaf lítið fyrir skýringar Halldórs um að hann hefði ekki verið viðstaddur þar sem hann hefði farið úr bíl Andra og Níelsar í Mosfellsbæ á leið austur í Reykholt. Gögn málsins sýndu að bílnum hefði alls ekki verið ekið í gegnum Mosfellsbæ heldur hefðu sakborningarnir ekið austur Hellisheiði og haft viðkomu í Hveragerði. Hvorki þótti sannað að Níels né Halldór hefðu tekið þátt í ofbeldisverkum Andra. Halldór var þó talinn hafa bundið hendur mannsins með límbandi. Ekki var heldur talið sannað að þeir hefðu tekið þátt í langvarandi frelsissviptingu á meðan þeir voru á vettvangi eða að hún væri í ávinningsskyni. Tvímenningarnir voru sakfelldir fyrir frelsissviptingu og ólögmæta nauðung. Níels hlaut eins árs fangelsisdóm en Halldór Logi sex mánuði. Sá síðarnefndi hlaut fimm ára fangelsisdóm í fyrra fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ. Ránshluta ákærunnar á hendur þeim tveimur var vísað frá dómi. Hlutur Sigurðar Sigurður, leigusali fórnarlambsins og tengdafaðir Andra, hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Hann neitaði allri sök og sagðist raunar hafa verið grunlaus um allt það sem gekk á í húsi hans. Dómurinn taldi þó hafið yfir vafa að á einhverjum tímapunkti hefði Sigurði ekki dulist að leigjandi hans væri frelsissviptur á heimili sínu og að honum hefði verið fullljóst hvers vegna. Til hefði staðið að kúga fé úr leigjandanum með góðu eða illu og að hluti fjárins hefði átt að renna til Sigurðar. Framburður Sigurðar um að hann hefði ekki haft nokkra stjórn á atburðarásinni og ekki getað haft áhrif á hana þótti ekki trúverðugur. Atburðarásin hefði hafist með samtali Sigurðar við dóttur sína og tengdason um innheimtu ætlaðrar húsaleiguskuldar leigjandans sem dómurinn taldi ósannað að hefði verið til staðar. Sigurður Gunnar Ásgeirsson taldi sig eiga inni leigu hjá maltneskum leigjanda sínum. Tengdasonur hans frelsissvipti leigjandann í slagtogi við fleiri og kúguðu út úr honum fé í Reykholti í Biskupstungum.Vísir/Vilhelm Þá hefði Sigurður komið að minnsta kosti tvisvar inn á heimilið helgina sem frelsissviptingin stóð yfir. Einnig lægju fyrir upptökur úr síma Andra þar sem hann heyrðist segja tengdaföður sínum að hann ætlaði með leigjandann í hraðbanka, láta hann taka út peninga og skilja hann svo eftir. Sigurður var þannig talinn hafa gerst sekur um frelsissviptingu og ólögmæta nauðung gagnvart leigjandanum. Einnig var hann sakfelldur fyrir peningaþvætti vegna fjármuna sem Andri millifærði á hann af reikningi fórnarlambsins. Hann var hins vegar sýknaður af fjárkúgun. Ekki þótti sannað að Sigurður hefði tekið þátt í ofbeldisverkum eða haft ásetning til þess að aðrir beittu brotaþola ofbeldi. Einnig var hann sýknaður af ákæru um hlutdeild í þjófnaði á bíl brotaþola. Leigjandinn sakaði Sigurð um að hafa hótað sér með keðjusög og að vera hent í sjóinn en dómurinn taldi ekki hægt að sakfella hann fyrir hótanir þar sem öðrum sönnunargögnum um þær væri ekki til að dreifa. Hlutur Ingunnar Ingunn, dóttir Sigurðar og barnsmóðir Andra, hlaut þriggja ára dóm. Hún gekkst að hluta til við brotum sem henni voru gefin að sök í ákæru. Gekkst hún við frelsissviptingu og ólögmætri nauðung en hafnaði því að hafa beitt brotaþola ofbeldi eða að hann hefði verið bundinn þegar hún var á staðnum. Þá neitaði hún einnig í yfirlýsingu að hafa rænt manninn þar sem hún hefði hvorki tekið þátt í að beita hann ofbeldi né hóta honum til þess að kúga fé úr honum „þótt ég geri mér fyllilega grein fyrir því að miklir fjármunir í hans eigu voru teknir af honum með saknæmum og ólögmætum hætti“. Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir höfuðpaursins, hlaut þriggja ára dóm fyrir aðild sína að fjárkúgun í Reykholti.Vísir/Anton Brink Ingunn var meðal annars ákærð fyrir að kýla fórnarlambið með hnúajárni. Dómurinn taldi ósannað að Ingunn hefði beitt hann ofbeldi. Fullljóst væri að Ingunn hefði vitað um ofbeldið sem maðurinn var beittur en ósannað að hún hefði haft ásetning um að hann yrði beittur því eða hótað honum sjálf. Því var Ingunn sýknuð af fjárkúgun en sakfelld fyrir frelsissviptingu, ólögmæta nauðung, þjófnað á bíl brotaþola og peningaþvætti. Hún var einnig sakfelld fyrir vopnalagabrot vegna vopnanna sem fundust á heimili hennar og Andra og fyrir vörslu á kannabisefnum. Áður hafði Ingunn hlotið eins mánaðar skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir líkamsárás árið 2024. Dómurinn sagði Ingunni eina sakborninga hafa sýnt einhverja iðrun og axlað einhverja ábyrgð. Þrátt fyrir það hefðu brot hennar verið framin af skeytingarleysi fyrir frelsi, velferð og heilsu brotaþola. Hlutur Péturs Pétur, bróðir Andra, hlaut þriggja ára fangelsisdóm. Hann hélt því fram að hann hefði ekki haft neitt val um að taka þátt í gjörningi bróður síns. Dómurinn féllst á að það væri sennilega rétt að Pétur, sem var átján ára þegar brotin voru framin, hefði borið ótta í brjósti gagnvart Andra. Sá ótti breytti því ekki að honum hefði verið fullljóst að brotaþoli hefði verið sviptur frelsi. Pétur hefði tekið þátt í frelsissviptingunni með nærveru sinni og síðar með því að aka um með brotaþola í bíl sínum. Hann hefði tvisvar farið af vettvangi en komið aftur í bæði skipti sjálfviljugur. Einn sakborninga Reykholtsmálsins þegar mállið var þingfest í mars.Vísir/Vilhelm Hann var sakfelldur fyrir þátttöku í frelsissviptingu, ólögmætri nauðung, þjófnað á bifreið brotaþola og peningaþvætti. Eins og hinir sakborningarnir utan Andra var Pétur sýknaður af ákæru um ofbeldi og fjárkúgun. Hins vegar vísaði dómurinn á bug skýringum Péturs um að hann hefði ekkert vitað eða skilið af því sem fór fram þessa aprílhelgi. Vísaði dómurinn í símtal bræðranna þegar þeir „böksuðu við“ að komast inn í heimabanka brotaþola þegar þeir höfðu ekki rafræn skilríki hans. Pétur hefði meðal annars sagt bróður sínum: „Þú átt eftir að elska mig“ þegar hann leysti vandann um hvernig þeir ættu að komast yfir rafræn skilríki fórnarlambsins. „Þarf ekkert að fjölyrða um það að a.m.k. frá þeim tímapunkti var ákærða Pétri ljóst hver var tilgangurinn með frelsissviptingunni, sem hann hélt þó áfram að taka þátt í,“ segir í dómnum. Armbandsúr, hálskeðju og vopn gerð upptæk Sakborningarnir voru dæmdir til þess að greiða fórnarlambinu sex milljónir króna í miskabætur. Andri, Ingunn, Pétur og Sigurður voru einnig dæmd til þess að greiða því rúmar fjórar milljónir í skaðabætur. Lagt var hald á stóran kasthníf, kastöxi, tvær útdraganlegar járnkylfur og hnúajárn sem fundust á heimili Andra og Ingunnar. Þá var lagt hald á rúma 279 þúsund krónur í reiðufé, fimm armbandsúr af dýrari gerðinni, hálskeðju og herrahring sem fundust á Andra og við leit í bifreið. Fjárkúgun í Reykholti Malta Dómsmál Tengdar fréttir Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur. 24. ágúst 2026 12:52 Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. 4. mars 2026 18:49 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Sjá meira
Andri Már Mortenssen Birgisson, átta ára fangelsi. Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir Andra Más, þriggja ára fangelsi. Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar og tengdafaðir Andra, tveggja og hálfs árs fangelsi. Pétur Már Mortenssen Birgisson, bróðir Andra, þriggja ára fangelsi. Níels Pálmar Benediktsson, eins árs fangelsi. Halldór Logi Sigurðsson, hálfs árs fangelsi.
Fjárkúgun í Reykholti Malta Dómsmál Tengdar fréttir Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur. 24. ágúst 2026 12:52 Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. 4. mars 2026 18:49 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Sjá meira
Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur. 24. ágúst 2026 12:52
Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sex eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili hans, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. 4. mars 2026 18:49