Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til David Ellison, forstjóri Paramount Skydance segir að þegar kaupin á Warner Bros. Discovery ganga í gegn, muni fyrirtækið fá nafnið Skydance. Þannig munu vörumerkin Paramount og Warner heyra sögunni til, eftir að hafa verið áhrifamikil vörumerki í Hollywood í marga áratugi. Viðskipti erlent 2.10.2026 16:27
Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikarinn Michael Douglas hefur loksins gengist við því að hafa átt í leynilegu ástarsambandi með mótleikkonu sinni, Kathleen Turner, þegar þau tóku upp stórmyndina Romancing The Stone í Mexíkó árið 1984. Þau hafa alla tíð neitað fyrir sambandið sem Douglas ljóstrar nú upp um í nýrri ævisögu sinni. Bíó og sjónvarp 2.10.2026 16:04
G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum. Viðskipti erlent 2.10.2026 15:14
Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum. Erlent 1. október 2026 16:01
Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Rapparinn Lil Wayne hefur staðfest að hann sé trúlofaður 23 ára áhrifavaldinum Madison Cannon en 21 ár skilur parið að. Dægurmálamiðlar fjölluðu um trúlofunina fyrr á árinu en rapparinn þvertók fyrir það í sumar og sagði leiðir hafa skilið hjá parinu. Lífið 1. október 2026 12:13
Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Ríkisstjórn Donalds Trump er að sniðganga nokkra mikilvæga bandamenn Bandaríkjanna og evrópsk hergagnafyrirtæki fyrir fund sem halda á í mánuðinum. Fundurinn á að snúast um framtíð Atlantshafsbandalagsins en mörgum af þeim aðildarríkjum sem verja hvað mestu til varnarmála hefur ekki verið boðið á hann. Erlent 1. október 2026 11:14
Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það. Erlent 1. október 2026 08:07
Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Bresk stjórnvöld segja skýrar vísbendingar um að Íranir eigi hlut að máli í atvikinu við RAF Fairford-herstöðina á Englandi, sem leiddi til þess að fimm ungir menn voru handteknir og þrír bílar gerðir upptækir, en grunur lék á um ætluð hryðjuverk. Erlent 1. október 2026 07:21
Á spítala eftir misheppnaða aftöku Tilraun til aftöku bandarískrar konu, sem var dæmd til dauða í Tennessee fyrir manndráp árið 1996, mistókst í gærkvöldi þegar hún lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk. Erlent 1. október 2026 07:06
Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk. Erlent 30. september 2026 11:01
Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Einn af mönnunum fimm sem handteknir voru nálægt RAF Fairford-herstöðinni í Bretlandi snemma á sunnudagsmorgun hringdi sjálfur í neyðarlínuna um klukkustund áður en bóndakonan hringdi vegna mannanna. Þetta er samkvæmt heimildum BBC. Erlent 30. september 2026 06:33
Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Leit í þremur sendiferðabílum sem voru nærri RAF Fairford-herstöðinni í Englandi er lokið en þar fannst nokkuð magn af bensíni en engin sprengiefni eins og talið var. Fimm breskum ríkisborgurum var í gær sleppt úr haldi en þeir höfðu verið handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi lýst yfir við herstöðina í kjölfarið. Erlent 29. september 2026 18:49
Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Saksóknarar í Plymouth-sýslu í Bandaríkjunum hafa ekki ákveðið enn hvort þeir ætli að reyna að rétta aftur yfir. Clancy mætti í dag aftur í dómsal í fyrsta sinn síðan dómari sleit réttarhöldunum gegn henni án niðurstöðu þar sem kviðdómendur komust ekki að einróma niðurstöðu um það hvort hún væri sakhæf fyrir að myrða þrjú börn sín. Erlent 29. september 2026 16:54
Enn lítið um svör í Englandi Yfirvöld í Bretlandi hafa enn litlu svarað um handtöku fimm manna nærri mikilvægri herstöð í Englandi á sunnudaginn. Mönnunum var sleppt í gær og hefur það vakið mikla furðu, þar sem þeir voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi var lýst yfir við herstöðina, þar sem enn má sjá mikinn viðbúnað. Erlent 29. september 2026 14:08
Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Bandarískir hermenn munu á morgun fara frá síðustu herstöðvum sínum í Írak, eftir rúmlega tveggja áratuga viðveru þar, með hléum. Íranir og bandamenn þeirra, sem njóta mikilla áhrifa í Írak þessa dagana, líta á brottflutninginn sem sigur. Erlent 29. september 2026 12:16
Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Öllum starfsmönnum Netapp á Íslandi hefur verið sagt upp en Vísir greindi frá því upphafi mánaðarins að starfsemi fyrirtækisins hér á landi væri í uppnámi og óvissa um störf. Sjötíu og fimm starfsmenn störfuðu á skrifstofu Netapp á Íslandi. Viðskipti innlent 29. september 2026 10:58
Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands kallaði saman ráðherra sína til fundar í gær vegna alvarlegs atviks nærri bandarískri herstöð í landinu í fyrradag, þar sem fimm menn voru handteknir grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk og fyrir að brjóta lög um meðferð sprengiefna. Erlent 29. september 2026 06:33
Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Yfirmaður leikjaupplifunar hjá bandaríska fyrirtækinu The New York Times var skotinn til bana í Kaliforníu en tengdaforeldrar hans eru grunaðir um morðið. Þau voru handtekin nærri vettvangi morðsins örfáum mínútum eftir að vitni heyrðu skothvelli og sáu mann falla til jarðar. Erlent 28. september 2026 23:37
Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Lögreglan í Bretlandi hefur sleppt úr haldi fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið lög um sprengiefni og eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverks. Mennirnir voru handteknir nærri stórri breskri herstöð á sunnudaginn en verður sleppt gegn tryggingu en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands segir að þeir verði undir nánu eftirliti og takmarkanir settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra. Erlent 28. september 2026 15:23
Starship á sporbraut í fyrsta sinn Starfsmönnum SpaceX hefur tekist að koma geimfarinu Starship á sporbraut í fyrsta sinn. Geimfarið hefur þó nokkrum sinnum verið sent kringum jörðina en aldrei eins hátt og það fór í dag. Þar var geimskipið notað til að koma 26 nýjum Starlink-gervihnöttum á braut um jörðu. Erlent 28. september 2026 14:38
Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Mennirnir fimm sem handteknir voru vegna gruns um að þeir væru að skipuleggja hryðjuverkaárás á breska herstöð á sunnudaginn eru allir breskir ríkisborgarar. Þeir búa allir í mismunandi hlutum Lundúna og eru á bilinu 23 til 25 ára gamlir. Erlent 28. september 2026 12:19
Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Donald Trump spurði Xi Jinping hvort hann hefði áhuga á því að kaupa bandarísk vopn og hergögn. Þessari spurningu varpaði Trump fram á fundi forsetanna í Washington DC í síðustu viku og var markmiðið að réttlæta yfirstandandi vopnasölu til Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til. Erlent 28. september 2026 11:10
Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. Erlent 28. september 2026 10:58
Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Bandaríkjastjórn ætlar að draga úr kröfum á bílaframleiðendur um eldsneytissparneytni. Nýir bílar munu þá bæði brenna meira jarðefnaeldsneyti og menga meira. Erlent 28. september 2026 09:11