Sjónvarpskóngur allur Bandaríski sjónvarpskóngurinn Charles Dolan, stofnandi Home Box Office, sem er betur þekkt undir skammstöfuninni HBO, og Cablevison, er látinn 98 ára að aldri. Viðskipti erlent 29. desember 2024 10:20
Lést sex dögum eftir að hafa orðið meistari Hnefaleikakappinn Paul Bamba frá Púertó Ríkó er látinn, sex dögum eftir að hafa orðið meistari í sínum þyngdarflokki. Sport 28. desember 2024 22:33
Íslandsvinurinn OG Maco látinn Bandaríski rapparinn OG Maco er látinn 32 ára að aldri. Hann hafði verið í dái á sjúkrahúsi frá 12. desember eftir að hafa veitt sjálfum sér skotáverka á höfði. Erlent 28. desember 2024 10:24
„Svarta ekkjan“ fannst látin Eldri kona sem var dæmd til dauða í Japan fyrir áratug fyrir að hafa banað elskhugum sínum með blásýru fannst látin í fangelsisklefa sínum í gær. Hún var 78 ára og hafði hlotið viðurnefnið „svarta ekkjan“. Erlent 27. desember 2024 15:56
Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Manmohan Singh, fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, er látinn, 92 ára að aldri. Singh var í hópi þeirra sem hafa gegnt forsætisráðherraembættinu hvað lengst í landinu, en hann stýrði landinu á árunum 2004 til 2014 en áður hafði hann gegnt embætti fjármálaráðherra landsins. Erlent 27. desember 2024 10:11
Lést eftir að hafa fallið úr bíl á ferð Bandaríski leikarinn Hudson Meek, sem hvað þekktastur er fyrir hlutverk sitt í myndinni Baby Driver, er látinn. Hann varð sextán ára. Lífið 27. desember 2024 07:51
Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði Ólympíusnjóbrettakappinn Sophie Hediger lést í snjóflóði í Arosa í Sviss á mánudaginn síðasta. Svissneska skíðasambandið greinir frá andláti hennar. Sport 25. desember 2024 09:51
Þau kvöddu á árinu 2024 Fjöldi þekktra einstaklinga kvöddu á árinu sem senn er á enda. Erlent 25. desember 2024 09:01
Einn frægasti krókódíll í heimi allur Einn frægasti krókódíll í heimi, ástralski krókódíllinn Burt sem fór með hlutverk í kvikmyndinni Crocodile Dundee er allur. Talið er að hann hafi verið yfir níutíu ára gamall. Lífið 23. desember 2024 16:32
Egill Þór er látinn Egill Þór Jónsson, teymisstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er látinn. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut í návist fjölskyldu og vina föstudagskvöldið 20. desember. Hann var 34 ára gamall og hafði undanfarin ár háð harða baráttu við krabbamein. Innlent 23. desember 2024 09:44
Missti báða foreldra sína í vikunni Bandaríski grínistinn Conan O' Brien missti foreldra sína í vikunni með þriggja daga millibili. Faðir hans lést á mánudag og móðir hans í gær. Lífið 13. desember 2024 16:23
Játar sök eftir að hafa banað eiginkonu sinni Ástralinn Rohan Dennis, fyrrverandi heimsmeistari í hjólreiðum, hefur játað að hafa með gáleysi orðið eiginkonu sinni að bana með því að aka bíl á hana. Sport 10. desember 2024 09:16
Lést aðeins 39 ára eftir langa glímu við átröskun Norska hlaupakonan Marthe Katrine Myhre, sem varð meðal annars Noregsmeistari í maraþoni fimm sinnum, er látin, aðeins 39 ára gömul. Sport 9. desember 2024 11:33
Árni Indriðason er látinn Árni Indriðason, menntaskólakennari og sagnfræðingur, er látinn, 74 ára að aldri. Innlent 6. desember 2024 08:56
Jón Nordal er látinn Jón Nordal tónskáld og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík andaðist í gær, 5. desember, 98 ára að aldri. Hann var meðal ástsælustu tónskálda þjóðarinnar og einn helsti forystumaður í uppbyggingu tónlistarlífs á Íslandi á síðastliðinni öld. Innlent 6. desember 2024 06:37
Birgitta prinsessa er látin Birgitta prinsessa af Svíþjóð er látin, 87 ára að aldri. Hún var eldri systir Karls Svíakonungs og lést á Mallorca þar sem hún hefur dvalið undanfarin ár. Lífið 4. desember 2024 15:27
Hjólreiðamaður lést á nítján ára afmælisdaginn sinn Belgíski hjólreiðamaðurinn Tuur Hancke lést á nítján ára afmælisdaginn sinn, aðeins nokkrum klukkutímum eftir að læknar sögðu að hann væri með flensu. Sport 29. nóvember 2024 11:03
Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn Bandaríski leikstjórinn Jim Abrahams sem þekktastur er fyrir að hafa skrifað og leikstýrt grínmyndum á borð við Airplane! Police Squad! og Naked Gun er látinn. Hann var áttatíu ára gamall. Bíó og sjónvarp 27. nóvember 2024 15:02
John Prescott fallinn frá Breski stjórnmálamaðurinn John Prescott er látinn, 86 ára að aldri. Hann gegndi embætti aðstoðarforsætisráðherra Bretlands um tíu ára skeið, í stjórnartíð Tony Blair. Erlent 21. nóvember 2024 07:36
Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Ballettheimurinn syrgir nú einn helsta karlkynsballettdansara heims eftir að tilkynnt var um andlát hins 39 ára Vladimir Shklyarov. Menning 18. nóvember 2024 08:01
Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Jón Guðmundsson, fasteignasali og eigandi Fasteignamarkaðsins, er látinn 82 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Jóhönnu Hreinsdóttur og fjögur börn. Innlent 17. nóvember 2024 21:34
Nammimaðurinn er allur Bandaríski leikarinn Tony Todd er látinn, 69 ára að aldri. Todd er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Nammimaðurinn í hryllingsmyndunum Candyman. Lífið 9. nóvember 2024 15:02
Villi Valli fallinn frá Villi Valli – Vilberg Valdal Vilbergsson, nikkari og rakari er fallinn frá. Hann náði 94 ára aldri. Villi Valli var alla sína tíð mikilvægur þáttur í tónlistarlífi Vestfjarða. Innlent 8. nóvember 2024 10:18
Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára. Innlent 4. nóvember 2024 14:55
Quincy Jones er látinn Bandaríski tónlistarmaðurinn og framleiðandinn Quincy Jones er látinn, 91 árs að aldri. Lífið 4. nóvember 2024 08:05
Formaður danska handknattleikssambandsins bráðkvaddur Morten Stig Christensen, formaður danska handknattleikssambandsins, varð bráðkvaddur í morgun. Hann var 65 ára. Handbolti 1. nóvember 2024 23:17
Nítján ára skíðakona látin eftir slys á æfingu Ítalska skíðakonan Matilde Lorenzi lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í gær eftir að hafa fallið illa á æfingu. Sport 30. október 2024 06:33
Teri Garr látin Leik- og söngkonan Teri Garr er látin 79 ára að aldri. Hún greindist með MS sjúkdóminn árið 2002 og árið 2006 fékk hún blóðtappa. Teri var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir hlutverk sitt í myndinni Tootsie. Þá lék hún einnig í Young Frankenstein og lék móður Phoebe í þáttaröðinni Friends. Lífið 29. október 2024 19:22
Ulf Pilgaard er látinn Danski leikarinn Ulf Pilgaard er látinn, 83 ára að aldri, eftir snörp veikindi. Hann gerði garðinn helst frægan fyrir leik í kvikmyndaflokknum Næturvaktinni og fyrir þátttöku í Sirkusrevíunni í fjóra áratugi. Bíó og sjónvarp 29. október 2024 08:32
Tarsan-leikari látinn Bandaríski leikarinn Ron Ely, sem þekktastur er fyrir að hafa túlkað Tarsan í samnefndum sjónvarpsþáttum undir lok sjöunda áratugarins, er látinn, 86 ára að aldri. Lífið 24. október 2024 08:02