Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 29. október 2026 13:46 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur hefur verið til svara í fjölmiðlum um þrjár uppsagnarhrinur borgarinnar sem sagðar eru fela í sér niðurlagningu á 130 stöðugildum. Enn fremur eru boðaðar frekari hagræðingaraðgerðir svo sem vegna veikindafjarveru starfsfólks. Margt í svörum Hildar stenst ekki skoðun. Staðhæfing Hildar: Spurð út í orð Róberts Ragnarssonar, formanns hagræðingarhóps borgarinnar, sem sagði á Bylgjunni að það hefði verið gengið of langt í síðustu uppsagnarlotum og sumt fólk ráðið aftur svaraði Hildur að hvergi hafi verið bakkað með neitt, staðið hafi verið við allar þær uppsagnir sem stefnt hefur verið að. Svar Hildar stenst ekki skoðun. Mannauðssvið borgarinnar hefur staðfest að 7 einstaklingum hafi verið boðið starf sitt aftur sem var ekki ráðgert við upphaflega uppsögn. Staðhæfing Hildar: Markmiðið um 7,5% hlutfall stöðugilda í miðlægri þjónustu er byggt á eigin greiningum og litið hafi verið til annarra borga þar sem hlutfallið sé 5-10%. Rannsóknir sýna að tiltekið hlutfall er ekki mælikvarði heldur ákvörðun um þjónustustig. Hlutfallið 7,5% er því pólitískt viðmið, byggir ekki á neinum fræðilegum viðmiðum og hæpið að samanburðurinn við aðrar borgir standist skoðun. Samkvæmt rannsókn sem tók til 300 sveitarfélaga í Noregi var meðaltal þeirra sem störfuðu í stjórnsýslu 13,3% af heildarfjölda starfsfólks. Eftir því sem næst verður komist er það eina rannsóknin sem sýnir með samanburðarhæfum hætti hlutfall miðlægrar stjórnsýslu af heildarfjölda starfsfólks. Rannsóknir hafa einmitt dregið fram hve erfitt er að gera marktækan samanburð milli landa vegna þess hve ólík skilgreining getur verið á því hvaða þjónusta og verkefni falli undir miðlæga stjórnsýslu eða hver verkskipting milli ríkis og sveitarfélaga er. Staðhæfing Hildar: Veikindafjarvera hjá Reykjavíkurborg er jafnvel hærri en á Landspítala og hærri en í þeim sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu sem hún hefur grennslast fyrir um. Rýna þurfi hvort einhver hópur sé þarna sem noti veikindarétt með röngum hætti þar sem ýmis ummerki séu um að einhverjir geri það. Samkvæmt nýjustu tölum sem liggja fyrir stenst staðhæfing Hildar ekki skoðun. Ef borið er saman veikindahlutfall á þeim vinnustöðum sem Hildur nefnir á síðasta ári var það hæst á Landspítala og í Hafnarfirði eða um 7,3%, ríflega 7% í Reykjavík og Kópavogi og tæp 5,9% í Seltjarnarnesbæ. Innlendar sem erlendar rannsóknir sýna að konur í kvennastéttum (og þær starfa einkum á opinberum vinnumarkaði) eru líklegri en aðrir á vinnumarkaði til að veikjast til lengri tíma vegna vinnuaðstæðna, s.s. andlegs eða líkamlegs álags. Samkvæmt síðustu rannsókn sem gerð hefur verið um veikindafjarveru á Íslandi sögðust 48% starfsfólks hjá sveitarfélögum og 34% starfsfólks hjá ríki vera andlega úrvinda eftir vinnudaginn. Á öðrum Norðurlöndum er bæði þekking og viðurkenning á því að álag í starfi og starfsumhverfi sé rót vandans og aðgerðir miða að því að laga það. Í öllum þeim rannsóknum, greiningum, stefnumótun og aðgerðum á vinnumarkaði vegna þessa er hvergi minnst á þá sem kunna að vera að misnota rétt sinn enda væru atvinnurekendur með því að kasta frá sér eigin ábyrgð og afvegaleiða umræðuna. Staðhæfing um að fólk sé að misnota rétt sinn til veikindalauna án nokkurra gagna eða þekkingar sem renna stoðum undir hana er alvarleg. Fjöldauppsagnir taka verulega á fólkið sem eftir er á vinnustaðnum og valda óvissu um eigið starfsöryggi. Þá er vel þekkt að mikill niðurskurður getur aukið álag hjá þeim sem eftir eru og bitnað á heilsu þeirra. Það eru ansi kaldar kveðjur að gera meinta misnotkun á veikindarétti að umræðuefni við þessar aðstæður. Staðhæfing Hildar: Töluverðar greiningar hafi farið fram um hvernig megi fækka stöðugildum hjá borginni Rúmlega 100 dögum eftir fyrstu uppsagnirnar hefur borgin ekki svarað helmingi beiðna Sameykis um rökstuðning né lagt fram greiningar eða gögn um undirbúning fjöldauppsagnanna. Hafi þær raunverulega verið gerðar ætti borginni að vera í lófa lagt að afhenda þær. Staðhæfing Hildar: Hagræðing um 2,3 milljarða á ársgrundvelli með niðurlagningu á 130 stöðugildum. Það er fátt sem bendir til þess að fyrir liggi hver raunveruleg fjárhagsleg áhrif hagræðingaraðgerðanna verða. Þegar er búið að bjóða einhverjum annað starf og önnur hafa fengið starfið til baka. Dæmi eru um að yfirvinna hafi aukist hjá þeim sem eftir eru og veikindafjarvera gæti aukist vegna álags. Í uppsagnarbréfum til starfsfólks kemur skýrt fram að verkefnum kunni að verða útvistað, slíkt felur í sér kostnað. Fjöldi innlendra sem erlendra dæma er um óhagkvæmni útvistunar verkefna sem leiði á endanum til aukins kostnaðar og eða verri gæða þjónustu. Samkvæmt rannsóknarreglu stjórnsýslulaga hvílir sú lagalega skylda á borginni að afla nægilegra upplýsinga um þær aðstæður og atvik sem geta haft þýðingu þegar metið er hvort segja skuli fólki upp störfum. Enn fremur hvort markmiðinu verði náð með öðru eða vægara móti sbr. meðalhófsreglu sömu laga. Umboðsmaður Alþingis hefur í málum sínum m.a. bent á að áður en ráðist er í aðgerðir sem hafa í för með sér starfslok þurfi að liggja fyrir að þær séu í reynd til þess fallnar að ná settum markmiðum um sparnað í rekstri. Rannsóknin þurfi að leiða í ljós með nokkuð óyggjandi hætti hver fjárhagsleg áhrif hagræðingaraðgerðanna verða. Sé markmiðið að lækka launakostnað verði stjórnvaldið að afla upplýsinga um þann kostnað sem hlýst á móti, s.s. vegna greiðslu launa í uppsagnarfresti eða annars kostnaðar sem kann að hljótast af. Í þeim efnum má t.d. nefna yfirvinnu og greiðslu til einkaaðila fyrir að sinna verkefninu vegna útvistunar. Uppsagnarbréf til starfsfólks borgarinnar gefa sterkt til kynna að það liggi ekki fyrir með skýrum hætti hvort að aðrir verði fengnir til að sinna verkefnunum með útvistun, þau færð yfir á aðra starfsmenn eða þeim sleppt. Þá er óheimilt að „skipta fólki út“, þ.e. fá annað fólk til að sinna sambærilegum verkefnum og þeim sem starfsfólk sem sagt var upp í hagræðingarskyni sinnti áður. Staðhæfing Hildar: Störf í beinni þjónustu við borgarbúa verði varin og borgarbúar munu ekki finna fyrir þessum breytingum, þær muni ekki hafa áhrif á þjónustu borgarinnar Þegar dregið er úr stoðþjónustu mun það væntanlega leiða til þess að þeir sem sinna beinni þjónustu við börn, eldra fólk, fatlað fólk og aðra borgarbúa hafi minni tíma til þess. Það gæti lengt biðtíma eftir þjónustu og samfellu hennar, afgreiðslu erinda, dregið úr gæðum þjónustu og aðgengi að henni, dregið úr afköstum og öryggi og leitt til yfirfærslu kostnaðar á íbúa borgarinnar. Enn fremur getur veiking stoðþjónustunnar aukið vinnuálag, yfirvinnu og veikindafjarvistir starfsfólks í framlínu og þeirra sem starfa í stoðþjónustu. Þá ber líka að hafa í huga að fjöldi millistjórnenda hjá Reykjavíkurborg sinnir einnig beinni þjónustu. Hildur hefur ekki lagt fram gögn né svarað með skýrum hætti hver áhrif þess að færra fólk sinnir verkefnunum verði eða hver taki við þeim verkefnum. Höfundar eru Kári Sigurðsson formaður Sameykis og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kári Sigurðsson Sonja Ýr Þorbergsdóttir Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun