
Sigur Rósar-menn greiddu tæpar 80 milljónir í álag
Vilja frávísun á grundvelli þess að hafa verið refsað áður.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Vilja frávísun á grundvelli þess að hafa verið refsað áður.
Sá dæmdi sagði upphafið hafa verið hugsunarlaust grín.
Landsréttur staðfesti í gær að karlmaður sem grunaður er um að hafa beitt barnsmóður sína kynferðislegu ofbeldi, meðal annars með dreifingu nektarmynda af henni, skuli sæta tveggja vikna gæsluvarðhaldi.
Nara Walker, áströlsk kona sem hlaut átján mánaða dóm fyrir að bíta hluta úr tungu þáverandi eiginmanns síns, er laus úr fangelsi.
26 ára karlmaður var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa villt á sér heimildir í um tuttugu mánuði og þannig fengið unga konu til að eiga í kynferðislegum samskiptum við sig. Hann kúgaði hana til kynmaka með öðrum mönnum og nauðgaði henni á hótelherbergi þar sem hún hélt að hann væri annar maður. Verkefnastjóri í Bjarkarhlíð segir málið með alvarlegri kynferðisbrotamálum sem sést hafa.
Dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Isavia og ALC deila enn um farþegaþotu sem Isavia kyrrsetti eftir fall Wow air í mars.
Hæstiréttur hafnaði endurupptöku á máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar í gær.
Sagt hafa fordæmisgildi þegar kemur að möguleika blaðamanna til að fjalla um rannsókn sakamála og byggja á frásögn heimildarmanna.
Hæstiréttur vísaði í dag frá endurupptökubeiðni Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva jónssonar í máli sem tengist skattalagabrotum þeirra vegna reksturs Baugs og fjárfestingafélagsins Gaums.
Karlmaður sem héraðsdómur dæmdi í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni og stjúpdóttur hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar.
Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir nauðgun og verður málið gegn þeim þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur næstkomandi mánudag.
Fyrirtaka í máli héraðssaksóknara gegn fjórum meðlimum Sigur Rósar vegna meintra skattsvika fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði lögreglumann af ákæru um árás á eiginkonu sína og dóttur. Hann var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Landsrétti í dag.
Franskur karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa svikið út eða reynt að svíkja út fjölda farmiða hjá flugfélaginu WOW Air á síðasta ári. Maðurinn var í farbanni vegna málsins en tókst að sleppa úr landi seint á síðasta ári.
Þjóðkirkjan neitar að upplýsa um fjárhæð dómsáttar sem náðist við Pál Ágúst Ólafsson, fyrrverandi sóknarprest á Staðastað.
Forsætisráðherra hefur óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að mál Erlu Bolladóttur verði tekið til sérstakrar skoðunar. Erla var sú eina af dómfelldum í Guðmundar- og Geirfinnsmálum sem fékk mál sitt ekki endurupptekið.
Nemar í tölvunarfræði hafa skapað dómsal í sýndarveruleika til þess að undirbúa þolendur kynferðisofbeldis fyrir réttarhöldin. Þeir segja að sérfræðingar hafi sýnt verkefninu mikinn áhuga. Það að komast í réttarsalinn í huganum geti dregið úr streitu og kvíða fyrir svo yfirþyrmandi aðstæðum.
Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni, brot á vopnalögum, tilraunar til sérlegra hættulegrar líkamsárásar og eignaspjöll. Maðurinn ógnaði lögreglumönnum með öxi og skemmdi lögreglubíl þeirra.
Íslenska ríkið mun þurfa að greiða fimm sveitarfélögum alls rúmlega 680 milljónir eftir dóm Hæstaréttar í máli Grímsness- og Grafningshrepps gegn ríkinu sem féll í dag. Fjögur önnur sveitarfélög höfðuðu sambærilegt mál.
Hæstiréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Grímsnes- og Grafningshreppi 234 milljónir vegna greiðslna úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til sveitarfélagsins sem voru felldar niður á árunum 2013 til 2016. Hæstiréttur klofnaði í málinu en einn dómari skilaði sératkvæði og taldi að sýkna ætti ríkið af kröfum sveitarfélagsins.
Fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins segir norska og íslenska dómara réttarins hlutdræga við meðferð mála hjá réttinum. Norski dómarinn liggur undir ámæli í Noregi. Efasemdum hefur verið hreyft um hlutleysi Páls Hreinssonar.
Karlmaður hefur verið dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa látið stúlku, sem þá var 14 ára gömul, snerta getnaðarlim hans og fróa sér.
Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot í nánu sambandi og hættubrot gegn fyrrverandi sambýliskonu hans og barnsmóður. Hótaði hann meðal annars konunni lífláti með því að draga fingur yfir háls sér á meðan hann horfði á hana, er þau óku samsíða á Langholtsvegi eftir að hann hafði ekið hana uppi.
Pétur Þór Sigurðsson hefur verið dæmdur til greiðslu 37,3 milljóna króna sekt fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum fyrir að hafa sem stjórnarformaður Lögfræðistofunnar ehf. ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum á árinum 2009 og 2010. Þá stóð hann ekki skil á virðisaukaskatti upp á um 18,8 milljónir.
Umdeildur ráðuneytisstarfsmaður gerður að formanni nefndar um eftirlit með lögreglu. Viðhafði niðrandi orð um borgara, félagasamtök og starfsmenn umboðsmanns Alþingis. Maðurinn var færður til í starfi vegna klögumála árið 2016.
Meindýraeyðir í Norðurþingi hefur verið dæmdur til greiðslu sektar fyrir að hafa farið inn í Nettó á Húsavík og skilið bílinn eftir ólæstan en í framsætinu lá haglabyssa auk skotfæra. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin.
Norski dómarinn við EFTA-dómstólinn ráðlagði forseta Hæstaréttar Noregs að senda mál aftur til EFTA-dómstólsins. Ógn við sjálfstæði dómsins segja lögfræðingar.
Sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru af öllum ákærum í september í fyrra hafa enn ekki borist formleg tilboð um bótagreiðslur.
Þrábað um að fá að nudda á henni bakið og lagðist svo nakinn upp í rúmið.