Leikarar í Hollywood komnir í verkfall Stjórn stéttarfélags leikara í Hollywood (SAG) samþykkti í kvöld að leggja niður störf á miðnætti. Verkfallið nær til um 160 þúsund leikara sem hafa undanfarið reynt að ná nýjum samningi, fyrir leikara í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, í höfn. Erlent 13. júlí 2023 23:01
Biden segir Bandaríkin og Norðurlönd deila sögu og framtíðarsýn Forsætisráðherra segir leiðtoga Norðurlandanna hafa átt mjög frjálslegan og opinn fund með forseta Bandaríkjanna í Helsinki í dag. Auk öryggismála hafi meðal annars verið rætt um jafnréttis- og loftslagsmál ásamt málefnum Norðurslóða. Bandaríkjaforseti segir ríkin deila sameiginlegri sýn um frelsi og samvinnu. Erlent 13. júlí 2023 19:20
„Ég vona að ég muni deyja í miðju lagi“ Tónlistarkonan Dolly Parton hefur engan áhuga á því að setjast í helgan stein þrátt fyrir að vera orðin sjötíu og sjö ára gömul. Hún gaf nýlega út nýtt lag og von er á nýrri plötu frá henni á næstunni. Lífið 13. júlí 2023 14:09
Reyna aftur að stöðva samruna Microsoft og Activision Samkeppniseftirlit Bandaríkjanna áfrýjaði í gær úrskurði dómara um að Microsoft mætti kaupa leikjafyrirtækið Activision Blizzard. Samruninn yrði sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins. Viðskipti erlent 13. júlí 2023 11:59
Stefnir í verkfall Hollywood leikara Verkalýðsfélag Hollywood leikara hefur lagt til að gripið verði til verkfallsaðgerða eftir að samningsfrestur rann út á miðnætti. Ef af verður, verður það í fyrsta sinn sem leikarar og handritshöfundar í Hollywood verða í verkfalli á sama tíma í sextíu ár. Erlent 13. júlí 2023 08:58
Sakar Jonah Hill um að hafa troðið tungunni á sér upp í hana Alexa Nikolas, leikkona og Nickelodeon stjarna, sakar bandaríska leikarann Jonah Hill um að hafa troðið tungunni á sér upp í hana þegar hún var sextán ára gömul. Lífið 12. júlí 2023 15:36
Fá grænt ljós á stærsta samruna leikjaiðnaðarins Microsoft fékk í gær grænt ljós á að ganga frá 69 milljarða dala kaupum fyrirtækisins á leikjarisanum Activision Blizzard. Samruninn verður sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins og með kaupunum mun Microsoft koma höndum yfir vinsæla tölvuleiki eins og Call of Duty seríuna, Diablo, Overwatch, World of Warcraft og Candy Crush. Viðskipti erlent 12. júlí 2023 10:40
Madonna á batavegi Tónlistarkonan Madonna var flutt á gjörgæslu í lok síðasta mánaðar vegna alvarlegrar bakteríusýkingar. Hún er núna á batavegi og er strax byrjuð að endurskipuleggja tónleikaferðalagið sitt. Lífið 12. júlí 2023 10:37
Einn fylgjenda Manson látinn laus eftir 53 ár í fangelsi Leslie Van Houten hefur verið látið laus úr fangelsi eftir að hafa afplánað 53 ára dóm fyrir aðild sína að morðinu á Leno og Rosemary LaBianca. Van Houten var 19 ára gömul þegar hún tók þátt í morðunum sem einn af fylgjendum Charles Manson. Erlent 12. júlí 2023 07:50
„Hjartsláttarfrumvarp“ samþykkt í Iowa Ný lög hafa verið samþykkt í Iowa í Bandaríkjunum sem banna þungunarrof í nær öllum tilvikum eftir að hjartsláttur finnst, sem er yfirleitt eftir sex vikna meðgöngu, fyrir þann tíma sem flestar konur vita að þær eru óléttar. Erlent 12. júlí 2023 07:02
Þarf ekki að borga tugi milljóna í fundarlaun Söng- og leikkonan Lady Gaga þarf ekki að greiða konu hálfa milljón dala í fundarlaun fyrir að skila hundum hennar. Konan, sem hefur verið dæmd vegna hundaránsins, fór í mál gegn Gaga og hélt því fram að hún ætti rétt á peningunum, þar sem söngkonan hefði heitið því að spyrja engra spurninga ef hún fengi hundana aftur. Erlent 11. júlí 2023 11:16
Vill fresta réttarhöldum fram yfir kosningar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á að réttarhöldum yfir honum vegna leynilegra skjala sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu verði frestað þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Þeir segja óréttlátt að rétta yfir Trump á þessu ári, þar sem Trump verði upptekinn við kosningabaráttu og vegna annarra sakamála sem að honum beinast. Erlent 11. júlí 2023 09:14
Fox enn í vanda vegna samsæriskenninga Carlson Fox News á enn yfir höfði sér mögulega rándýrt mál vegna sjónvarpsmannsins Tucker Carlson, sem miðillinn lét fjúka fyrr á árinu. Málið varðar eina af samsæriskenningum Carlson, sem hann hefur haldið áfram að halda frammi í nýjum hlaðvarpsþætti sínum. Erlent 11. júlí 2023 07:57
Nassar stunginn tíu sinnum í fangelsinu í Flórída Larry Nassar, fyrrverandi læknir landsliðs Bandaríkjanna í fimleikum, var stunginn að minnsta kosti tíu sinnum í fangelsinu þar sem hann dvelur. Nassar var dæmdur í 175 ára fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega á liðsmönnum landsliðsins. Erlent 11. júlí 2023 07:22
Metár í fjölda ferðamanna handan við hornið Ferðamálastjóri segir að metár í fjölda ferðamanna hérlendis verði líklega slegið á næsta ári. Fjöldi brottfara erlendra ferðamanna frá Íslandi í júní síðastliðnum voru um 233 þúsund sem er álíka mikið og metárið 2018. Innlent 10. júlí 2023 13:09
Biden og Sunak funda um mögulega aðild Úkraínu að Nató Joe Biden Bandaríkjaforseti og Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, munu funda í Lundúnum í dag þar sem efsta mál á dagskrá verður ósk Úkraínumanna um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 10. júlí 2023 07:01
Ók um á vespu og skaut fólk af handahófi Lögreglan í New York segist hafa handtekið mann sem ók um götur borgarinnar í gær á vespu og skaut á fólk af handahófi. Hann skaut einn 87 ára gamlan mann til bana og særði þrjá aðra. Erlent 9. júlí 2023 14:19
Verja klasasprengjusendingar til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði í gær þá ákvörðun sína að senda klasasprengjur til Úkraínu. Hann sagði ákvörðunina erfiða en vopnin eru ólögleg í mörgum löndum heims. Erlent 8. júlí 2023 14:13
Greip ekki í Wembanyama og var ekki slegin í gólfið Tónlistarkonan Britney Spears greip ekki í körfuboltamanninn Victor Wembanyama, heldur potaði í hann til að ná athygli hans. Þá var hún ekki slegin í jörðina af öryggisverði hans, heldur sló hann í hendi hennar en í leiðinni fór hendi hans í andlit hennar eða hún sló sjálfa sig í andlitið. Lífið 8. júlí 2023 08:49
Íslensk kona stefnir Boston borg: „Hún óttast stöðugt að vera sett í fangelsi“ Íslensk kona sem búsett er í Boston hefur höfðað skaðabótamál á hendur borginni, borgarstjóra og fleiri aðilum fyrir óréttmæta lögsókn sem höfðuð var á hendur henni vegna þjófnaðarbrots á seinasta ári. Heldur konan því fram að brotið hafi verið á stjórnarskrárbundnum réttindum hennar á margvíslegan hátt og fer hún fram á þrjár og hálfa milljón dollara í bætur. Innlent 8. júlí 2023 08:06
Bjargaði kúm úr logandi hlöðu Lögreglumaður í Wisconsin ríki í Bandaríkjunum bjargaði á dögunum þremur kúm úr logandi hlöðu. Næturvakt hans var að ljúka þegar hann kom auga á reyk sem kom úr hlöðu á bóndabæ. Hann mætti á vettvang og fór í hlöðuna þar sem hann fann kýrnar fastar. Erlent 7. júlí 2023 18:56
Biden sendir Úkraínumönnum klasasprengjur Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur samþykkt að sjá Úkraínumönnum fyrir klasasprengjum, sem eru bannaðar í flestum ríkjum heims. Aðstoðin verður veitt á grundvelli undanþáguákvæðis vegna þjóðaröryggis. Erlent 7. júlí 2023 12:19
Saksóknarar í leyniskjalamáli Trump fá hótanir Hægriöfgasinnaðir stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hafa hótað saksóknurum sem sækja hann til saka fyrir meðferð sína á leyniskjölum. Þeir hafa meðal annars birt nöfn þeirra og persónuupplýsingar á netinu. Erlent 7. júlí 2023 10:43
Bandaríkin eyða síðustu efnavopnum sínum Flugskeyti með saríngasi sem unnið er að því að eyða á herstöð í Kentucky eru síðustu efnavopn Bandaríkjanna. Síðustu birgðunum verður eytt fyrir lok september í samræmi við efnavopnasáttmálans sem 193 ríki skrifuðu undir árið 1997. Erlent 7. júlí 2023 09:01
Twitter hótar lögsókn Samfélagsmiðillinn Twitter hefur hótað samfélagsmiðlafyrirtækinu Meta lögsókn vegna nýs forrits sem kallast Threads eða „Þræðir“. Segir Twitter að uppbygging miðilsins gangi í berhögg við höfundarrétt þess. Viðskipti erlent 7. júlí 2023 07:39
Sneri aftur fimmtíu árum eftir getnað Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson heimsótti á þriðjudag bandaríska smábæinn Sterling í Colorado, nákvæmlega fimmtíu árum eftir að hann var getinn á þeim stað. Lífið 6. júlí 2023 23:01
Britney slegin í gólfið af öryggisverði Wembanyama Britney Spears var slegin utan undir af öryggisverði með þeim afleiðingum að hún féll í jörðina þegar hún leitaðist eftir mynd með körfuboltamanninum Victor Wembanyama í Las Vegas í gær. Lífið 6. júlí 2023 18:11
Dagur og Trudeau biðla til Taylor Swift Tónlistarkonan Taylor Swift hefur að undanförnu verið á gífurlega vinsælu tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði tilkynnti Swift að stefna ferðalagsins væri sett út um allan heim en þó ekki til Íslands. Borgarstjóri Reykjavíkur hefur lagt sitt af mörkum í að sannfæra stjörnuna um að gera sér ferð til höfuðborgar Íslands. Tónlist 6. júlí 2023 16:15
Handtekinn við heimili Obama daginn sem Trump birti heimilisfang Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn nærri heimili Baracks Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sama dag og Donald Trump birti það sem hann sagði heimilisfang Obama í síðasta mánuði. Skotvopn og hundruð skotfæra fundust í sendiferðabíl mannsins. Erlent 6. júlí 2023 14:41
Söngkonan Coco Lee er látin Bandaríska söngkonan og leikkonan Coco Lee, sem fæddist í Hong Kong og naut mikilla vinsælda í Asíu, er látin, 48 ára að aldri. Lífið 6. júlí 2023 08:21