„Þá þurfum við að spyrja okkur hvort við séum virkilega að auglýsa báðar deildir“
Rebekka Sverrisdóttir, varaforseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna og leikmaður Íslandsmeistara Vals, ræddi við Stöð 2 og Vísi um auglýsinguna fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla og kvenna í knattspyrnu. Samtökin eru vægast sagt ósátt með hversu lítinn tíma konur fá í auglýsingunni.