

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Hlaut dóm fyrir peningaþvætti en fékk samt milljónir í miskabætur
Karlmanni hafa verið dæmdar sex milljónir króna í miskabætur fyrir gæsluvarðhald að ósekju. Maðurinn hlaut tveggja mánaða dóm fyrir peningaþvætti en sat í gæsluvarðhaldi í 269 daga, margfaldan tíma fangelsisvistarinnar. Landsréttur hafði áður fallist á miklu hærri skaðabætur.

Héraðsdómari kærir Margréti fyrir meiðyrði
Barbara Björnsdóttir, héraðsdómari, hefur kært Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra frettin.is, fyrir meiðyrði. Margrét var yfirheyrð af lögreglu vegna málsins í fyrradag.

Edda Falak dæmd fyrir brot á friðhelgi einkalífsins
Edda Falak hefur verið dæmd fyrir brot gegn friðhelgi einkalífsins fyrir að hafa spilað tiltekið hljóðbrot í þættinum Eigin konur. Viðmælandi þáttarins sagðist hafa verið beitt andlegu ofbeldi af hálfu móður og spilaði hljóðupptökur af samtölum þeirra mæðgna.

Landsréttur þyngir dóm yfir nýdæmdum barnaníðingi
Barnaníðingurinn Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag og þyngdi dóm héraðsdóms um eitt ár.

Fara fram á tólf til sextán ára fangelsi yfir Magnúsi
Ákæruvaldið fer fram á að Magnús Aron Magnússon verði dæmdur í tólf til sextán ára fangelsi fyrir að hafa myrt Gylfa Bergmann Heimisson í júní árið 2022. Verjandi Magnúsar fer fram á að Magnús verði sakfelldur fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða en ekki fyrir manndráp.

Taka fyrir deilu um hvenær starfsmenn séu í vinnunni og hvenær ekki
Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni Reykjavíkurborgar í skaðabótamáli fyrrverandi leikskólakennara sem slasaðist í hópefli starfsmanna þar sem þeir voru að leika sér í svokölluðum blöðruboltum. Í málinu er deilt um hvort slysið hafi átt sér stað á vinnutíma eða í frítíma.

Mikil vanræksla og ofbeldi í æsku
Geðlæknar og sálfræðingar sem mátu andlegt ástand Magnúsar Arons Magnússonar segja hann ekki glíma við neina alvarlega geðsjúkdóma en hann sé líklegast á einhverfurófinu. Faðir Magnúsar neitaði að senda hann í greiningarviðtal eftir að hann hitti sálfræðing á unglingsaldri.

Áverkar eftir skósóla Magnúsar á þeim látna
Mynstur var á áverkum á hægri hlið ennis Gylfa Bergmann Heimissonar sem samsvara skósóla Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa. Höggin sem ollu áverkunum komu ofan frá.

SBF ákærður fyrir að reyna að múta kínverskum stjórnvöldum
Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, er sagður ætla að lýsa sig saklausan af ákæru um að hann hafi brotið bandarísk kosningalög og mútað kínverskum yfirvöldum. Hann hefur þegar lýst sig saklausan af ákærum um stórfelld fjársvik.

Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir manndrápstilraun á nýársnótt
Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ á nýársnótt árið 2020. Fórnarlambs manndrápstilraunarinnar var sýknað af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás.

Dæmdur fyrir að nauðga konu með þroskahömlun í tvígang
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í tveggja ára og átta mánaða fangelsi og greiðslu miskabóta fyrir að hafa í tvígang nauðgað konu sem er með þroskahömlun í júní 2021.

„Þetta var náttúrulega visst sjokk fyrir okkur; við ætluðum svo sem aldrei að svíkja eitt né neitt“
„Já já, þetta gerði skaða. Þetta gerði meiri skaða en við héldum,“ segir Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, um skattamál sem meðlimir sveitarinnar hafa haft hangandi yfir höfðum sér frá árinu 2014. Málinu virðist nú vera lokið, eftir að Landsréttur vísaði eftirstöðum málsins frá í síðustu viku.

Magnús furðulega rólegur miðað við aðstæður
Fjöldi lögreglumanna gaf vitnisburð sinn fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag í máli saksóknara gegn Magnúsi Aroni Magnússyni sem grunaður er um að hafa drepið nágranna sinn í júní á síðasta ári. Sammæltust þeir flestir um það að Magnús hafi virst of rólegur miðað við aðstæður.

Grunaður um að hafa siglt undir fölsku flaggi á Íslandi
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi og einangrun á meðan á því stendur. Maðurinn er grunaður er um að hafa búið og starfað hér frá árinu 2021 á grundvelli dvalarleyfis á nafni annars manns. Hann er einnig grunaður um skjalafals og peningaþvætti, auk þess að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga og lög um útlendinga. Sterkar vísbendingar eru uppi um að nokkur fjöldi einstaklinga geti mögulega tengst sakarefni málsins.

Nágrannarnir fylgdust með hörmungum í næsta garði
Nágrannar Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa Bergmann Heimisson við Barðavog í Reykjavík í fyrrasumar lýstu því fyrir dómi hvernig þau sáu Magnús traðka á Gylfa á meðan hann lá meðvitundarlaus fyrir utan hús sitt. Magnús sagðist fyrir dómi ekki hafa snert manninn eftir að hann féll á jörðina meðvitundarlaus.

Dæmdur fyrir að þvætta illa fengið fé
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri fyrir peningaþvætti með því að tekið við og nýtt millifærslur frá erlendum fyrirtækjum, samtals um 13,5 milljónir króna, inn á eigin reikning og tekið upphæðina svo út í reiðufé og afhent óþekktum aðila.

Minnti lögreglu áhyggjufullur á morð í Hafnarfirði en sagt að slaka á
Tæplega þrítugur karlmaður sem bjó á miðhæð í húsi við Barðavog í Reykjavík þar sem karlmanni var ráðinn bani í júní í fyrra lýsti því að tvítugur karlmaður, grunaður um morðið, hafi ráðist á sig af engu tilefni tæplega sólarhring fyrr. Hann segir lögreglu hafa talið hann vera að bregðast of hart við þeirri árás og ekki hlustað á áhyggjur hans. Hinn látni hafi verið áberandi góður maður sem hafi viljað öllum vel.

Magnús margsaga um atburðarásina örlagaríku í Barðavogi
Magnús Aron Magnússon sem ákærður er fyrir morð í Barðavogi í fyrra neitaði fyrir við aðalmeðferð málsins fyrir dómi í dag að hafa sparkað ítrekað í höfuð Gylfa Bergmanns Heimissonar sem lést af áverkum sínum. Hann hafði þó lýst slíkum spörkum við lögreglumenn daginn örlagaríka en sú frásögn var tekin upp á búkmyndavél lögreglumanns. Magnús Aron hafði litlar skýringar á því hvers vegna litlir áverkar hefðu verið á honum eftir átökin.

Dæsti og bað dómarann um að tala hærra
Aðalmeðferð í Barðavogsmálinu svokallaða hófst í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður, er ákærður fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní í fyrra.

Þrjátíu daga skilorð fyrir árás á fyrrverandi kærustu: „Ég get ekki leyft neinum að leggja á mig hendur, aldrei“
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrum unnustu sína á heimili sínu á Akureyri. Árásin átti sér stað í september 2021.

Móðir sýknuð af því að sparka í og slá fimm ára son sinn
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað móður af því að hafa sparkað í og slegið fimm ára gamlan son sinn. Það var þáverandi eiginmaður konunnar og faðir drengsins sem tilkynnti um málið.

Taldi lögreglu hafa hótað sér í skýrslutökum
Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Guðlaugs Agnars Guðmundssonar, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti í tengslum við stórkostlegt fíkniefnasmygl, um endurupptöku á dómnum. Guðlaugur byggði meðal annars á því að við rannsókn málsins hafi lögregla beitt hann hótunum um að gera föður hans að sakborningi í málinu.

Páll gefst ekki upp og blæs til söfnunar
Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, hefur sett af stað söfnun fyrir málskostnaði vegna áfrýjunar til Landsréttar. Páll var í vikunni dæmdur til að greiða blaðamönnum Kjarnans miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla í tengslum við Samherjamálið.

Vafi féll þrítuga bróðurnum í vil
Maður á þrítugsaldri sem ákærður var í Borgarholtsskólamálinu svokallaða var sýknaður þar sem ekki tókst að sanna á hann líkamsárás. Lögmaður eins sakfelldu segir koma á óvart að fullorðnir menn, sem ekki sæki nám en komi inn í skóla og taki þátt í átökum, séu sýknaðir.

„Gríðarlegur léttir að málinu sé lokið“
Margra ára skattsvikamáli hljómsveitarinnar Sigur rósar lauk í gær þegar að Landsréttur vísaði kröfu ríkisskattstjóra frá dómi. Lögmaður Jóns Þórs Birgissonar, eða Jónsa í Sigur rós eins og hann er oftast kallaður, segir skattstjóra hafa of víðtækar heimildir til kyrrsetningar.

Jónsi í Sigur Rós lagði ríkisskattstjóra
Landsréttur hefur vísað kröfu á hendur Jónsa í Sigur Rós vegna skattamáls hljómsveitarinnar frá héraðsdómi. Ríkisskattstjóri ákvað að falla frá áfrýjun dómsmála á hendur þriggja af fjögurra hljómsveitarmeðlima, sem allir höfðu verið sýknaðir í héraðsdómi. Eftir stóð Jónsi – og endurskoðandi hans.

Páll dæmdur fyrir ummæli um Heimildarmenn
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ómerkt ummæli sem Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, lét falla um blaðamenn Kjarnans. Páll hélt því fram að blaðamennirnir hefðu átt þátt í byrlun og þjófnaði í tengslum við umfjöllun um leynilega áhrifaherferð sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja.

Hrannar dæmdur í átta ára fangelsi
Hrannar Fossberg Viðarsson, 24 ára karlmaður, var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir skotárás í Grafarholti í febrúar í fyrra. Hann þarf að greiða fólkinu sem hann skaut 3,3 milljónir króna annars vegar og 1,2 milljónir króna hins vegar. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Verjandi Hrannars segir að dómnum verði áfrýjað.

Meint brot afans fyrndust vegna mistaka lögreglu
Íslenska ríkið þarf að greiða konu sem kærði afa sinn fyrir kynferðisbrot 1,4 milljónir í miskabætur. Mistök lögreglu urðu til þess að málið fyrndist á meðan það var til rannsóknar þar.

Fékk unga stelpu til að senda sér nektarmyndir
Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að senda ungri stúlku nektarmyndir, fá hana til að senda sér kynferðislegar myndir áður en hún náði fimmtán ára aldri, fyrir að hafa viðhaft klúrt, lostugt og óviðeigandi orðbragð við hana og fyrir að biðja hana um að kyssa sig í bifreið sinni á fáförnum vegi.