Skoðun

Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun

Geir Kristinsson skrifar

Að minnsta kosti einu sinni á starfsævinni.

Þá er ég að tala um að skrá sig inn í netbankann, stimpla pinnið í símann og greiða kröfur sem fylgja launum, frá Fjársýslu ríkisins, lífeyrissjóði og stéttarfélagi.

Það breytir sýn manns á launakostnað.

Laun og launatengd gjöld eru há á Íslandi.

Starfsmaður með 1.250 þús. í mánaðarlaun kostar laungreiðandann um 1.550 þús. en fær útborgað um 810 þús. miðað við algengar forsendur.

Launakostnaðurinn er töluvert meiri en brúttólaunin eins og flestir vita. Þetta er auðvitað aðeins mismunandi eftir kjarasamningum. Við bætist meðal annars:

  • Tryggingagjald: 6,35%.
  • Mótframlag í lífeyrissjóð: að lágmarki 11,5%.
  • Mótframlag í séreignarsparnað: oftast 2%.
  • Mótframlag í sjóði stéttarfélags: um 1,75%.
  • Orlofsuppbót, desemberuppbót og listinn heldur áfram...

Svo þarf reksturinn að standa undir launum í orlofi og veikindum. Þetta eru mikilvæg réttindi.

Ég hef unnið með eigendum sem hafa frestað eigin launagreiðslum svo starfsfólkið fái greitt á réttum tíma. Þeir setja sig aftast í röðina. Sumum finnst það kannski sjálfsagt en það er ekki sjálfsagt að stofna fyrirtæki og fara í rekstur, leggja eigið fé undir, ráða starfsfólk og taka áhættu.

Virðing mín fyrir eigendum fyrirtækja, sérstaklega lítilla og meðalstórra, sem skapa störf hér á landi er mikil.

Við þurfum að gera fyrirtækjum hærra undir höfði og búa til jákvæða hvata sem hjálpa fólki að láta drauminn rætast og stofna fyrirtæki, ekki síst núna.

Höfundur er stofnandi GK Fjármál og starfar sem fjármálastjóri í hlutastarfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×