Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar 29. október 2026 14:00 Fyrir skömmu skrifaði ég grein hér á Vísi undir yfirskriftinni „Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið“. Þar fjallaði ég um fyrirhugaðar breytingar á námsmati grunnskóla og mikilvægi þess að slíkar breytingar byggist á faglegum forsendum, raunverulegu samráði og vönduðum undirbúningi. Ég hafði vonað að stjórnvöld myndu hlusta á þær fjölmörgu ábendingar sem borist hafa frá skólafólki. Því miður virðist lítið hafa breyst og áhyggjur mínar hafa aukist eftir því sem málinu hefur undið fram. Ég hef því séð mig knúinn til að beina formlegu erindi til bæjarstjórnar og skólanefndar Hveragerðisbæjar og hvetja kjörna fulltrúa til að láta sig málið varða. Ástæðan er einföld. Þetta er ekki lengur eingöngu fagleg umræða um námsmat. Málið snýst einnig um stjórnsýslu, ábyrgð, samráð og virðingu fyrir því fólki sem á að framkvæma ákvarðanir stjórnvalda. Breytingar verða ekki betri þótt þær séu ákveðnar í flýti Mennta- og barnamálaráðherra hefur boðað breytingar á námsmati við lok grunnskóla þar sem tölueinkunnir frá 4 til 10 eiga að koma í stað bókstafaeinkunna. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi strax í vor, við lok skólaársins 2026–2027. Þegar þetta er skrifað er október að renna sitt skeið. Skólastarf er löngu hafið, kennsluáætlanir liggja fyrir og námsmat vetrarins er komið af stað. Samt er enn verið að kynna, útskýra og útfæra grundvallaratriði breytinganna. Þetta er ekki boðleg staða. Vel má vera að tímabært sé að endurskoða námsmat grunnskóla. Ég hef raunar sjálfur talað fyrir því. En það er grundvallarmunur á því að bæta námsmat og því að skipta um einkunnakvarða með fyrirmælum að ofan. Gott námsmat snýst um miklu meira en táknin sem birtast á vitnisburðarblaði nemenda. Það snýst um hæfni, skýr viðmið, leiðsögn, endurgjöf og sameiginlegan skilning á því hvað nemendur eiga að kunna og geta. Ef við ætlum að bæta námsmat verðum við að byrja þar. Samráð er ekki það sama og kynning Undanfarna mánuði hafa verið haldnir kynningarfundir, gögn útbúin og spurningum svarað um breytingarnar. Fjöldi kennara og skólastjórnenda hefur varið dýrmætum tíma í að kynna sér hugmyndir sem enn virðast vera í mótun. En það verður að gera greinarmun á kynningu og samráði. Raunverulegt samráð felst í því að hlusta, taka mark á faglegum sjónarmiðum og vera reiðubúinn að breyta um stefnu þegar rök standa til þess. Það er ekki samráð þegar niðurstaðan liggur fyrir áður en samtalið hefst. Kennarar og skólastjórnendur hafa ekki gagnrýnt breytingarnar af því að þeir óttist nýjungar eða vilji halda í gamalt kerfi. Þeir hafa bent á raunverulegar faglegar og framkvæmdalegar hindranir sem stjórnvöldum ber að taka alvarlega. Það er ekki mótþrói. Það er fagleg ábyrgð. Þegar fólk sem ber daglega ábyrgð á námi og velferð barna bendir á að innleiðing sé illa undirbúin ætti fyrsta viðbragð stjórnvalda að vera að hlusta, ekki að keyra málið áfram af enn meiri hörku. Hver borgar fyrir ákvarðanir ríkisins? Á þessu máli er önnur hlið sem hefur fengið allt of litla athygli. Sveitarfélögin reka grunnskólana. Þau bera ábyrgð á húsnæði, starfsfólki, rekstri og þeirri þjónustu sem lög og reglur kveða á um. Þegar ríkið ákveður umfangsmiklar breytingar á skólastarfi lendir framkvæmdin að verulegu leyti á sveitarfélögunum. Breytingar á námsmati kalla á vinnu. Það þarf að endurskoða námsáætlanir, samræma matsviðmið, uppfæra verklag, fræða starfsfólk, upplýsa foreldra og nemendur og tryggja að nýtt kerfi sé bæði skiljanlegt og sanngjarnt. Allt tekur þetta tíma. Og tími starfsfólks kostar peninga. En kostnaðurinn verður ekki eingöngu mældur í krónum. Hver klukkustund sem fer í að undirbúa og innleiða illa útfærðar breytingar er klukkustund sem hefði mátt nýta til að þróa kennslu, bæta námsmat eða sinna öðrum brýnum verkefnum í skólunum. Hefur verið lagt heildstætt mat á þann kostnað sem breytingarnar hafa þegar haft í för með sér og þann kostnað sem enn er fram undan? Hversu margar vinnustundir hafa farið í kynningar, fundi og undirbúning? Hver á að greiða fyrir þá vinnu sem eftir er? Þetta eru ekki aukaatriði. Þetta eru eðlilegar spurningar um meðferð opinbers fjár og ábyrgð stjórnvalda. Það gengur ekki að ríkið taki ákvarðanir, setji sveitarfélögunum þrönga tímafresti og ætlist síðan til þess að skólarnir leysi málin með þeim mannafla og fjármunum sem fyrir eru. Sveitarfélögin eiga ekki að vera eingöngu framkvæmdaraðilar ákvarðana sem þau hafa haft lítil áhrif á. Þess vegna hef ég hvatt bæjarstjórn og skólanefnd Hveragerðisbæjar til að taka málið upp og kalla eftir því að fyrirhugaðri innleiðingu verði frestað. Ég tel jafnframt mikilvægt að Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga, þar á meðal Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, láti til sín taka. Hér er ekki aðeins verið að fjalla um hvernig kennarar gefa einkunnir. Hér er verið að fjalla um hvernig ríki og sveitarfélög vinna saman að einu mikilvægasta verkefni samfélagsins: menntun barna. Skólastarf verður ekki þróað með fyrirmælum einum saman. Það verður þróað með þekkingu, trausti, samstarfi og sameiginlegri ábyrgð. Þegar ákvarðanir eru teknar án nægilegs undirbúnings og án þess að hlustað sé á þá sem eiga að framkvæma þær er hætt við að traustið bresti. Og án trausts verður innleiðing breytinga bæði erfiðari og dýrari. Börnin eiga betra skilið Í allri þessari umræðu megum við ekki gleyma því hverjir eiga mest undir því að vel takist til. Það eru nemendurnir. Nemendur í 10. bekk eru nú á síðasta ári grunnskólagöngu sinnar. Þeir eiga rétt á að vita á hvaða forsendum námsárangur þeirra verður metinn í vor. Foreldrar eiga sömuleiðis rétt á skýrum upplýsingum og kennarar verða að hafa raunhæfar forsendur til að tryggja samræmi og réttmæti námsmats. Það er ekki sanngjarnt gagnvart þessum nemendum að breyta forsendum námsmats á miðju skólaári án þess að fullnægjandi undirbúningur liggi fyrir. Börnin okkar eiga ekki að þurfa að bera afleiðingar þess að stjórnvöld gefa sér ekki nægan tíma til að undirbúa breytingar af þessari stærðargráðu. Það er enn hægt að gera þetta vel Ég er ekki að kalla eftir því að hætt verði við að þróa námsmat grunnskóla. Síður en svo. Ég vil að við nýtum tækifærið til að bæta námsmat í raun: móta skýrari hæfniviðmið, efla sameiginlegan skilning kennara, bæta leiðsagnarmat og tryggja að upplýsingar um námsárangur gagnist nemendum, foreldrum og þeim skólum sem taka við nemendum að loknum grunnskóla. En til þess þarf tíma, faglega vinnu og raunverulegt samstarf. Það er engin uppgjöf fólgin í því að fresta illa undirbúinni breytingu. Það getur þvert á móti borið vott um ábyrgð og styrk að viðurkenna að undirbúningurinn hafi ekki verið nægilegur. Ráðherra hefur enn tækifæri til að hlusta á skólafólk, sveitarfélög og alla þá sem láta sig menntun barna varða. Ég skora á mennta- og barnamálaráðherra að fresta innleiðingunni, tryggja raunverulegt samráð og leggja fram trúverðuga áætlun um faglegan undirbúning, framkvæmd og kostnað. Jafnframt hvet ég sveitarstjórnarfólk um allt land til að láta rödd sína heyrast. Sveitarfélögin bera ábyrgð á rekstri grunnskólanna og eiga ekki að þurfa að taka þegjandi við ákvörðunum sem hafa veruleg áhrif á starf þeirra, starfsfólk og nemendur. Það að koma breytingu í framkvæmd á tilteknum degi segir ekkert um gæði hennar. Breytum námsmati til að bæta menntun barnanna okkar, ekki til að standa við dagsetningu í áætlun ráðuneytisins. Við skulum ekki rugla saman hraða og framförum. Höfundur er skólastjóri Grunnskólans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun