Áskoranir og sóknarfæri 2022: Einstaklega mikilvægt að vel takist til við kjarasamningsborðið Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Ásdís Kristjánsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar eru sammála um að helstu áskoranir næsta árs snúi annars vegar að skynsamlegri lendingu við kjarasamningsborðið og hins vegar að því að atvinnulífinu sé gert auðveldara um vik að ná fyrri krafti eftir heimsfaraldurinn. Innherji 27. desember 2021 07:00
Siglum báruna Líf okkar allra hefur markast af kófinu síðastliðin tvö ár og því hefur fylgt gríðarlegt heilsufarslegt og efnahagslegt tjón. Þegar þetta er ritað eru tæplega sjö þúsund manns á landinu í einangrun eða sóttkví yfir jólin, langflestir með lítil eða engin einkenni. Umræðan 26. desember 2021 09:00
Fjárlagafrumvarpið endurspegli svikin loforð Þingmaður Samfylkingarinnar segir að samkvæmt fyrsta fjárlagafrumvarpi nýrrar ríkisstjórnar sé ekki mikið að marka loforð hennar. Frumvarpið markist af viðbragðsstjórnmálum en ekki sókn til varnar velferðinni. Stjórnarliðar segja frumvarpið sóknarfrumvarp á erfiðum tímum í miðjum faraldri. Innlent 23. desember 2021 11:39
Háskólinn og FS kaupa Bændahöllina fyrir 4,9 milljarða Ríkissjóður og Félagsstofnun stúdenta munu greiða tæpa fimm milljarða króna fyrir kaupin á Hótel Sögu, Bændahöllinni, sem voru undirrituð í gær. Gert er ráð fyrir að ráðast þurfi í talsverðar viðgerðir og breytingar á byggingunni, sem verður nýtt bæði sem kennsluhúsnæði og í íbúðir fyrir stúdenta við Háskóla Íslands. Viðskipti innlent 23. desember 2021 08:32
Vilja að fallið verði frá frumvarpi sem setur kvaðir á erlenda fjárfestingu Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð gera öll alvarlegar athugasemdir við breytingar sem eru lagðar til á lögum um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri í frumvarpi sem nú er í þinglegri meðferð. Þetta kemur fram í sameiginlegri umsögn samtakanna. Innherji 23. desember 2021 07:00
Skrifað undir kaupin á Hótel Sögu Ríkissjóður og Félagsstofnun stúdenta hafa fest kaup á Hótel Sögu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bændasamtökum Íslands, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Félagsstofnun stúdenta. Viðskipti innlent 22. desember 2021 11:57
Megas eftir sem áður á heiðurslaunum listamanna Tónlistarmaðurinn Megas verður áfram á heiðurslaunum listamanna en til greina kom að hann yrði sviptur laununum vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Ekki verður fleirum bætt á lista yfir þá sem þiggja heiðurslaun listamanna. Innlent 22. desember 2021 10:31
Þingmenn vilji vita meira um ástæður aðgerða hverju sinni Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallar eftir því að þingmenn fái að vita meira um rökin á bak við þær sóttvarnaaðgerðir, sem eru í gildi hverju sinni. Þá telur hann tíma til kominn að tekið sé meira mið af félagslegum- og andlegum áhrifum við ákvarðanatöku um aðgerðir. Innlent 22. desember 2021 08:59
Ekki ósennilegt að Allir vinna verði framlengt „að einhverju leyti“ Ekki er ósennilegt að átakið Allir vinna verði framlengt að einhverju leyti. Málið verður tekið til umræðu í fjárlaganefnd milli annarar á þriðju umræðu á þingi. Innlent 22. desember 2021 08:14
Heilbrigðisvandamálið fíknisjúkdómar Um þessar mundir er fjárlagafrumvarp ársins 2022 til umræðu á Alþingi. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, sendu inn umsögn um frumvarpið þar sem þau lýstu yfir miklum áhyggjum af framlögum til sín. Skoðun 22. desember 2021 07:31
Sammála um að skynsamlegt sé að létta álaginu af spítalanum með aðkomu fleiri en ríkisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spyr hvort til greina komi að ríkið leiti í auknum mæli til annarra þeirra sem geta létt álaginu af Landspítalanum um að veita heilbrigðisþjónustu í ljósi faraldursins og þess álags sem spítalinn er undir vegna hans. Innherji 21. desember 2021 20:01
Kaldhæðni örlaganna hjá Viðreisn Þingflokkur Viðreisnar lagði fram tímabæra beiðni á dögunum um sérstaka umræðu um sóttvarnir og frelsi í þinginu. Umræðan er langþráð á þeim vettvangi enda hefur það aldrei verið skrifað inn í starfslýsingu sóttvarnarlæknis að hann skuli einn meta hvort vegur þyngra, smitvarnir eða frelsi fólks. Klinkið 21. desember 2021 17:46
Forseti Alþingis smitaður af Covid-19 Birgir Ármannsson, forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er smitaður af Covid-19. Hann er enn einn þingmaðurinn sem greinist með veiruna undanfarna daga. Innlent 21. desember 2021 16:14
Íslandsbanki: Eftir hverju er að bíða? Það var reglulega ánægjulegt að fylgjast með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra taka við verðlaunum fyrir viðskipti ársins að mati dómnefndar Innherja, nýs viðskiptamiðils Vísis. Skoðun 21. desember 2021 13:00
Stuðningur við námsmenn er stuðningur við framtíðina Árum saman hefur komið fram af hálfu Stúdentaráðs að grunnframfærsla námslána sé of lág til að námsmenn geti framfleytt sér í námi. Þess vegna vinna stúdentar á Íslandi margir hverjir töluvert mikið með námi. Skoðun 21. desember 2021 07:30
„Lestarslys í slow motion“ Kosningaklúðrið sem heltók líf okkar í lok septembermánaðar var „lestarslys í slow motion“ eins og einn þingmannanna sem datt út af þingi við endurtalninguna komst að orði. Hér rifjum við upp þetta líka skemmtilega mál, sem má kannski kalla helsta fréttamál ársins? Innlent 21. desember 2021 07:01
Gunnar Smári sakar Willum um leka til að gera Þórólf að „vonda kallinum“ Gunnar Smári Egilsson sakar heilbrigðisráðuneytið um að hafa lekið nýjasta minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis í þeim tilgangi að láta ráðherra líta vel út þegar framhald sóttvarnaaðgerða verður tilkynnt í dag. Innlent 21. desember 2021 06:48
Óli Björn greindist með Covid-19 Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, greindist í dag með Covid-19. Þetta staðfestir þingmaðurinn í samtali við fréttastofu en minnst sjö þingmenn og fjórir starfsmenn þingsins hafa greinst á seinustu dögum. Innlent 20. desember 2021 20:43
Samstaða náðst um 53 þúsund króna aukagreiðslu til öryrkja Samstaða náðist í kvöld í fjárlaganefnd Alþingis um tillögu þess efnis að öryrkjum yrði greidd 53 þúsund króna aukagreiðslu til viðbótar við desemberuppbót sína. Innlent 20. desember 2021 19:48
„Grafalvarlegt mál að læsa frískt fólk inni“ „Nú eru flestir sem hnepptir eru í varðhald, þ.e. sóttkví eða einangrun, fullfrískir eða finna fyrir „léttum flensueinkennum“. Þegar þetta er skrifað eru ellefu á sjúkrahúsi og tveir á gjörgæslu, 2.449 í sóttkví og 1.724 í einangrun.“ Innlent 20. desember 2021 09:06
Ekki fleiri greinst smitaðir á Alþingi Ekki hafa fleiri þingmenn eða starfsmenn Alþingis greinst með kórónuveiruna síðan á laugardag. Innlent 20. desember 2021 09:00
Þorgerður Katrín segir hættulegt að verða við kröfum Rússa Formaður Viðreisnar sem jafnframt situr í utanríkismálanefnd segir að engin ein aðildarþjóð Atlantshafsbandalagsins geti ákveðið viðbrögð þess ef Rússar ráðast inn í Úkraínu. En breski varnarmálaráðherrann segir ósennilegt að NATO myndi senda hersveitir þangað Úkraínumönnum til varnar ef til innrásar kæmi. Innlent 19. desember 2021 14:28
Fleiri þingmenn Viðreisnar smitast María Rut Kristinsdóttir, þriðji varaþingmaður Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, er með kórónuveiruna. Allir þingmenn Viðreisnar hafa greinst með veiruna á síðustu dögum og nú virðist veiran ætla að ná taki á varaþingmönnum flokksins. Innlent 19. desember 2021 14:15
Gamla fólkið á Höfn látið bíða inn á baðherbergi á meðan herbergisfélaginn deyr Íbúar á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði þurfa að deila herbergi og salerni með öðrum. Þá geta íbúarnir ekki tekið á móti aðstandendum í herbergin sín því þau eru svo lítil og vilji íbúarnir komast í sturtu þarf að panta það fyrir fram. „Þegar við liggjum svo banaleguna er herbergisfélagi okkar færður inn á baðherbergi svo við getum átt næði síðustu ævistundirnar með okkar ástvinum,“ segja íbúarnir meðal annars í opnu bréfi til heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnarinnar. Innlent 19. desember 2021 12:16
Vilja fá óháðan aðila til að taka út veitingu undanþága Þingmenn Pírata og Flokks fólksins hafa lagt fram beiðni um skýrslu frá innanríkisráðherra um undanþágur frá aldursákvæði hjúskaparlaga. Beiðnin varðar heimild til barna yngri en 18 ára til að ganga í hjónaband. Innlent 19. desember 2021 10:14
Erfiðara að sitja í einangrun en að setja sig inn í fjárlögin Varaþingmenn Viðreisnar eru klárir í slaginn en þeir þurfa að kynna sér fjárlagafrumvarpið um helgina til að geta tekið þátt í umræðum á þinginu um það í næstu viku. Allir þingmenn Viðreisnar hafa greinst með kórónuveiruna. Það er einstakt í sögunni að svo stór þingflokkur sé alfarið skipaður varamönnum vegna veikinda. Innlent 18. desember 2021 20:35
Bjarni Harðar með 32 nýjar bækur fyrir jól „Það er ekki hægt að líka því saman hvað það er miklu skemmtilegra að vera bóksali heldur en alþingismaður“, segir Bjarni Harðarson á Selfossi en hann er að gefa út 32 titla af nýjum bókum fyrir jól. Bjarni, eða Bjarni Harðar eins og hann er alltaf kallaður, og Elín Gunnlaugsdóttir, eiginkona hans fengu í vikunni menningarverðlaun Árborgar fyrir árið 2021. Innlent 18. desember 2021 14:00
Viðreisn undirlögð af veirunni Fjórir af fimm þingmönnum Viðreisnar hafa nú greinst með kórónuveiruna. Þingflokksformaðurinn bíður eftir niðurstöðu úr PCR-prófi en er ekki vongóð um að sleppa. Innlent 18. desember 2021 12:15
Öll saman í litlu herbergi og ekki hægt að komast hjá því að smitast Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar er annar þingmaður flokksins sem greinist með kórónuveiruna. Hann er slappur en nokkuð brattur þrátt fyrir það og er kominn í einangrun austur fyrir fjall, þar sem hann verður einn yfir jólin. Innlent 18. desember 2021 10:08
Mest lesnu viðhorfspistlarnir 2021: Kynferðisofbeldi, faraldurinn, fiskeldi og Gísli Marteinn Mest lesnu viðhorfspistlar ársins varpa skýru ljósi á hvað var efst á baugi á árinu. Innlent 18. desember 2021 08:01