Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Prófessor í jarðeðlisfræði segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni við Grindavík. Innlent 30. apríl 2024 12:15
Aukin virkni í gosinu Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu. Innlent 30. apríl 2024 09:40
Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn. Innlent 29. apríl 2024 13:01
Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Litlar breytingar hafa orðið á gosinu við Grindavík í nótt þótt kvikusöfnun haldi áfram og hægt hafi á landrisinu. Innlent 29. apríl 2024 07:28
Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu. Innlent 28. apríl 2024 12:46
Líklegt að það styttist í brotmörk Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju. Innlent 27. apríl 2024 20:46
Hraun mjakast yfir varnargarð Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er. Innlent 27. apríl 2024 13:49
Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Ný löng gossprunga getur opnast á hverri stundu og fyrirvaralaust við Sundhnúksgíga að sögn fagstjóra hjá Veðurstofu Íslands. Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að fara ekki fótgangandi að núverandi gosi. Innlent 27. apríl 2024 12:30
Vara við því að fara gangandi að gosinu Lögreglan á Suðurnesjum varar við því að fara fótgangandi að gosstöðvum. Fram hefur komið í fréttum að líkur aukast með hverjum degi á að ný gossprungja opnist eða að nýtt eldgos hefjist. Vegna þess er fólk varað við því að fara fótgangandi. Innlent 27. apríl 2024 07:37
Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og er enn einn gígur skammt austan við Sundhnúk, virkur. Landris í Svartsengi hefur áfram á sama hraða og eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega, haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða. Innlent 26. apríl 2024 13:17
Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur Forsætisráðuneytið hefur tímabundið ráðið Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur. Innlent 26. apríl 2024 12:05
Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Stefnt er að því að lokið verði við að samþykkja helming umsókna Grindvíkinga um að ríkið kaupi íbúðarhúsnæði þeirra fyrir lok þessarar viku. Þegar hafa verið samþykkt kaup á 263 fasteignum í Grindavík fyrir um tuttugu milljarða króna. Viðskipti innlent 24. apríl 2024 15:27
Enn kröftugt gos úr einum gíg Enn gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk. Frá 5. apríl hefur aðeins gosið úr einum gíg í eldgosinu sem hófst þann 16. mars síðastliðinn. Myndatökumaðurinn Björn Steinbekk var á vettvangi í vikunni og myndaði gosið. Innlent 23. apríl 2024 15:46
Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Sýnileg gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi liggur yfir Suðvesturlandi. Mælt er gegn því að börn sofi úti og að viðkvæmir reynir á sig utandyra þegar móðan er sýnileg jafnvel þó að mengun mælist ekki yfir mörkum á loftgæðamælum. Innlent 23. apríl 2024 15:24
Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum. Innlent 22. apríl 2024 18:40
Atvinnurekendur í Grindavík krefjast úrræða Hópur grindvískra atvinnurekenda segir fyrirtæki í Grindavík komin að þolmörkum og kalla eftir að úrræði sem kynnt verða fyrir þinglok verði úrræði sem miða að fyrirtækjum sem geta og vilja starfa í Grindavík, fyrirtækjum sem þurfa að flytja starfsemi sína og þeim sem sjá hvorki rekstrargrundvöll í né utan Grindavíkur og vilja uppkaup á atvinnuhúsnæði. Innlent 21. apríl 2024 23:16
Björguðu örmagna göngumönnum við gosstöðvarnar Björgunarsveitirnar Þorbjörn og Skyggnir í Vogum voru ræstar út til að finna hóp þriggja göngumanna sem ætluðu sér að ganga upp að gosstöðvunum. Þau höfðu verið nokkuð lengi að ganga en hringdu eftir hjálp um hálf sex í dag og voru þá orðin verulega blaut og köld. Innlent 20. apríl 2024 19:45
„Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segist alls ekki sjá neitt sem bendi til þess að annað eldgos sé að hefjast. Innlent 20. apríl 2024 11:46
Getur gosið hvenær sem er Sviðsstjóri almannavarna segir að nýtt gos geti hafist á Reykjanesi hvenær sem er. Líklegast sé að gjósi þar sem kvika kemur upp núna á Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 19. apríl 2024 23:29
Telja líkur á öðru eldgosi Áframhaldandi landris eykur líkur á öðru kvikuhlaupi þó eldgos sé yfirstandandi Meiri óvissa um þróun jarðhræringanna næstu daga eða vikur. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19. apríl 2024 15:51
Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Dagur verkfræðinnar verður haldinn í níunda sinn á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á í dag og verður í beinu streymi hér á Vísi. Útsendingin hefst kl. 13.00 með setningu Svönu Helen Björnsdóttur, formanns Verkfræðingafélags Íslands. Viðskipti innlent 19. apríl 2024 12:30
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ „Ég er föst á nýjum stað. Ég verð að geta komið fótunum undir mig og fjölskyldu mína,“ segir Birna Rún Arnarsdóttir um erfiða stöðu sem myndast hefur fyrir Grindvíkinga, meðal annars vegna fasteignafélagsins Þórkötlu. Innlent 18. apríl 2024 23:04
Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Landris í Svartsengi heldur áfram á stöðugum hraða. Flatarmál hraunbreiðunnar á svæðinu er nú 6,15 ferkílómetrar og rúmmál hennar 33,2 milljón rúmmetrar. Innlent 18. apríl 2024 21:11
Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Grindvíkingar og stuðningsmenn þeirra söfnuðust saman á Austurvelli í dag til þess að mótmæla vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu. Krafan er einföld, þeir vilja fá greitt strax. Innlent 18. apríl 2024 19:04
Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Búið er að samþykkja kaup á 126 eignum Grindvíkinga en Þórkötlu, fasteignafélagsins sem stofnað var til að annast kaup á þessum eignum, hefur borist 711 umsóknir. Innlent 18. apríl 2024 12:06
Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Fasteignamarkaðurinn hitnaði verulega í febrúar og líklega í mars líka. Sömu áhrifa er á gæta á leigumarkaði þar sem verð hefur hækkað. Áhrifanna er að mestu að gæta á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögunum í kring. Staða íbúa í Grindavík hefur þarna mikil áhrif. Á sama tíma hefur byggingaframkvæmdum fækkað og er yfirvofandi samdráttur í byggingariðnaði. Viðskipti innlent 18. apríl 2024 07:55
Varnargarðar utan um fólkið í Grindavík Í síðustu viku fór tími Alþingis ekki í neitt nema að bíða eftir því að hulunni yrði svipt af nýrri (eða lítillega breyttri) ríkisstjórn. Önnur og mun mikilvægari verkefni voru látin sitja á hakanum. Skoðun 18. apríl 2024 07:30
Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu Boðað hefur verið til mótmæla á Austuvelli klukkan 17 á morgun, þar sem vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu verður mótmælt. Borið hefur á mikilli óánægju meðal Grindvíkinga, sem vilja fá eignir sínar keyptar upp sem fyrst. Innlent 17. apríl 2024 19:39
Ný staða uppi á Reykjanesskaga Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina nú hefur staðið yfir í mánuð. Í byrjun apríl fór landris að aukast og nú er um það bil jafn stór hluti kvikunnar að flæða upp á yfirborð og safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Ný staða er komin upp að sögn náttúruvásérfræðings hjá Veðurstofunni. Innlent 16. apríl 2024 15:33
Engin skjálftavirkni eftir miðnætti Smáskjálftahrinunni sem hófst í gær við Lágafell, rétt norðvestan við Grindavík, lauk um klukkan hálf fjögur í gær. Alls voru skjálftarnir um 90 talsins og var virknin mest um klukkan 13 og 14 í gær þegar 35 skjálftar mældust. Innlent 15. apríl 2024 11:26
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent