

Besta deild karla
Leikirnir

Sjáðu mörkin, vítaklúðrið og rauðu spjöldin úr Pepsi-deildar leikjum dagsins
FH vann sinn fimmta leik í sumar er liðið lagði Grindavík af velli í Krikanum og Stjarnan er komin á toppinn eftir sigur í Keflavík.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Stjarnan 0-2 | Stjarnan á toppinn en Keflavík án sigurs á botninum
Stjarnan vann sjötta sigurinn í röð er þeir lögðu botnlið Keflavíkur með tveimur mörkum gegn engu. Keflavík er í bullandi vandræðum.

Guðlaugur: Á meðan tölfræðin segir að það sé möguleiki þá höfum við trúna
Guðlaugur Baldursson, þjálfari Keflavíkur hefur enn trú á að sínir menn geti haldið sér í deildinni, en liðið tapaði sínum áttunda leik á tímabilinu gegn Stjörnunni í kvöld.

Davíð Þór: Við erum bara þannig lið að við gefumst ekki upp
„Ég er mjög sáttur með þessi stig. Við þurftum að hafa mikið fyrir þeim á móti mjög góðu Grindavíkurliði,“ sagði fyrirliði FH-inga,

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Grindavík 2-1 | Tvö rauð spjöld og víti í sigri FH
FH-ingar eru aftur komnir á sigurbraut í Pepsi-deildinni eftir 2-1 sigur á Grindavík.

Óli Kalli með hjartnæma kveðju til Sigurbergs: „Besti vinur sem fótboltinn gaf mér“
Eins og Vísir greindi frá í gær er Sigurbergur Elísson hættur knattspyrnuiðkun, í bili að minnsta kosti, en Keflvíkingurinn greindi frá þessu í gær.

Umfjöllun: KR - Valur 1-1 | Tíu Valsmenn héldu út í Vesturbænum
KR og Valur gerðu jafntefli í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Valsmenn sitja enn á toppi Pepsi deildar karla en KR-ingar eru að dragast úr toppbaráttunni

Leik lokið: KA - Fjölnir 2-0 | KA lyfti sér upp úr fallsæti
KA komst upp úr fallsæti í Pepsi deild karla með 2-0 sigri á Fjölni á Akureyri

Björgvin í agabanni
Björgvin Stefánsson er ekki í leikmannahóp KR gegn Val í Pepsi deild karla í kvöld. Hann er í agabanni hjá félaginu.

Sigurbergur hættir í fótbolta: Keflavík græðir ekkert á mér spilandi 50 prósent
Sigurbergur Elísson, leikmaður Keflavíkur í Pepsi deild karla, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í dag.

KR með einn sigur í átta tilraunum gegn Óla Jó og Val
KR og Valur mætast í kvöld í stórleik 12. umferðar Pepsi-deildar karla en þessi tvö Reykjavíkurstórveldi mætast á Alvogenvellinum í vesturbæ Reykjavíkur.

Svona líta undanúrslit Mjólkurbikars karla og kvenna út
Dregið var í Mjólkurbikar karla og kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Elín M. Stefánsdóttir bóndi í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit og nýr stjórnarformaður MS, dró fyrir hönd MS.

Kjóstu um besta leikmann og mark júnímánaðar
Hver skoraði fallegasta mark Pepsi-deildar karla í júní og hver var besti leikmaður deildarinnar?

Fornspyrnan: Sagan af því þegar B-lið KR fór í bikarúrslit
Það eru örfá nöfn sem stinga í augun þegar listinn yfir lið sem keppt hafa í úrslitum í íslensku bikarkeppninni í fótbolta. Þar má sérstaklega nefna árið 1968.

Pepsimörkin: „Hann gat alveg fengið rautt fyrir þetta“
KA-maðurinn Aleksandar Trninic fékk gul spjöld með þrettán mínútna millibli á móti Breiðablik í 11. umferð Pepsi-deildar karla og skildi liðsfélaga sína í KA eftir tíu á móti ellefu í 40 mínútur.

Pepsimörkin: „Hann fær líka allan tímann í heiminum“
Hilmar Árni Halldórsson skoraði tvö glæsileg mörk í 3-2 sigri á FH í gær í stórleik 11. umferðar Pepsi-deildar karla. Sigurmarkið kom beint úr aukaspyrnu en Pepsimökrin fóru nánar yfir fyrra markið.

Pepsi-mörkin: Hversu svekktir verða KR-ingar þegar þeir sjá þetta?
KR-ingum líður örugglega ekkert betur þegar þeir skoða greiningu Pepsi-markanna á markinu sem kostaði KR-liðið öll stigin á sunnudagskvöldið.

Sjáðu sigurmarkið sem hélt spennu í titilbaráttunni
Hilmar Árni Halldórsson tryggði Stjörnunni þrjú stig í Kaplakrika með mögnuðu sigurmarki tveimur mínútum fyrir leikslok.

Færeyskur framherji til FH
Knattspyrnulið FH hefur fengið liðsstyrk frá danska úrvalsdeildarliðinu Midtjylland.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Stjarnan 2-3 | Hilmar Árni tryggði Stjörnusigur með glæsilegu marki
Stjarnan minnkaði forskot Vals á toppi Pepsi deildar karla niður í tvö stig með sigri á FH í frábærum leik í Kaplakrika. FH er hins vegar svo gott sem úr leik í toppbaráttunni eftir tapið.

Valsmenn á sama stað á sama tíma og í fyrra
Valsmenn unnu sinn sjöunda sigur í Pepsi-deildinni í gær og eru með fimm stiga forystu fyrir lokaleik umferðarinnar sem er á milli FH og Stjörnunnar í kvöld. Það er athyglisvert að bera árangur Valsliðsins í dag saman við árangur liðsins á sama tíma í fyrra.

Halda FH-ingar áfram að hefna?: 10-2 á móti Stjörnumönnum frá 2014
Stórleikur 11. umferðar Pepsi-deildar karla er jafnframt lokaleikur hennar og eini leikur kvöldsins. FH-ingar fá Stjörnumenn í heimsókn í Kaplakrikann klukkan átta í kvöld og er leikurinn einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir 2-1 Fylkir | Fjölnir stal stigunum
Fjölnismenn unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Fylki í hádramatískum leik í Grafarvoginum.

Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: KR 0-1 Víkingur | Bjarni Páll hetja Víkinga í mikilvægum sigri
Bjarni Páll Runólfsson skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Víkinga á KR í kvöld en með sigrinum eru Víkingar nú aðeins einu stigi á eftir KR.

Bjarni Páll: Þeir nýttu ekki sénsana og við refsuðum, þannig gera góðu liðin
Víkingur vann sterkan 1-0 sigur á KR í Vesturbænum í Pepsi deild karla í kvöld. Markaskorari Víkings, Bjarni Páll Runólfsson, var sáttur í leikslok.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík 0-2 Valur | Meistararnir ekki í vandræðum með Keflavík
Valur er komið í 24 stig á toppi Pepsi-deildarinnar eftir 2-0 sigur á Keflavík sem er ennþá án sigurs á botni deildarinnar.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - Grindavík 3-0 | Öruggur sigur Eyjamanna gegn slökum Grindvíkingum
ÍBV vann öruggan sigur á Grindavík í Eyjum í dag þegar liðin mættust í 11.umferð Pepsi-deildarinnar. Lokatölur urðu 3-0 og lyfta Eyjamenn sér úr fallsæti með sigrinum en Grindvíkingar sitja áfram í 4.sæti.

Umfjöllun, einkunnir og viðtöl: KA 0-0 Breiðablik | Markalaust á Greifavellinum
KA og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í 11.umferð Pepsi-deildar karla á Akureyri í dag.

Óli Stefán: Allt liðið var vont í dag
"Ég held að það sé alveg klárt að þetta var versta frammistaða okkar í sumar. Við vorum vondir á allan hátt, kraftlitlir og náðum varla að klukka góða Eyjamenn. Þetta var mjög vondur dagur í dag,“ sagði Óli Stefán Flóventsson þjálfari Grindavíkur eftir 3-0 tap gegn ÍBV í Eyjum í dag.

Logi: Það er enginn ánægður í deildinni
Pepsi deild karla fer aftur af stað um helgina eftir hlé vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta. Víkingur fær erfitt próf í fyrsta leik eftir hlé, þeir sækja KR heim á sunnudag.