Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Kjartan Kjartansson skrifar 26. október 2026 13:49 Viktor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, (f.m.) hefur orðið að einni helstu fyrirmynd bandarískra hægrimanna eins og J.D. Vance (t.v.) á undanförnum árum. Orbán rak stefnu sem hann kenndi við ófrjálslynt lýðræði. Hann beygði meðal annars frjálsa fjölmiðla og dómstóla landsins undir sig líkt og Trump (t.h.) hefur reynt að gera í valdatíð sinni. Vísir/EPA Bandaríkjastjórn er sögð hafa talað fyrir því að Viktor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkin, Kína og Rússland gætu náð saman um hann.
Ritstjórn Wall Street Journal, eins af flaggskipunum í fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch, sagði frá áhuga ríkisstjórnar Donalds Trump á að fá Orbán til þess að stýra Sameinuðu þjóðunum í leiðara sem birtist í gær. Vísaði hún til heimildarmanna frá þremur löndum sem segðu að Trump-stjórnin hefði talað fyrir því að Orbán tæki við þegar Antonio Guterres, fráfarandi framkvæmdastjóri, hættir um áramótin. Fulltrúar Kína og Rússlands hefðu tekið jákvætt í það. Orbán var helsti bandamaður Trump-stjórnarinnar og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í Evrópu þar til hann galt afhroð í þingkosningum fyrr á þessu ári. Innan Evrópusambandsins stóð hann í vegi refsiaðgerða gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu og gegn frekari stuðningi við Úkraínumenn. Trump lýsti yfir stuðningi við Orbán fyrir þingkosningarnar og J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, ferðaðist til Ungverjalands til þess að taka þátt í kosningabaráttu ungverska bandamanns þeirra. Hlálegt Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, gaf lítið fyrir söguna um Orbán þegar hún var borin undir hann í dag. „Fyrir ekki svo löngu átti hann að verða forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þetta virkar á mig jafn hlálegt og fyrri kjaftasagan,“ sagði Tusk, að sögn evrópska blaðsins Politico. Sjö tilnefningar til framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna hafa þegar borist. Á meðal þeirra sem hafa verið tilnefndir er Rafael Grosso, argentínskur fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar, og Olara Otunnu, fyrrverandi utanríkisráðherra Úganda.
Sameinuðu þjóðirnar Ungverjaland Bandaríkin Donald Trump Rússland Kína Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira