

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Southampton fallið | Forest náði í stig á Brúnni
Southampton er fallið úr ensku úrvalsdeildinni eftir 0-2 tap á heimavelli gegn Fulham. Þá náði Nottingham Forest í dýrmætt 2-2 jafntefli gegn Chelsea og Crystal Palace vann 2-0 sigur á Bournemouth.

Man United aftur á sigurbraut og Meistaradeildarsætið í augsýn
Eftir tvo tapleiki í röð hjá Manchester United vann liðið gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur er liðið tók á móti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Aston Villa heldur í Evrópudrauma en vandræði Tottenham halda áfram
Aston Villa vann mikilvægan sigur er liðið tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-1 og liðin eru nú jöfn að stigum í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar, en þetta var fjórða tap Tottenham í seinustu sex deildarleikjum.

Kristensen bjargaði mikilvægu stigi fyrir Leeds
Rasmus Kristensen reyndist hetja Leeds er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Newcastle í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Segir góðar líkur á því að Rice yfirgefi West Ham í sumar
David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham, viðurkennir að það séu góðar líkur á því að Declan Rice, miðjumaður liðsins, yfirgefi félagið í sumar.

Furðar sig á því að Eurovision setji leikjadagsrána úr skorðum
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, furðar sig á því að leik liðsins gegn Everton hafi verið frestað um einn dag sökum þess að Eurovision fer fram í Liverpool í kvöld.

Segir United geta lokkað marga gæðaleikmenn til sín í sumar
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að liðið geti lokkað til sín gæðaleikmenn í sumar þrátt fyrir að enn ríki óvissa um hverjir eigendur félagsins verði.

Nagelsmann tekur ekki við Tottenham
Julian Nagelsmann mun ekki taka við sem þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham eftir að hann var látinn fara frá Bayern München í mars á þessu ári.

Håland og Kerr best að mati íþróttablaðamanna
Erling Braut Håland, framherji Manchester City, og Sam Kerr, framherji Chelsea, voru valin bestu leikmenn tímabilsins af íþróttablaðamönnum á Englandi.

Haaland ekki sá verðmætasti í heimi
Fjórir fótboltamenn heimsins eru meira virði en tvö hundruð milljón evrur samkvæmt nýrri úttekt CIES.

Arsenal verður án Saliba og Zinchenko það sem eftir lifir tímabils
William Saliba og Oleksandr Zinchenko verða ekki meira með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili vegna meiðsla.

Knattspyrnusambandið reddar rútum á Wembley vegna verkfalls lestarstarfsfólks
Enska knattspyrnusambandið, FA, mun útvega 120 rútur sem munu ganga frá Manchester til London í næsta mánuði til að koma stuðningsmönnum Manchester-liðanna á úrslitaleik FA-bikarsins sem fram fer á Wembley þann 3. júní.

Fyrrum leikmaður Liverpool kynnir Eurovision-stig Eista
Ragnar Klavan, fyrrverandi leikmaður Liverpool, mun sjá um það verkefni að kynna stig Eistlands í Eurovision sem fram fer í Liverpool næstkomandi laugardagskvöld.

Arsenal að ganga frá nýjum samningum við lykilleikmenn
Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal hafa haft í nægu að snúast undanfarið. Arsenal hefur verið í toppbáráttu í deildinni allt yfirstandandi tímabil og lykilleikmenn félagsins eru við það að skrifa undir nýja langtímasamninga.

Meistaradeildarkapphlaup Newcastle, Man. Utd og Liverpool lítur svona út
Á Liverpool enn þá möguleika á Meistaradeildarsæti? Flestir héldu að möguleikinn væri úti fyrir nokkrum vikum en síðan hefur Liverpool unnið sex deildarleiki í röð.

Innkastþjálfarinn hættir hjá Liverpool
Danski innkastþjálfarinn Thomas Grönnemark Larsen er einn þeirra sem mun yfirgefa Liverpool eftir þetta tímabil.

Segja að Glazer fjölskyldan hafi valið Íslandsvininn til að kaupa Man. United
Íslandsvinurinn Sir Jim Ratcliffe þykir nú líklegastur sem næsti meirihluta eigandi Manchester United en ensk blöð slógu því upp í morgun að tilboð hans sé það tilboð sem núverandi eigendur eru spenntastir fyrir.

Sannfærður um Carrick hafi það sem þarf til að stýra Man United
Ole Gunnar Solskjær, fyrrverandi þjálfari Manchester United, telur nær öruggt að Michael Carrick – fyrrum aðstoðarmaður Solskjær – muni stýra Man United einn daginn.

Lundúnaliðin unnu stórsigra
Chelsea og Arsenal unnu bæði stórsigra í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Bæði lið eru enn í bullandi toppbaráttu en Englandsmeistarar Chelsea eiga leik til góða á Manchester United sem situr á toppi deildarinnar.

Pep segir að það yrðu risastór mistök að ætla að leita hefnda á móti Real
Manchester City hefur aldrei unnið Meistaradeildina en liðið hefur sjaldan átt betri möguleika en á þessari leiktíð.

Ten Hag: Þetta snýst ekki um Liverpool
Manchester United tapaði tveimur leikjum á aðeins fjórum dögum og hefur með því opnað dyrnar á ný fyrir Liverpool í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Búinn að fá nóg af því að vera bendlaður við bölvun tengda Man City
Yaya Touré, fyrrverandi miðjumaður Manchester City, er búinn að fá sig fullsaddan af því að fólk sé að bendla hann við umræðu um „bölvun“ sem fylgi enska knattspyrnuliðinu í Meistaradeild Evrópu.

Dýrlingarnir sem gott sem fallnir eftir tap í Skírisskógi
Nottingham Forest vann 4-3 sigur á botnliði Southampton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Dýrlingarnir eru svo gott sem fallnir eftir tapið á meðan Forest lyfti sér upp úr fallsæti.

Everton kláraði Brighton í fyrri hálfleik
Everton vann magnaðan 5-1 útisigur á Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gestirnir frá Bítlaborginni eru í bullandi fallbaráttu á meðan Brighton lætur sig dreyma um að spila í Evrópu á næstu leiktíð.

Jóhann upp fyrir hundrað stig í tímamótaleik og Sunderland slapp inn í umspil
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson spilaði sinn 200. keppnisleik fyrir enska knattspyrnufélagið Burnley í dag þegar lokaumferð ensku B-deildarinnar var spiluð.

Leicester áfram í vandræðum eftir átta marka leik á Craven Cottage
Átta mörk voru skoruð í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Fulham sigraði þá Leicester City, 5-3.

Ekkert lið lengur að taka markspyrnur en Newcastle
Eftir leik sigur Arsenal á Newcastle United í gær, 0-2, kvartaði Eddie Howe, knattspyrnustjóri Skjóranna, sáran yfir töfum Skyttanna í leiknum.

Rooney: Man. City mun ekki bara vinna Real Madrid, þeir munu rústa þeim
Wayne Rooney telur að Evrópumeistarar Real Madrid verði ekki mikil fyrirstaða fyrir Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en fyrri leikur liðanna fer fram á morgun.

„Þetta voru hræðileg mistök“
David De Gea gerði sig sekan um slæm mistök í sigurmarki West Ham gegn Manchester United í dag. Baráttan um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili opnaðist upp á gátt eftir úrslit helgarinnar.

United tapaði dýrmætum stigum eftir mistök De Gea
Manchester United tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu þegar liðið tapaði 1-0 fyrir West Ham í dag. West Ham er nú sjö stigum frá fallsæti.