Biden með fingurgómana á pálmanum: hvað gerist næst? Flestir virðast sammála um að það sé aðeins tímaspursmál þar til einhver stóru miðlanna í Bandaríkjunum ríður á vaðið og lýsir Biden sigurvegara í einhverju þeirra ríkja þar sem enn er talið og þar með kjörinn forseta. Erlent 6. nóvember 2020 17:54
Twitter bannar Bannon sem kallar eftir afhöfðun Fauci Samfélagsmiðillinn Twitter hefur lokað á Steve Bannon, fyrrum ráðgjafa Donald Trump og ritstjóra Breitbart, eftir að Bannon kallaði eftir afhöfðun Anthony Fauci og Christopher Wray. Ummælin lét Bannon falla í hlaðvarpinu War Room, sem var dreift á samfélagsmiðlum. Erlent 6. nóvember 2020 12:59
Repúblikanaflokkurinn klofinn vegna ásakana Trump Nokkrir leiðtogar Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi tóku undir stoðlausar ásakanir Donalds Trump forseta um kosningasvik eftir ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Einn fyrrverandi forsetaframbjóðandi lýsti yfirlýsingum forsetans aftur á móti sem „hættulegum“. Erlent 6. nóvember 2020 11:52
Hvað gera AP og Fox ef Biden tekur Georgíu? Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, hefur nú naumt forskot á Donald Trump í Georgíu en aðeins munar nokkur hundruð atkvæðum á frambjóðendunum. Forsetinn má ekki við því að tapa Georgíu og þarf sömuleiðis að tryggja sér kjörmenn Pennsylvaníu til að eiga möguleika á endurkjöri. Erlent 6. nóvember 2020 11:03
120 þúsund smit staðfest í Bandaríkjunum í gær Fjöldi þeirra sem greindist með kórónuveiruna í Bandaríkjunum í gær hefur aldrei verið meiri, en 120 þúsund smit voru staðfest. Erlent 6. nóvember 2020 07:49
Pennsylvanía gæti gert gæfumuninn fyrir Biden Enn er ekki ljóst hver náði kjöri sem forseti Bandaríkjanna í kosningunum sem fram fóru á þriðjudag. Erlent 6. nóvember 2020 06:51
„Þau eru að reyna að stela kosningunum“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því ranglega fram í ávarpi sínu í Hvíta húsinu í kvöld að hann stæði uppi sem sigurvegari forsetakosninganna ef aðeins „lögleg“ atkvæði væru talin. Erlent 6. nóvember 2020 00:25
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna undirbýr afsögn Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skrifað uppsagnarbréf að sögn þriggja háttsettra starfsmanna ráðuneytisins. Erlent 5. nóvember 2020 22:29
Telja líklegt að Trump bjóði sig fram 2024 Svo gæti farið að Donald Trump Bandaríkjaforseti bjóði sig fram í forsetakosningum í Bandaríkjunum eftir fjögur ár, tapi hann í kosningunum nú. Erlent 5. nóvember 2020 21:37
Heitir því að kæra úrslit í Biden-ríkjum Donald Trump, Bandaríkjaforseti, heitir því að höfða dómsmál vegna forsetakosninganna í vikunni á grundvelli meintra kosningasvika. Erlent 5. nóvember 2020 18:41
Guðlaugur Þór fundaði með Pompeo Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fundaði með Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fjarfundi í dag. Innlent 5. nóvember 2020 17:52
Fjögur ár af Trump á þremur mínútum Breski spjallþáttastjórnandinn James Corden fór yfir síðustu fjögur í forsetatíð Donalds Trump í vikunni í þætti sínum The Late Late Show with James Corden. Lífið 5. nóvember 2020 15:30
Ekki ljóst hvort að málsóknir Trump breyti úrslitum Dómsmál sem repúblikanar og forsetaframboð Donalds Trump hafa höfðað í fjórum lykilríkjum munu ekki endilega breyta niðurstöðum þar. Málin verða rekin fyrir ríkisdómstólum en ekki hæstarétti Bandaríkjanna, þvert á yfirlýsingar Trump. Erlent 5. nóvember 2020 15:29
Þriggja milljarða hús Jeffrey Epstein verður jafnað við jörðu Hús Jeffrey Epstein í Palm Beach í Bandaríkjunum verður rifið niður og verður í kjölfarið reist enn stærra hús þar í staðinn. Lífið 5. nóvember 2020 14:29
Back to the Future-leikkonan Elsa Raven er látin Bandaríska leikkonan Elsa Raven, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í Back to the Future, er látin, 91 árs að alsri. Lífið 5. nóvember 2020 12:03
Trump-liðar dreifa ósannindum og grafa undan kosningunum Þegar forskot Donald Trump hófst að dragast saman í mikilvægum ríkjum, með talningu utankjörfundaratkvæða, byrjuðu bandamenn forsetans, stuðningsmenn hans og jafnvel hann sjálfur, að dreifa ósannindum um kosningarnar. Erlent 5. nóvember 2020 11:37
Allt útlit fyrir að meirihlutinn haldi í öldungadeildinni Allt útlit er fyrir það repúblikanar muni áfram vera í meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings. Demókrötum hefur aðeins tekið að bæta við sig einu sæti en hefðu þurft þrjú til fjögur, eftir því hver sigrar forsetakosningunum, til að ná meirihluta. Erlent 5. nóvember 2020 09:06
Afar mjótt á munum í nokkrum lykilríkjum Enn er beðið eftir úrslitum í nokkrum lykilríkjum í bandarísku forsetakosningunum sem fram fóru á þriðjudag. Erlent 5. nóvember 2020 06:56
Siguryfirlýsingar Trumps í kvöld hafa enga þýðingu Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti sig í kvöld sigurvegara í Pennsylvaníu, Georgíu, Norður-Karólínu og Michigan. Erlent 4. nóvember 2020 23:47
„Lýðræðið er hjartsláttur þessarar þjóðar“ Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, ávarpaði bandarísku þjóðina rétt í þessu og sagðist þess viss að þegar talningu atkvæða yrði lokið stæði hann uppi sem sigurvegari. „Kæru landar. Í gær sannaðist enn og aftur að lýðræðið er hjartsláttur þessarar þjóðar,“ sagði Biden m.a. Erlent 4. nóvember 2020 21:37
Skömmin gæti skýrt skekkju í spám Eitt sem skýrt gæti skekkju í spám er einfaldlega það að kjósendur skammist sín fyrir að hafa kosið Trump. Innlent 4. nóvember 2020 20:29
Biden eygir kjörmennina 270 en Trump gæti enn sigrað Helstu miðlar hafa nú lýst Joe Biden sigurvegara forsetakosninganna í Wisconsin. Það þýðir að Biden nægir að halda naumu forskoti sínu í Michigan og Nevada til að ná 270 kjörmönnum, sem hann þarf til að tryggja sér Hvíta húsið. Erlent 4. nóvember 2020 20:24
Utanríkisráðherra segir Íslendinga ráða umfangi hernaðarstarfsemi í landinu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir ekki hægt að taka afstöðu til hugmynda Roberts Burke aðmíráls um framtíðarskipan varnarmála Bandaríkjamanna á Íslandi þar sem þær hafi aldrei verið lagðar fyrir íslensk stjórnvöld. Hins vegar séu hernaðarumsvif að aukast í norður Evrópu almennt. Innlent 4. nóvember 2020 19:37
Harka færist í leikinn - Trump krefst endurtalningar Donald Trump hefur farið mikinn á Twitter í dag og heldur því nú bæði fram að unnið sé að því að láta atkvæði hverfa og að á sama tíma séu að „finnast“ atkvæði til handa andstæðingi hans í forsetakosningunum, Joe Biden. Erlent 4. nóvember 2020 18:28
Biden leiðir í ríkjum sem samtals myndu tryggja 270 kjörmenn Joe Biden, frambjóðandi Demókrata í forsetakosningnum í Bandaríkjunum er nú með forystu í ríkjum sem samtals myndu tryggja honum 270 kjörmenn verði þetta endanleg niðurstaða kosninganna. Enn er þó langt í að hægt sé að skera úr um hvort hann eða Trump hafi borið sigur úr býtum Erlent 4. nóvember 2020 14:49
Fleiri leiðir til sigurs fyrir Joe Biden Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórnmálafræði, segir að staðan daginn eftir kosningar í Bandaríkjunum rími við það sem sérfræðingar í skoðanakönnunum vestan hafs, sem hún taki mark á, hafi sagt fyrir kosningar; að úrslitin myndi alls ekki ráðast strax morguninn eftir. Innlent 4. nóvember 2020 14:37
Setti sjö hundruð milljónir á Donald Trump Breskur maður veðjaði á sigur Donalds Trump í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Hann lagði fimm milljónir dollara undir eða sem svarar um sjö hundruð milljónum íslenskra króna. Lífið 4. nóvember 2020 14:27
Stjörnurnar bregðast við stöðunni: „Eins og að vera vakandi í eigin skurðaðgerð“ Enn er ekki ljóst hver vann forsetakosningarnar sem fram fóru í Bandaríkjunum í gær. Donald Trump forseti hefur þó lýst yfir sigri. Lífið 4. nóvember 2020 13:31
Afar mjótt á munum í fjölda ríkja Enn er ekki ljóst hver vann forsetakosningarnar sem fram fóru í Bandaríkjunum í gær. Donald Trump forseti hefur þó lýst yfir sigri. Erlent 4. nóvember 2020 12:28
Bandaríkin formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu Bandaríkin eru formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu frá og með deginum í dag. Samkomulagið er frá árinu 2015 og kveður á um skuldbindingar ríkja til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Erlent 4. nóvember 2020 08:43