

Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Eldra fólk sem hefur ekkert annað sér til framfærslu en greiðslur almannatrygginga tilheyra þeim þjóðfélagshópi sem haldið er í sárri fátækt og búa við algjöra neyð.
Staða íslenskrar tungu er fundarefni opins fundar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sem hefst klukkan 9:10.
Diljá Mist Einarsdóttir hefur lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra um handtöku og afhendingu íslenskra ríkisborgara. Tilefnið er mál Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem var handtekin í gær og til stendur að afhenda norskum yfirvöldum.
Formaður Viðreisnar gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag fyrir aðgerðarleysi í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Það eina sem ríkisstjórnin hyggðist gera til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs væri flatur niðurskurður án allrar forgangsröðunar. Ekkert væri gert til að draga í raun úr útgjöldum ríkissjóðs.
Þingmenn úr öllum flokkum stjórnarandstöðu stigu í pontu Alþingis síðdegis til að gagnrýna vinnubrögð ríkisstjórnarinnar en þingflokksformenn fengu skilaboð um kvöldmatarleytið í gær um að til stæði að taka fyrir 56 blaðsíðna frumvarp umhverfisráðherra í dag sem meðal annars inniheldur fjórtán ESB lagagerðir.
Stjórnarandstaðan hefur undanfarna daga gagnrýnt hvað fá mál af málaskrá ríkisstjórnarinnar eru komin fram á Alþingi þegar óðum styttist í jólaleyfi þingmanna, eða 35 frumvörp. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að því miður væri tilhneigingin stundum að leggja mál fram rétt áður en frestur til þess renni út, sem væri í þessari viku.
Þingmaður Pírata gagnrýnir aukinn vopnaburð lögreglu með rafbyssum og óttast að hann muni stigmagna ofbeldi í samfélaginu. Dómsmálaráðherra segir enga stefnubreytingu hafa átt sér stað varðandi valdbeitingarheimildir lögreglunnar.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur finnur alltaf leið til að demba aðhaldinu í ríkisfjármálum á lágtekju- og millitekjuheimili en hlífa þeim tekjuhærri.
Sjálfstæðismenn vilja velta fyrir sér öllum vinklum á atviki sem varðar Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur þingmanni Pírata frá á föstudagskvöldið.
Eldri borgarar og öryrkjar sem treysta eingöngu á lágar bætur frá almannatryggingum lifa við gríðarlega fátækt og bágborin kjör. Þeir óttast sérstaklega að verða 67 ára því þá lækka bætur þeirra enn frekar þegar þeir færast yfir á ellilífeyri. Oft eru þetta konur sem unnu árum saman sem heimavinnandi húsmæður og eiga engan lífeyrissjóð.
Fylgi Samfylkingarinnar mælist 26 prósent í nýrri könnun Maskínu og minnkar um tæplega tvö prósentustig á milli kannanna. Flokkurinn mælist þó enn langstærstur.
Innviðaráðherra skoraði á eigendur atvinnuhúsnæðis, sem búið er í, að koma því í lag á Alþingi í dag. „Þetta getur ekki gengið svona áfram,“ sagði hann og vísaði til fjölda alvarlegra eldsvoða sem orðið hafa undanfarið.
Frumvarp félagsmálaráðherra um launagreiðslur til Grindvíkinga var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi í dag.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, segist hafa beðist afsökunar á framkomu sinni á skemmtistaðnum Kíkí síðastliðið föstudagskvöld. Hún viðurkennir að hafa drukkið of mikið umrætt kvöld og verið dónaleg.
Björn Leví Gunnarsson, varaþingflokksformaður Pírata, segir mál Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur þingmanns flokksins, sem var handtekin á skemmtistaðnum Kíki við Klapparstíg um helgina, vera sérstakt. Hennar hafi ekki verið getið í dagbók lögreglunnar um ofurölvi einstakling umrædda nótt.
Ég tek undir kröfu Sverris Agnarssonar um að þingmaðurinn Birgir Þórarinsson dragi til baka rangar yfirlýsingar sem hann viðhafði í ræðu í alþingi í vikunni sem leið.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata, sem handtekin var á skemmtistaðnum Kiki á föstudagskvöld segir framkomu dyravarða staðarins hafa verið harkalega og niðurlægjandi en viðurkennir að hafa rifið kjaft.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, var handtekin síðasta föstudag á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Hún segir ástæðuna vera að hún hafi verið of lengi inn á salerni staðarins.
Nokkur fjöldi fólks safnaðist saman á Austurvelli í dag þar sem haldinn var gjörningur til stuðnings börnunum á Gaza á vegum félagsins Ísland-Palestína. Félagið mun standa fyrir viðburðum tengdum Palestínu á hverjum degi það sem eftir lifir nóvember mánaðar.
Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á samgönguyfirvöld að setja Fjarðagöng á Austfjörðum í forgang á samgönguáætlun, tvenn göng sem tengja myndu Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð. Slík göng yrðu þannig sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, sem núna eru áformuð sem næstu jarðgöng á samgönguáætlun.
Fyrir nokkrum dögum féll dómur í Héraðsdómi Vestfjarða, þar sem Arnarlax var sýknað af kröfu Vesturbyggðar um greiðslu á hækkuðu aflagjaldi fyrir löndun á eldislaxi í höfnum sveitarfélagsins.
Stjórnarandstaðan gagnrýndi ríkisstjórnina harkalega í dag fyrir aðgerðarleysi. Þingmaður segir að Alþingi sé nánast lamað vegna óeiningar ríkisstjórnarflokkanna sem geti ekki komið sér saman um mikilvæg mál.
Formaður Samfylkingarinnar gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega á Alþingi í morgun fyrir aðgerðarleysi vegna stöðu heimilanna í landinu. Ekkert væri gert varðandi vaxta-, barna- og húsnæðisbætur í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.
Birgir Þórarinsson alþingismaður hafnar því alfarið að draga til baka ummæli sín um afhöfðun kornabarna.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir ríkisstjórnina óstarfhæfa vegna sundrungar og Alþingi vera lamað fyrir vikið. Bendir þingmaðurinn á því til stuðnings á fá stjórnarfrumvörp hafi komið til þingsins og að það sem af sé hausti hafi þingið einungis afgreitt tvö stjórnarfrumvörp.
Seðlabankinn hefur nú ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum að þessu sinni. Bankinn metur það svo að hvorki sé tilefni til hækkunar né lækkunar en helst er á honum að heyra að ef ekki væri fyrir óvissu vegna stöðunnar í Grindavík þá myndi hann hækka vexti.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað og áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu. Því miður hafa verðbólguhorfur þó versnað, spennan í þjóðarbúinu reynist meiri og gengi krónunnar lækkað.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að sjá til þess að Arnar Þór Jónsson, fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, muni ekki taka sæti á Alþingi fyrir flokkinn.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi og Jóhann H. Sigurðsson, skristofustjóri Framsóknar, eru að stinga saman nefjum. Það fór ekki fram hjá Framsóknarfólki sem sótti miðstjórnarfund flokksins í Vík í Mýrdal um helgina.
Sverrir Agnarsson, ráðgjafi í markaðsmálum, óskar þess að fullyrðingar um afhöfðuð börn verði dregin til baka.