

CrossFit
Fréttir af keppendum og mótum í CrossFit.

Katrín Tanja í 15. sæti eftir vandræði í þriðju grein
Katrín Tanja Davíðsdóttir var ólík sjálfri sér þegar hún endaði í 36. sæti í þriðju grein heimsleikanna í CrossFit.

Björgvin Karl í 4. sæti eftir fyrstu tvær greinarnar
Eftir að tveimur greinum er lokið á heimsleikunum í CrossFit situr Björgvin Karl Guðmundsson í 4. sæti í karlaflokki. Katrín Tanja Davíðsdóttir er efst íslenskra kvenna í 6. sæti.

Í beinni: Fimm Íslendingar keppa á heimsleikunum í CrossFit - dagur 1
Tólftu heimsleikarnir í CrossFit fara fram í Madison í Wisconsin-fylki og standa yfir frá 1. til 6. ágúst. Vísir mun fylgjast með leikunum og áframvarpa beinum útsendingum frá CrossFit-samtökunum.

Katrín Tanja þriðja í fyrstu grein
Katrín Tanja Davíðsdóttir byrjaði best af íslensku stelpunum á heimsleikunum í CrossFit en hún náði þriðja sætinu í fyrstu grein heimsleikanna sem hófust í dag í Madison í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum.

Níundu heimsleikarnir hjá Anníe Mist hefjast í dag
Íslenska crossfit-goðsögnin Anníe Mist Þórisdóttir er mætt á heimsleikana í crossfit sem hefjast á svakalegum miðvikudegi í Madison í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum.

Sara: Katla er ein efnilegasta konan í crossfit-heiminum í dag
Ísland á ekki aðeins keppendur í fullorðinsflokki á heimsleikunum í crossfit sem hefjast í dag í Madison í Bandaríkjunum. Þrír Íslendingar keppa einnig í unglingaflokki á mótinu og þar á meðal er Íslandsmeistarinn sjálfur.

Sara er hugrakkasti íþróttamaðurinn sem ég hef unnið með
Phil Mansfield, nýr þjálfari íslensku crossfitstjörnunnar Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur, talar ekki vel um þær kringumstæður sem Sara hafur verið í undanfarin ár og ekki fá gömlu þjálfararnir hennar heldur góða einkunn hjá honum.

Allar íslensku stelpurnar geta barist um eitt af toppsætunum
Ísland á fimm fulltrúa á heimsleikunum í CrossFit sem hefjast í Bandaríkjunum í dag. Lokaæfing dagsins er að taka heilt maraþon í róðrarvélinni sem hljómar hrikalega að mati fyrrverandi heimsleikafara.

Þuríður Erla um íslensku stelpurnar: „Þær geta allar unnið“
Þuríður Erla Helgadóttir hefur farið sex sinnum á heimsleikana í Crossfit en komst ekki inn í ár. Hún hefur trú á íslensku stelpunum sem eru meðal keppenda en þær eru fjórar talsins.

Hægt að spila crossfit-fantasy leik í tengslum við heimsleikana í ár
Heimsleikarnir í crossfit hefjast í Madison í Bandaríkjunum á morgun með mjög svo krefjandi degi en 40 karlar og 40 konur munu keppa um sigurinn á þessum tólftu heimsleikum sögunnar.

Þetta er nýjasta íslenska dóttirin á heimsleikunum í crossfit
Við þekkjum öll Anníe Mist, Katrínu Tönju og Ragnheiði Söru sem hafa keppt á mörgum heimsleikum í crossfit en í ár er íslensk crossfit kona að stíga sín fyrstu skref á leikunum.

Meira en þrjátíu milljónir í boði fyrir þann sem vinnur heimsleikana í ár
Verðlaunaféð hækkar á milli ára á heimsleikunum í crossfit og keppendur fá bæði væna summu fyrir að vinna leikana sem og ágætis pening fyrir að vinna hverja grein í keppninni.

Segir þau hafa gert mikil mistök með því að ná Katrínu Tönju heilli á heimsleikana
Í ár hefur hún æft eins stíft og hún þolir á hverjum degi og segist vera sífellt með verki en elskar það.

Fjórða greinin á morgun verður sú lengsta í sögu heimsleikanna í krossfit
Keppendurnir á heimsleikunum í krossfit fengu hverja tilkynninguna á fætur annarri í gær þegar hæstráðandi heimsleikanna, Dave Castro, var duglegur að hitta á hópinn og segja frá greinunum í komandi í keppni.

Heimsleikarnir í krossfit í ár byrja á hjólreiðakeppni
Dave Castro, hæstráðandi heimsleikanna í krossfit, tilkynnti keppendunum í dag hvernig fyrsta greinin á heimsleikunum í ár muni líta út.

Katrín Tanja: Stolt af því að vera kona með vöðva
Íslenska krossfitstjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir ætlar sér að endurheimta titilinn hraustasta kona heims þegar heimsleikarnir hefjast í Madison í Wisconsin fylki í Bandaríkjunum í þessarri viku.

Sara mætir til leiks á heimsleikana í ár með doktor í sálfræði sér við hlið
Íslenska krossfitstjarnan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er mætt til Madison í Wisconsin fylki í Bandaríkjunum þar sem framundan eru heimsleikarnir í krossfit.

„Sleðahundurinn“ Katrín Tanja vill verða hraustasta kona heims á ný
Katrín Tanja Davíðsdóttir á harma að hefna á heimsleikunum í CrossFit sem hefjast í byrjun ágúst. Katrín Tanja vann keppnina og hlaut titilinn Hraustasta kona heims árin 2015 og 2016 en þurfti að sætta sig við fimmta sætið í fyrra.

Fimm keppendur sem voru á leið á CrossFit-leikana féllu á lyfjaprófi
Dæmdir í keppnisbann.

Kærasta Annie Mistar boðið á heimsleikana eftir að keppandi féll á lyfjaprófi
Réð sér vart úr kæti vegna þessara frétta.

Katrín Tanja í herferð með Gigi Hadid og Gal Gadot
„Ég er stolt af því að vera kona með vöðva“

Snorri Björns með nýtt hlaðvarp: „Vil að þátturinn sé samkvæmur sjálfum mér“
Ljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Snorri Björnsson hefur sett á laggirnar nýjan hlaðvarpsþátt þar sem hann tekur viðtöl við áhugaverða einstaklinga.

Björgvin, Annie, Ragnheiður Sara og Katrín fara á heimsleikana
Annie Mist Þórisdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Björgvin Karl Guðmundsson tryggðu sér öll sæti á heimsleikana í CrossFit sem fara fram í Wisconsin fylki í Bandaríkjunum í ágúst.

Bein útsending: Hvaða Íslendingar komast á heimsleikana?
Síðasti dagur Regionals fer fram í dag. Þá kemur í ljós hvaða Íslendingar komast á heimsleikana sem fara fram í ágúst.

Annie Mist og Ragnheiður Sara eiga góða möguleika á að komast á heimsleikana
Keppni um sæti á heimsleikunum fer fram um helgina og Annie og Ragnheiður standa vel fyrir lokadaginn.

Bein útsending: Björgvin Karl þarf að bæta sig í Berlín
Katrín Tanja Davíðsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann báða viðburði gærdagsins í East Regionals. Katrín bætti tíma Ragnheiðar Söru sem hafði unnið viðburðinn Lindu fyrr um daginn. Katrín er í mjög góðri stöðu fyrir annan keppnisdag af þremur.

Ragnheiður Sara stendur vel eftir fyrsta daginn í Berlín
Keppni hófst í dag á Europe Regionals. Þar geta keppendur tryggt sér keppnisrétt á heimsleikunum sem fara fram í Bandaríkjunum í ágúst. Katrín Tanja keppir á East Regionals sem hefst einnig í dag en hún keppir í Albany í New York fylki.

Bein útsending: Íslendingar byrja vel í Berlín
Hægt er að fylgjast með Regionals keppninni í Crossfit sem fer fram í Berlín í beinni hér.

Íslendingar etja kappi um helgina í Berlín
Þeir fimm einstaklingar sem eru stigahæstir eftir sex viðburði sem að keppt er í frá föstudegi fram á sunnudag komast áfram á heimsleikana sem fara fram í ágúst í Bandaríkjunum. Keppt er á nokkrum mismunandi stöðum og keppnin þar sem flestir Íslendingar taka þátt er í Berlín.

Sjáðu nýjan þátt um íslensku crossfit dæturnar: „Norrænu gyðjurnar“
"Velkomin í bakgarðinn minn,“ segir Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir fyrir framan Seljalandsfoss í upphafi nýs þáttar frá Crossfit samtökunum um okkar mögnuðu crossfit stjörnur.