Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifa 30. október 2026 09:01 Í þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 er boðuð stórsókn í útgáfu námsgagna. Gefa á út nýtt og heildstætt námsefni í stærðfræði, íslensku og náttúrugreinum: Leggja á aukna áherslu á fjölbreytt og vönduð námsgögn og tryggja að þau taki mið af aldri, færni, áhuga og tungumálabakgrunni nemenda. Þetta er löngu tímabært, skólafólk hefur árum saman kallað eftir aðgengilegu námsefni sem mætir ólíkum þörfum nemenda. Árið 2021 benti ríkisendurskoðun á takmarkað fjármagn til námsefnisgerðar og þörf væri á skýrari stefnu námsgagnagerðar. Í greinargerð áætlunarinnar kemur fram að samkvæmt könnun ráðuneytisins þurfi 76% stærðfræðikennara oft að leita að viðbótarefni. Þá nota 84% þeirra reglulega verkefni sem þeir hafa útbúið sjálfir. Kennarar hafa því haldið kerfinu gangandi með eigin vinnu og fyllt upp í göt sem ríkið skildi eftir. Ástæðan er niðurskurður í Þróunarsjóði námsgagna sem er nú aðeins um þriðjungur af raunvirði sínu frá árinu 2007. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hefur sagt að höfundum sé greitt mjög lítið fyrir námsefnisgerð, að kennarar hafi frekar litið á þessa vinnu sem samfélagslega skyldu. Gæði kosta Áætlunin svarar ekki spurningum eins og hversu miklu fé verður varið til þróunar, ritunar, myndskreytinga, útgáfu og reglulegrar endurnýjunar? Hvernig verður tryggt að efnið standist kröfur aðalnámskrár og styðji fjölbreytta kennsluhætti? Hvaða verkefni njóta forgangs? Í áætluninni segir aðeins að útgáfa nýs námsefnis í kjarnagreinum rúmist innan fjárheimilda frá árinu 2027. Það segir ekkert um hvernig fénu verður skipt, hvernig því verður úthlutað eða hvort það dugi fyrir þeirri umfangsmiklu endurnýjun sem lofað er. Á slíkum málflutningi er ekki hægt að byggja. Vönduð námsgagnagerð krefst sérþekkingar kennara, fræðimanna, höfunda, ritstjóra, hönnuða og útgefenda. Hún krefst tíma, faglegs mats, prófana og endurskoðunar. Allt þetta kostar og fyrir það þarf að greiða sanngjarnt verð. Vélþýtt og staðfært gervigreindarefni sem ráðherra málaflokksins er tíðrætt um kemur ekki í stað námsefnis sem er samið fyrir íslensk börn, á íslensku, af fólki sem þekkir nemendahópinn. Útgáfuáætlun dugar ekki til, það þarf fjármagnaða framkvæmdaáætlun sem sýnir hvernig gæði og samfella námsefnis verða tryggð til lengri tíma. Annars verður stórsóknin enn eitt loforðið sem kennarar þurfa að efna sjálfir. Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennariHólmfríður Jennýjar Árnadóttir menntunarfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Álfhildur Leifsdóttir Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Í þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 er boðuð stórsókn í útgáfu námsgagna. Gefa á út nýtt og heildstætt námsefni í stærðfræði, íslensku og náttúrugreinum: Leggja á aukna áherslu á fjölbreytt og vönduð námsgögn og tryggja að þau taki mið af aldri, færni, áhuga og tungumálabakgrunni nemenda. Þetta er löngu tímabært, skólafólk hefur árum saman kallað eftir aðgengilegu námsefni sem mætir ólíkum þörfum nemenda. Árið 2021 benti ríkisendurskoðun á takmarkað fjármagn til námsefnisgerðar og þörf væri á skýrari stefnu námsgagnagerðar. Í greinargerð áætlunarinnar kemur fram að samkvæmt könnun ráðuneytisins þurfi 76% stærðfræðikennara oft að leita að viðbótarefni. Þá nota 84% þeirra reglulega verkefni sem þeir hafa útbúið sjálfir. Kennarar hafa því haldið kerfinu gangandi með eigin vinnu og fyllt upp í göt sem ríkið skildi eftir. Ástæðan er niðurskurður í Þróunarsjóði námsgagna sem er nú aðeins um þriðjungur af raunvirði sínu frá árinu 2007. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hefur sagt að höfundum sé greitt mjög lítið fyrir námsefnisgerð, að kennarar hafi frekar litið á þessa vinnu sem samfélagslega skyldu. Gæði kosta Áætlunin svarar ekki spurningum eins og hversu miklu fé verður varið til þróunar, ritunar, myndskreytinga, útgáfu og reglulegrar endurnýjunar? Hvernig verður tryggt að efnið standist kröfur aðalnámskrár og styðji fjölbreytta kennsluhætti? Hvaða verkefni njóta forgangs? Í áætluninni segir aðeins að útgáfa nýs námsefnis í kjarnagreinum rúmist innan fjárheimilda frá árinu 2027. Það segir ekkert um hvernig fénu verður skipt, hvernig því verður úthlutað eða hvort það dugi fyrir þeirri umfangsmiklu endurnýjun sem lofað er. Á slíkum málflutningi er ekki hægt að byggja. Vönduð námsgagnagerð krefst sérþekkingar kennara, fræðimanna, höfunda, ritstjóra, hönnuða og útgefenda. Hún krefst tíma, faglegs mats, prófana og endurskoðunar. Allt þetta kostar og fyrir það þarf að greiða sanngjarnt verð. Vélþýtt og staðfært gervigreindarefni sem ráðherra málaflokksins er tíðrætt um kemur ekki í stað námsefnis sem er samið fyrir íslensk börn, á íslensku, af fólki sem þekkir nemendahópinn. Útgáfuáætlun dugar ekki til, það þarf fjármagnaða framkvæmdaáætlun sem sýnir hvernig gæði og samfella námsefnis verða tryggð til lengri tíma. Annars verður stórsóknin enn eitt loforðið sem kennarar þurfa að efna sjálfir. Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennariHólmfríður Jennýjar Árnadóttir menntunarfræðingur
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun