
„Heimir er Eyjamaður í húð og hár og vill leggja sitt af mörkum“
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar jákvæður eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Víkingi Reykjavík.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar jákvæður eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Víkingi Reykjavík.
Víkingur Reykjavík vann sannfærandi útisigur á ÍBV 0-3. Gestirnir spiluðu afar vel í fyrri hálfleik sem skilaði tveimur mörkum. Eyjamenn voru töluvert betri í seinni hálfleik en nýttu ekki færin sín og Ari Sigurpálsson kláraði síðan leikinn er hann skoraði þriðja mark Víkings.
Fyrrum landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson er mættur til Vestmannaeyja. Heimir er á varamannabekk ÍBV í leik liðsins gegn Víkingi sem nú stendur yfir.
Besta deild karla í fótbolta hefst að nýju í kvöld eftir dágóða pásum sökum leikja íslenska A- og U-21 árs landsliðsins. Íslands- og bikarmeistarar Víkings heimsækja Vestmannaeyjar á meðan KR tekur á móti ÍA í Vesturbænum.
Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, óskaði eftir að áfrýja niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands í máli Omar Sowe. Hann var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að stuðst var við myndbandsupptöku af atviki sem átti sér stað í leik Leiknis Reykjavíkur og Breiðabliks.
Ingvar Jónsson, markvörður Víkings í Reykjavík, verður frá næstu vikurnar vegna sprungu í handarbeini. Hann missir af umspili Víkinga í Meistaradeild Evrópu.
Ef að Íslands- og bikarmeistarar Víkings komast í gegnum forkeppnina í Meistaradeild Evrópu í fótbolta bíður þeirra slagur við sænska meistaraliðið Malmö.
Ólafur H. Kristjánsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðabliki, staðfesti við Vísi að Blikar hefðu verið ósáttir við vinnubrögð KSÍ er leikmenn liðsins voru valdir í A-landslið karla í vikunni. Hann átti samtal við Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, og allir skildu sáttir.
Ísak Snær Þorvaldsson segir enn óljóst hvað hafi valdið því að hann endaði á spítala í gærkvöld með verki fyrir brjósti, eftir að hafa verið að spila með U21-landsliðinu í fótbolta.
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur dæmt Omar Sowe, framherja Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta, í tveggja leikja bann.
„Ég held það sé rosalega auðvelt að standa hérna og segja nei þegar manni hefur ekki verið boðið eitt né neitt,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks um orðróma þess efnis að hann væri að taka við danska úrvalsdeildarliðinu AGF.
Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV, og Hermann Hreiðarsson, þjálfari liðsins, hafa náð sáttum eftir að sauð upp úr á milli þeirra tveggja í leik liðsins í Bestu deild karla í fótbolta nýverið. Í kjölfarið var Guðjón Pétur settur í vikustraff en hann segir nú málið úr sögunni.
Heimir Hallgrímsson segir „leiðinlegt“ að lesa í fjölmiðlum orðróma þess efnis að hann sé að taka við knattspyrnuliði Vals af nafna sínum Heimi Guðjónssyni. Hann hafi ekki rætt við Val og stefni sjálfur enn á að þjálfa erlendis.
Aganefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur birt lista yfir þá leikmenn og þjálfara Bestu deildar karla sem verða í leikbanni er deildin hefst á nýjan leik um miðjan júní eftir landsleikjahlé. Markahæsti maður deildarinnar er þar á meðal.
Slæmt gengi Vals og möguleg þjálfarabreyting hjá liðinu var meðal þess sem var til umræðu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Þungavigtin.
„Það er erfitt að segja. Ég var ekki til staðar upp á Skaga en ég held í fyrsta lagi hafi hann ákveðið að nú væri kominn tími til að gera allt sem í hans valdi stæði til að vera í eins góðu formi og kostur er,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, um Ísak Snæ Þorvaldsson, markahæsta mann liðsins.
„Ég er bara óvenju góður, er bara með smá hausverk og nokkra sauma í andlitinu. Þetta fór betur en á horfðist þar sem ég fékk fréttir eftir myndatökuna að ég væri tvíbrotinn í andliti,“ sagði Sveinn Sigurður Jóhannesson, markvörður Vals, sem var borinn af velli eftir skelfilegan árekstur í leik gegn Fram á dögunum.
Markvörðurinn Brynjar Atli Bragason hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Breiðabliks sem heldur honum innan raða félagsins til ársins 2024.
Gengi FH í Bestu deild karla í fótbolta það sem af er sumri var til umræðu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Þungavigtin. Þar var farið yfir dræma stigasöfnun liðsins og þá staðreynd að Ólafur Jóhannesson, þjálfari liðsins væri á leið í sex daga golfferð.
„Nei, ég gerði það ekki. Ég skal vera fyrsti maður til að viðurkenna það. Þessi byrjun er stigalega og úrslitalega séð framar öllum vonum,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta, um ótrúlega byrjun liðsins sem hefur unnið alla sína leiki í sumar.
Áttunda umferð Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á sunnudag. Að henni lokinni gerði Stúkan upp fyrstu átta umferðir mótsins. Eðlilega var Breiðablik mikið í umræðunni þar sem liðið er með fullt hús stiga.
Nýliðar ÍBV hafa ekki átt sjö dagana sæla í Bestu deild karla í fótbolta til þessa. Liðið er með þrjú stig eftir átta umferðir og hefur ekki unnið leik. Það virðist lítill agi vera á liðinu sem hefur sankað að sér spjöldum og þá er Guðjón Pétur Lýðsson í vikustraffi.
Áttunda umferð Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á sunnudag. Guðmundur Benediktsson gerði umferðina upp í Stúkunni að leikjum loknum. Farið var yfir lið umferðarinnar, leikmann og mark umferðarinnar.
Hörður Magnússon, starfsmaður Viaplay og fyrrum leikmaður FH um árabil, segist ekki átta sig á hver stefna félagsins. Hann telur að „menn séu ekki alveg að dansa sama dans í Hafnafirðinum.“
Eggert Gunnþór Jónsson var í byrjunarliði FH í Bestu deildinni í fótbolta í gær þrátt fyrir að niðurfelling máls hans og Arons Einars Gunnarssonar, vegna nauðgunarkæru, hafi verið kærð.
Hinn 17 ára gamli Kristján Hjörvar Sigurkarlsson upplifði stóra stund í gær þegar hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val í Bestu deildinni í fótbolta. Það gerði hann í treyju merktri allt öðrum leikmanni.
„Óli Jó er okkar maður og ekki mikið meira um það að segja,“ segir Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH, um stöðu þjálfarans Ólafs Jóhannessonar nú þegar FH situr í 9. sæti Bestu deildar karla í fótbolta.
Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, telur að Heimir Guðjónsson verði látinn taka pokann sinn sem þjálfari Vals.
Það fór heil umferð fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær, sunnudag. Hér að neðan má sjá öll mörk umferðarinnar en af nægu er að taka. Viktor Örlygur Andrason reyndist hetja Íslands- og bikarmeistara Víkings gegn KA á meðan Ísak Snær Þorvaldsson getur ekki hætt að skora.
Matthías Vilhjámsson, fyrirliði FH, segir liðið vera stadda í brekku sem erfitt sé að vinna sig úr. Það hafi sýnt sig í kvöld að liðið skorti sjálfstraust.