Skoðun

Það er ekki nóg að hækka róminn

Þorgrímur Sigmundsson skrifar

Það er eiginlega ekki annað hægt en að staldra við og fylgjast með því sem nú er að gerast í íslenskum stjórnmálum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að taka upp nýja orðræðu í málefnum hælisleitenda og menn keppast nú við að tala um hana af mikilli hörku.

Flokkurinn þykist loksins hafa séð ljósið og áttað sig á því að stefna stjórnvalda í þessum málaflokki hefur verið á miklum villigötum. En það er dálítið sérstakt að horfa upp á þetta því flokkurinn stóð með þeirri stefnu sem leiddi okkur í núverandi ástand. Finnst okkur þessi nýja orðræða trúverðug?

Hvar var þessi festa þegar flokkurinn sat í ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Vinstri grænum á síðustu tveimur kjörtímabilum? Hvar var þessi harða gagnrýni þegar tækifærin gáfust til að taka á vandanum og láta til sín taka til að afstýra fyrirsjáanlegum vandræðum sem Miðflokkurinn benti ítrekað á? Sjálfstæðisflokkurinn var ekki áhorfandi að þessari þróun. Hann var þátttakandi og ber því sína ábyrgð.

Miðflokkurinn hefur nálgast þennan málaflokk af skynsemi og gagnrýnt innflytjendastefnuna til margra ára og framan af undir mikilli gagnrýni m.a. frá Sjálfstæðisflokknum. Það er auðvitað aldrei of seint að skipta um skoðun en það er ekki hægt að hlaupa frá eigin ábyrgð með því einu að hækka róminn.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×