Formaður danskra Íhaldsmanna látinn Søren Pape Poulsen, formaður Íhaldsflokksins í Danmörku og fyrrverandi dómsmálaráðherra er látinn. Erlent 2. mars 2024 16:37
Tískudrottingin Iris Apfel látin Bandaríski innanhússhönnuðurinn og tískugoðsögnin Iris Apfel er látin. Hún var 102 ára. Tíska og hönnun 2. mars 2024 10:00
Fyrrverandi forsætisráðherra Kanada látinn Brian Mulroney, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, er látinn, 84 ára að aldri. Hann var um árabil formaður kanadíska Íhaldsflokksins og gegndi embætti forsætisráðherra á árunum 1984 til 1993. Erlent 1. mars 2024 09:07
Hairy Bikers-stjarna látin Breski sjónvarpsmaðurinn Dave Myers, sem þekktastur er fyrir að vera annar hluti tvíeykisins Loðnu bifhjólamennirnir, eða Hairy Bikers, er látinn. Hann lést af völdum krabbameins, 66 ára gamall. Lífið 29. febrúar 2024 11:53
Richard Lewis er látinn Leikarinn og grínistinn Richard Lewis, sem er hvað þekktastur þessa dagana fyrir leik sinn í þáttunum Curb Your Enthusiasm, er látinn. Hann var 76 ára gamall og er sagður hafa látist á heimili sínu í Los Angeles í gærkvöldi eftir að hann fékk hjartaáfall. Lífið 28. febrúar 2024 21:11
Sonur Forrest Gump stjörnu látinn úr krabbameini Bandaríski leikarinn Gary Sinise sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Forrest Gump hefur misst son sinn, hinn 33 ára gamla McCanna Anthony Sinise, úr krabbameini. Lífið 28. febrúar 2024 10:38
Þjóðin grætur biskup sinn Heilar tvær opnur og ein síða til eru lagðar undir minningarorð um Karl Sigurbjörnsson biskup í Morgunblaði dagsins en Karl var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju klukkan 13. Fá dæmi eru um annað eins. Á samfélagsmiðlum minnast margir Karls biskups með hlýju. Innlent 26. febrúar 2024 14:39
Emils- og Línu-tónskáldið Georg Riedel látið Sænska tónskáldið og djasstónlistarmaðurinn Georg Riedel, sem þekktastur er fyrir að hafa samið tónlistina í þáttunum og myndunum um Línu langsokk og Emil í Kattholti, er látinn. Hann varð níræður að aldri. Menning 26. febrúar 2024 07:52
Star Trek-stjarna látin Kanadíski leikarinn Kenneth Mitchell frægur fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Stark Trek: Discovery er látinn eftir fimm ára baráttu við blandaða hreyfitaugahrörnun. Bíó og sjónvarp 25. febrúar 2024 20:09
Áföllin dynja áfram yfir hlaupasamfélag Keníu Áföllin dynja áfram yfir hlaupasamfélag Keníu. Maraþonhlauparinn Kipsang Kipkorir hneig niður eftir að hafa lokið fjallahlaupi í Kamerún í gær. Sport 25. febrúar 2024 14:17
Kalli í Pelsinum látinn Athafnamaðurinn Karl J. Steingrímsson er látinn. Karl, sem var gjarnan kenndur við verslunina Pelsinn, lést síðastliðinn fimmtudag, 22. febrúar, 76 ára að aldri. Innlent 24. febrúar 2024 10:43
Dýri Guðmundsson er látinn Dýri Guðmundsson endurskoðandi, fyrrverandi knattspyrnukappi og gítarleikari er látinn. Hann fæddist 1951 en lést eftir veikindi þriðjudagskvöldið 20. febrúar. Fjölmargir samferðamenn Dýra hvort sem er vinir eða ættingjar hafa minnst hans á samfélagsmiðlum. Innlent 22. febrúar 2024 09:16
The Office stjarnan Ewen Macintosh látinn Ewen Macintosh breski leikarinn sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Keith í bresku grínþáttunum The Office er látinn. Hann var fimmtíu ára gamall. Lífið 21. febrúar 2024 10:19
Hildur Hermóðsdóttir er látin Hildur Hermóðsdóttir, kennari og bókaútgefandi, er látin, 73 ára að aldri. Menning 21. febrúar 2024 08:49
Andreas Brehme látinn Þýska knattspyrnugoðsögin Andreas Brehme er látinn en hann varð aðeins 63 ára gamall. Fótbolti 20. febrúar 2024 08:51
Navalní sagður hafa dáið í fangelsi Alexei Navalní, einn helsti pólitíski andstæðingur Vladimírs Pútin, forseta Rússlands er dáinn. Hann lést í fangelsi og er hann sagður hafa dáið vegna veikinda. Erlent 16. febrúar 2024 11:29
Gunnar J. Árnason er látinn Gunnar J. Árnason heimspekingur í listum og fagurfræði lést laugardaginn 10. febrúar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum. Gunnar var fæddur í Reykjavík 27. nóvember 1959. Foreldrar hans eru Árni Kristinsson læknir (f. 1935) og Erla Cortes ritari (f. 1939 d. 2006). Gunnar ólst upp á Englandi fyrstu ár ævi sinnar en fluttist síðar í vesturbæ Reykjavíkur. Innlent 13. febrúar 2024 22:41
Lést á fyrsta degi í nýju starfi Norski fótboltaheimurinn syrgir nú Mounir Hamoud sem lést af völdum hjartaáfalls í gærmorgun, 39 ára að aldri. Fótbolti 13. febrúar 2024 11:31
Minnast hlýju og glettni mannsins með risastóra hjartað Fjölmargir minnast Sr. Karls Sigurbjörnssonar biskups sem lést í gærmorgun 77 ára eftir baráttu við krabbamein. Fólk minnist manns með risastórt hjarta, bros á vör og húmorinn í farteskinu. Innlent 13. febrúar 2024 11:11
Karl Sigurbjörnsson biskup er látinn Karl Sigurbjörnsson biskup lést í morgun á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík en hann var 77 ára að aldri. Innlent 12. febrúar 2024 16:40
Hjalti Einarsson, stofnandi VHE, er látinn Hjalti Einarsson vélvirki er látinn, 85 ára að aldri. Hjalti er kunnastur fyrir að hafa byggt upp VHE, eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins. Þá varð hann fyrir þeirri lífsreynslu níu ára gamall á bænum Reyðará á Siglunesi að vera lykilvitni í rannsókn mannskæðasta flugslyss á Íslandi en hann er talinn vera sá síðasti sem sá á lofti flugvélina sem fórst í Héðinsfirði með 25 manns árið 1947. Innlent 12. febrúar 2024 13:50
Lést fjórum mánuðum eftir að hafa sett heimsmet Kelvin Kiptum, heimsmethafi í maraþonhlaupi, lést í bílslysi í gær. Hann var 24 ára. Sport 12. febrúar 2024 07:31
Unnur minnist unnusta síns Lúðvíks sem hvarf í sprungu Minningarathöfn um Lúðvík Pétursson var haldin í Langholtskirkju í dag, föstudaginn 9. febrúar, en hann týndist í Grindavík 10. janúar sl. þegar hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Innlent 9. febrúar 2024 17:00
Össur Kristinsson er látinn Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össurar, er látinn, áttræður að aldri. Hann lést á Landspítalanum síðastliðinn þriðjudag. Viðskipti innlent 9. febrúar 2024 07:14
Fyrrverandi forseti Síle lést í þyrluslysi Sebastian Pinera, fyrrverandi forseti Síle, lést í dag þegar þyrla sem hann ferðaðist með féll ofan í stöðuvatn í suðurhluta Síle. Pinera var 74 ára gamall. Erlent 6. febrúar 2024 23:55
Fyrrverandi forsætisráðherra Írlands látinn John Bruton, fyrrverandi forsætisráðherra Írlands, er látinn, 76 ára að aldri. Hann gegndi embætti forsætisráðherra (Taoiseach) á árunum 1994 til 1997. Erlent 6. febrúar 2024 10:50
Kántrísöngvarinn Toby Keith látinn Bandaríski kántrísöngvarinn Toby Keith er látinn, 62 ára að aldri. Lífið 6. febrúar 2024 10:12
Sigurður Hjartarson er látinn Sigurður Hjartarson, fyrrverandi menntaskólakennari og stofnandi Hins íslenzka reðasafns, er látinn 82 ára að aldri. Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir rithöfundur og dóttir Sigurðar greinir frá andláti hans á Facebook. Innlent 5. febrúar 2024 02:44
Forseti bendlaður við Samherjamálið látinn Hage Geingob forseti Namibíu lést úr krabbameini í dag á sjúkrahúsi í Windhoek, höfuðborg landsins. Hann var 82 ára gamall. Erlent 4. febrúar 2024 18:56
Carl Weathers er látinn Bandaríski leikarinn Carl Weathers, sem var þekktastur fyrir að leika Apollo Creed í myndunum um boxarann Rocky, er látinn 76 ára að aldri. Lífið 2. febrúar 2024 20:10