

Bílar
Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.

Umferð hafi vaxið umfram fjárveitingar til viðhalds
Bergþóra Kristinsdóttir framkvæmdarstjóri þjónustusviðs segir fjárveitingar til viðhalds vega og malbikunar ekki hafa vaxið í hlutfalli við síaukið álag á vegakerfi landsins. Vegaklæðing sé notuð til að binda slitlag þegar malbikun væri æskilegri vegna umferðarálags. Bikblæðing á fjölförnum vegum getur valdið mikilli hálku.

Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans
Mótorhjólamaður segir að dæmi séu um að eigendur Tesla bíla slökkvi á skynjara í bílnum sem bjargaði lífi hans á dögunum. Litlu mátti muna að hann hafi fengið Teslu á sig á miklum hraða á gatnamótum Klettagarða og Sæbrautar og segir hann alveg ljóst að það hefði verið hans síðasta. Ekki er um að ræða fyrsta skiptið sem búnaðurinn kemst í fréttir hér á landi.

Átta ára með sinn eigin bíl á bílasýningu á Akureyri
Á bílasýningu Akureyrar í dag, þjóðhátíðardaginn, 17. júní verða til sýnis þrír nýsmíðaðir torfærubílar, og eru það þrjár kynslóðir sem sýna hver sinn bíl. Bílarnir heita Léttfeti, Snáðinn og Snúðurinn.

Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30
Brimborg hefur náð samkomulagi við Volvo Cars um verðlækkun á Volvo EX30 rafbílnum, næst vinsælasta rafbílnum á Íslandi, sem meðal annars innifelur þriggja ára þjónustu og viðhald.

Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg
Brimborg frumsýnir glænýjan Peugeot E-3008 rafbíl með framúrskarandi drægni, góðum hleðsluhraða, nýju stórfenglegu Panoramic i-Cockpit innra rými, ríkulegum útbúnaði, snjallhleðslu og víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins
Í Bítinu á Bylgjunni, 12. júní sl. var Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, að tjá sig um vegakerfið. Þar lýgur hann að hlustendum mest allt viðtalið. Hann fullyrðir m.a. að „það fari meiri peningar til samgöngumála en voru lagðir á umferðina“.

Áhugaverðar ákvarðanir
Nýskráningar rafbíla á þessu ári hafa hrunið í samanburði við síðasta ár og Ísland er óðum að missa forystuhlutverk sitt í orkuskiptum samgagna.

Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG
Bílaumboðið Una ehf., systurfélag Bílaumboðsins Öskju, hefur skrifað undir samning við bílaframleiðandann XPENG og þannig tryggt sér sölu- og dreifingarrétt á Íslandi.

Brimborg lækkar verð á Polestar
Brimborg og bílaframleiðandinn Polestar hafa komist að samkomulagi um verðlækkun á Polestar 2. Um takmarkað magn er að ræða.

Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann
Hentar ehf. hefur verið starfrækt í tvö ár og býður upp á rekstrarleigu á ökutækjum þar sem áhersla er lögð á nýja rafbíla með fjölbreyttu úrvali af ökutækjum sem Bílaumboðið Askja býður upp á.

Toyota fagnar sumrinu á laugardag
Sumri verður fagnað hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota á laugardag, 8. júní. Þá verður efnt til sýningar þar sem sjá má alla Toyota línuna og söluráðgjafar verða að sjálfsögðu í sumarskapi og finna rétta bílinn sem hentar fyrir ferðalögin fram undan.

Lét bóna bílinn, lenti illa í því og fær 1,6 milljónir í bætur
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað fyrirtæki sem annast þrif á bílum til þess að greiða einstaklingi rétttæpar 1,6 milljónir króna í skaðabætur vegna bíls sem fór illa úr þrifum hjá fyrirtækinu.

Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag
Mercedes-Benz á Íslandi býður gestum og gangandi einstakt tækifæri til þess að sjá þennan magnaða CLE 53 frá Mercedes-AMG á laugardag milli kl 12-16 . Tilvalið að koma við á leið á kjörstað og upplifa sportlegan og kraftlegan AMG bíl frá Mercedes-Benz.

Rúta brann til kaldra kola við Sóltún
Mannlaus rúta brann til kaldra kola á bílastæði í Sóltúni í Reykjavík skömmu eftir klukkan sjö í kvöld. Enginn annar skaði varð af völdum eldsins. Slökkvilið telur að rútan hafi verið númerslaus.

Stöðvaði innbrotsþjóf sem var hálfur inni í bílnum
Umráðamaður bifreiðar náði að koma í veg fyrir að innbrotsþjófur kæmist burt eftir að hann greip þjófinn glóðvolgan. Þjófurinn var hálfur inni í bílnum þegar komið var að honum.

Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra
Notkun samfélagsmiðla við akstur er sívaxandi vandamál að mati lögreglu. Vel er fylgst með símanotkun ökumanna þessa dagana auk þess sem fjölmargir hafa að undanförnu fengið himinháa sekt vegna nagladekkja.

Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut
Eldur kviknaði í fólksbíl á gatnamótum Dalbrautar og Sæbrautar nú í kvöld. Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins fljótt og engum sögum fer af því að ökumann bílsins hafi sakað.

Í fyrsta skipti í hálfa öld dregst bílasala saman í hagvexti
Sala á nýjum bílum er að dragast skarpt saman þrátt fyrir hagvöxt, nokkuð sem hefur ekki gerst í liðlega hálfa öld, en á sama tíma er sala á notuðum bílum að ganga vel. Ýmis bílaumboð áttu umtalsvert af nýjum bílum um áramótin en sú staða hefur batnað eftir því sem leið á árið, að sögn viðmælanda Innherja. Bankamaður telur engin teikn á lofti hvað varðar getu bílaumboðanna við að standa í skilum en fjármagnskostnaður bílaumboða getur verið um tólf prósent.

Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum
Frá og með morgundeginum verða bókleg almenn ökupróf rafræn um allt land. Allir ökunemar munu því framvegis taka próf til B-réttinda í tölvu hjá prófamiðstöð Frumherja.

Base parking gjaldþrota
Bílastæðaþjónustan Base Parking á Keflavíkurflugvelli var úrskurðuð gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Vefsíðu hennar hefur verið lokað, rúmum tveimur vikum eftir að nafni félagsins var breytt í Siglt í strand ehf. Fyrirtækið hefur ítrekað ratað í fréttir vegna óánægju viðskiptavina með þjónustuna.

VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf
Tryggingafélagið VÍS hefur nú í um tvö ár gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf. Hugmyndin kemur upphaflega frá viðskiptavinum félagsins.

Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn
Brimborg Bílorka opnar tvær hraðhleðslustöðvar á Þórshöfn sem gerir rafbílanotendum kleift að ferðast áhyggjulaust alla leið á Langanes. Stöðvarnar eru góð viðbót í vaxandi net hraðhleðslustöðva á landinu sem auðveldar rafbílanotendum lífið.

Nýjung í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf
Yfir fimmtán þúsund auglýsingar í öllum flokkum detta inn á markaðstorgið Bland í hverjum mánuði. Þar af eru yfir fimmtán hundruð bílar skráðir til sölu á markaðstorginu hvern einasta mánuð.

Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar
Nú er Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík. Haldin var sérstök forsýning fyrir Polestar eigendur og áhugafólk um leið og færi gafst enda búið að bíða hans með talsverðri eftirvæntingu. Stutt er síðan Polestar sendi frá sér fréttatilkynningu um að Polestar 4 væri umhverfisvænasti bíll þeirra til þessa, með lægra kolefnisspor en Polestar 2, þegar sá bíll kom fyrst á markað.

Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju
Fyrsti vinningur í happdrætti Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda, rafbíll af gerðinni Hupmobile, er ekki enn til. Einu ummerkin um Hupmobile á veraldarvefnum eru vefsíða framleiðandans, sem skráð er á Islandus group, fyrirtæki Ástþórs. Ástþór segir það enga tilviljun, hann eigi merkið.

Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar
Bílabúð Benna slær upp glæsilegri bílasýningu á morgun laugardag þar sem Porsche 911 Dakar sportbíllinn verður sýndur. Sögu hans má rekja til ársins 1984 þegar Porsche tók þátt í Dakar rallýinu með sér breyttum 911 bíl. Porsche sigraði keppnina og er 911 Dakar fyrsti sportbíllinn sem gerir það. Í kjölfarið hófst framleiðsla á bílnum í takmörkuðu upplagi.

Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag
Þjónustudagur Toyota er hátíðisdagur starfsfólks Toyota en dagurinn er haldinn á morgun, laugardaginn 11. maí.

Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan
Rafbílar eru umhverfisvænni kostur og sá samgöngumáti sem framtíðin snýst um. Rafbílar skilja þó eftir sig kolefnisspor við framleiðslu en er yfir höfuð hægt að fara fram á að bíll sé algjörlega sporlaus kolefnislega séð? Sænski bílaframleiðandinn Polestar segir „já, og við ætlum að græja það!“

Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta
Bandarískir saksóknarar rannsaka nú hvort að rafbílaframleiðandinn Tesla kunni að hafa gerst sekur um svik með því að blekkja bæði neytendur og fjárfesta um sjálfstýribúnað bílanna. Fyrirtækið og eigandi þess hafa haldið því fram að bílarnir geti ekið sér sjálfir.

Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging
Sendiferðabíll sem gjöreyðilagðist í bruna í Vesturbæ Reykjavíkur í nótt stóð í ljósum logum áður en slökkviliðsmenn náðu að hemja eldinn. Þá varð nokkuð öflug sprenging í bílnum.