Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2026 08:00 Pavel Prígósjín var 25 ára þegar hann barðist til að halda veldi föður síns áfram. Honum tókst það í Mið-Afríkulýðveldinu og hefur tekist að stækka reksturinn þar. Seinni myndin: EPA/SERGEI ILNITSKY Pavel Prígósjín, sonur rússneska auðjöfursins Jevgení Prígósjín, tók við stjórn málaliðahópsins Wagner þegar faðir hans dó í háloftunum yfir Rússlandi í ágúst 2023. Þá var hann einungis 25 ára gamall og stjórnaði nokkuð stóru veldi málaliða, gullsmyglara, fíkniefnasala og bruggara.
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill í Mið-Afríkulýðveldinu, þar sem Wagner hélt samningum sínum eftir að forseti landsins biðlaði sérstaklega til ráðamanna í Rússlandi um að skipta honum ekki út. Þrátt fyrir að Pavel hafi verið álitinn ofdekraður glaumgosi, þykir hann hafa staðið sig vel við stjórn Wagner og er áætlað að tekjur Prígósjínsveldisins séu rúmar fjögur hundruð milljónir dala á mánuði. Það samsvarar um 48,5 milljörðum króna. Þar af fær Pavel um 250 milljónir frá stærstu gullnámu Mið-Afríkulýðveldisins, sem hann stjórnar og verndar en hann deilir tekjunum með ríkisstjórn Faustin-Archange Touadéra. Wall Street Journal birti á dögunum ítarlega umfjöllun um Pavel og það hvernig hann hefur haldið leyfunum að veldi föður síns saman. After his father died aboard an exploding plane, Pavel Prigozhin took command of the world’s most notorious mercenary force. The Wagner Group heir is now making a killing in guns, drugs and gold. https://t.co/a9EOaCnDKp https://t.co/RzoJqp1Xrq— The Wall Street Journal (@WSJ) October 21, 2026 Smákrimmi, kokkur og stríðsherra Jevgení Prígósjín var á árum áður kallaður kokkur Vladimírs Pútín. Þeir kynntust í Pétursborg á árum áður, þegar Pútín var aðstoðarborgarstjóri þar. Prígósjín ólst upp í borginni en hann endaði í fangelsi fyrir rán og aðra glæpi. Þaðan slapp hann árið 1990 og hóf veitingarekstur. Á tíunda áratug síðustu aldar opnaði hann veitingastaði í Pétursborg og þar á meðal veitingastaðinn New Island Restaurant, sem er á báti. Þar hefur Pútín snætt með erlendum erindrekum og stjórnmálamönnum eins og Jacques Chirac, fyrrverandi forseta Frakklands, og George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Pútín hélt minnst einu sinni upp á afmæli sitt á veitingastaðnum. Seinna gerði Prígósjín svo umfangsmikla samninga við rússneska ríkið, sem snerust meðal annars um það að fyrirtæki hans framleiddu mat fyrir skólabörn í Moskvu og rússneska hermenn. Þann auð sem hann safnaði sér notaði hann svo til að koma að stofnun Wagner-hópsins og til að stofna hina svokölluðu „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg, þar sem starfsmenn hans dreifðu áróðri og upplýsingaóreiðu. Sjá einnig: Upplýsingahernaður háður úr „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg Wagner-hópurinn var að mestu skipaður fyrrverandi hermönnum og starfaði í Mið-Austurlöndum og Afríku. Starfsemin fór fram með samþykki og stuðningi rússneska ríkisins og var málaliðahópurinn lengi kallaður „skuggaher Rússlands“. Prígósjín samdi við ríkisstjórnir í Afríku um að verja þær og berjast gegn uppreisnar- og vígahópum í skiptum fyrir reiðufé og aðgang að náttúruauðlindum eins og gulli, timbri og demöntum. Sjá einnig: Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner Eftir innrásina í Úkraínu kom Prígósjín Pútín og varnarmálaráðuneytinu til aðstoðar og réði þúsundir málaliða og fanga úr rússneskum fangelsum til að taka þátt í innrásinni. Þegar mest var réði Prígósjín yfir tugum þúsunda málaliða og græddi á tá og fingri vegna samninga sinna og starfsemi Wagner í Afríku. Uppreisn og dauði Að endingu varð Prígósjín þó ósáttur vegna lítils stuðnings sem hann taldi sig fá frá varnarmálaráðuneytinu. Sumarið 2023 gerðu málaliðar hans uppreisn gegn ráðuneytinu og Sergei Shoigu varnarmálaráðherra, lögðu undir sig borgina Rostov í suðurhluta Rússlands. Þegar Pútín lýsti yfir stuðningi við Shoigu settu málaliðar Wagner stefnuna á Moskvu. Skömmu áður en málaliðar hans náðu til Moskvu hætti Prígósjín við uppreisnina og gerði hann samkomulag við Pútín, með milligöngu Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Belarús. Samkvæmt þessu samkomulagi átti öryggi Prígósjíns að vera tryggt. Jevgení Prígósjín dó þegar flugvél hans sprakk í háloftunum skammt frá Moskvu árið 20023. Sonur hans leiðir nú Wagner-málaliðahópinn sem starfar enn í Mið-Afríkulýðveldinu.EPA/SERGEI ILNITSKY Yfirvöld í Rússlandi fóru fljótt að taka yfir starfsemi Wagner í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneytið og leyniþjónusta rússneska hersins, sem kallast GRU, réðu marga af málaliðum Wagner og stjórnendum og stofnuðu Afríkudeildina svokölluðu í staðinn. Afríkudeildinni hefur ekki vegnað jafn vel og Wagner gerði í vesturhluta Afríku. Þar hafa uppreisnar- og vígahópar gert tíðar og umfangsmiklar árásir gegn yfirvöldum. Í Níger gerðu hermenn fyrr á árinu uppreisn vegna slæms öryggisástands þar í landi. Sjá einnig: Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni Prígósjín lagði mikið kapp á að halda veldi sínu saman og var hann á ferð og flugi um Afríku og Mið-Austurlönd. Sjá einnig: Síðustu dagar Prígósjíns Í ágúst 2023 flaug hann til Moskvu, þar sem Prígósjín fundaði með embættismönnum um stöðu Wagner. Eftir þá fundi lagði hann svo af stað aftur til Pétursborgar með sínum nánustu ráðgjöfum. Skömmu eftir flugtak sprakk sprengja um borð í flugvélinni og hún hrapaði til jarðar. Allir um borð dóu. Síðan þá hafa borist fregnir af því að Níkólaí Patrúsjev, hægri hönd Pútíns, hafi komið að því að skipuleggja banatilræðið. Hélt starfseminni í Mið-Afríkulýðveldinu Þá fóru mismunandi fylkingar að berjast um hræ Prígósjín-veldsins. Leiðtogar GRU vildu koma höndum yfir Wagner og leiðtogar SVR, leyniþjónustu Rússlands sem starfar á erlendri grundu, vildu og hafa eignast „Tröllaverksmiðjuna“. Pavel Prígósjín var 25 ára gamall og vildu margir af málaliðum Wagner að hann tæki við stjórn hópsins. Það fyrsta sem hann gerði var að fara til Mið-Afríkulýðveldisins og hitta þar yfirmenn Wagner í landinu, auk þess sem hann fundaði með háttsettum embættismönnum. Í september 2023, skömmu eftir dauða Prígósjíns, sagði Faustin-Archange Touadéra, forseti Mið-Afríkulýðveldisins, að varnarmálaráðuneyti Rússlands myndi taka yfir stjórn á Wagner-hópnum þar í landi. Sagðist hann hafa gert samkomulag við Pútín. Nú segir WSJ að Touoadéra hafi samið við Pútín um að leyfa Pavel Prígósjín að halda áfram að stjórna Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu. Samstarf ríkisstjórnarinnar við málaliðahópinn hefði lukkast vel og hann vildi halda því áfram. Faustin Archange Touadera, forseti Mið-Afríkulýðveldisins, er sagður hafa beðið Vladimír Pútín um að leyfa Wagner-hópnum að starfa áfram þar í landi. Starfsemi málaliðahópsins var að öðru leyti tekin yfir af varnarmálaráðuneyti Rússlands.EPA/ALEXANDER ZEMLIANICHENKO Touadéra er sagður hafa hjálpað Pavel Prígósjín að halda stjórn á Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu og er hann einnig sagður hafa leyft honum að útvíkka starfsemi málaliðahópsins þar. Um fimm hundruð Wagner-liðar heyra undir Prígósjín í Mið-Afríkulýðveldinu. Málaliðar Wagner eru meðal annars hluti af lögreglunni, hernum og taka þátt í starfsemi leyniþjónusta ríkisins. Prígósjín hefur einnig ráðið til sín talsverðan fjölda af uppreisnarmönnum sem Wagner hefur sigrað og eru þeir gjarnan kallaðir „svartir Rússar“ í Mið-Afríkulýðveldinu. Þessir menn eru sagðir styðja starfsemi Wagner og hafa verið sakaðir um ýmis ódæði, eins og málaliðar Wagner. Pavel Prígósjín hefur verið beittur refsiaðgerðum af Evrópusambandinu. Selur gull, vopn, fíkniefni og vodka All Eyes on Wagner, sem eru samtök rannsóknarblaðamanna sem hafa kafað í saumana á starfsemi málaliðahópsins, sögðu frá því í fyrra að Wagner virkaði nánast eins og sníkjudýr á baki Mið-Afríkulýðveldisins. Hópurinn hefði umfangsmikil völd þar og hagnaðist gífurlega á auðlindum landsins. Meðal annars rekur Wagner eina stærstu gullnámu landsins og yfirvöld þar hjálpa Prígósjín við að koma gullinu úr landi, með því að veita fölsk vottorð um að gullið sé ríkiseign. Gullið hefur meðal annars verið flutt til Belarús. Wagner rekur útvarpsstöðvar í Mið-Afríkulýðveldinu þar sem reynt er að styrkja stöðu Touadéra og áróðri gegn Vesturlöndum dreift. Þáttastjórnendur stöðvanna ausa lofi yfir Rússland og þá má víða finna skilti og styttur sem hylla Rússland og Wagner-hópinn. Hópurinn kemur einnig að fíkniefnasölu í Mið-Afríkulýðveldinu. Í grein WSJ er sagt frá því að íbúar Bangui, höfuðborgar ríkisins, hafi deilt myndum og myndböndum af grímuklæddum Wagner-liðum í fylgd lögreglumanna, þar sem þeir hafi verið að handtaka meinta fíkniefnasala. Þeir munu hafa verið að selja fíkniefni án aðkomu Wagner. Grímuklæddir Wagnerliðar í lögreglubúningum fóru í sumar inn í verslun manns sem hafði áður starfað með þeim í fíkniefnasölu en hafði hætt því. Hann reyndi að flýja en var gómaður, barinn og dreginn á brott. Maðurinn hefur ekki sést síðan. Þar að auki er Prígósjín sagður selja vopn til annarra Afríkuríkja og brugga og selja vodka, svo eitthvað sé nefnt. Áætlað er að hann afli sér um fjögur hundruð milljónum dala á ári með þessari starfsemi.
Rússland Mið-Afríkulýðveldið Vladimír Pútín Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira