

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Liverpool er þegar fjórum stigum á eftir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni og samt eru aðeins tvær umferðir búnar.
Gary Neville, sparkspekingur á Sky Sports og fyrrum samherji Cristiano Ronaldo hjá Manchester United er allt annað en sáttur með ummæli Ronaldo á Instagram. Þar sagði Portúgalinn að eftir tvær vikur kæmi í ljós að fjölmiðlar hefðu verið að ljúga.
Í gær, þriðjudag, fór sjöundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fram. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot.
Elon Musk, eigandi Tesla og SpaceX, sagði á Twitter-síðu sinni að hann væri við það að festa kaup á enska knattspyrnufélaginu Manchester United. Skömmu síðar dró hann grínið hins vegar til baka.
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United virðist ekki ætla að ná að semja við franska miðjumanninn Adrien Rabiot og liðið skoðar nú aðra möguleika til að styrkja miðsvæðið.
Darwin Nunez, sóknarmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, hefur beðist afsökunar á því að hafa skallað danska miðvörðinn Joachim Andersen í leik Liverpool og Crystal Palace í gær.
Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson lagði upp eina mark Bolton er liðið vann 1-0 sigur gegn Morecambe í ensku C-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves hefur náð samkomulagi við portúgalska liðið Sporting CP um kaupverðið á miðjumanninum Matheus Nunes.
Manchester City hefur fest kaup á hinum Spánverjanum Sergio Gómez. Hann leikur iðulega í stöðu vinstri bakvarðar og lék síðast með Anderlecht í Belgíu. Gómez skrifar undir fjögurra ára samning við Englandsmeistarana.
Danski miðvörðurinn Joachim Andersen fékk hundruð hatursfullra skilaboða frá stuðningsmönnum Liverpool eftir viðskipti sín við Darwin Núnez í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld. Hann birti nokkur skilaboð, þar á meðal ein frá íslenskum táningi.
Réttarhöldin yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, halda áfram. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi yfir þriggja ára skeið. Í dag bar Emma Greville, systir Kate, vitni.
Breska ríkisútvarpið heldur því fram að Cristiano Ronaldo gæti yfirgefið Manchester United áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 1. september næstkomandi. Útvarpsstöðin TalkSport tekur í sama streng og segir leikmanninn vera til sölu. Þá greinir Sky Sports frá því að Man United gæti sótt Pierre-Emerick Aubameyang til að leysa hann af hólmi.
Manchester United hefur farið skelfilega af stað í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur tapað báðum sínum leikjum til þessa, fengið á sig sex mörk og aðeins skorað eitt. Það er þó kaldhæðnislegt að leikmenn félagsins vilji sjá forráðamenn þess festa kaup á nýjum, og betri, leikmönnum.
Liverpool og Crystal Palace gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik annarrar umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Darwin Núñez, framherji Liverpool, fékk rautt spjald í leiknum fyrir að skalla leikmann Palace.
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur hjá Sky Sports í Bretlandi, fer ekki í grafgötur með það að félagið er í erfiðri stöðu í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City, sem hefur keppt við félagið um titilinn síðustu ár, er strax komið með fjögurra stiga forskot á þá rauðklæddu.
Úrúgvæinn Darwin Núñez fékk að líta beint rautt spjald í frumraun sinni með Liverpool á Anfield í kvöld, þar sem liðið gerði 1-1 jafntefli við Crystal Palace. Hann er aðeins annar Liverpool-maðurinn í sögunni sem fær rautt í fyrsta leik á Anfield.
Liverpool og Crystal Palace skildu jöfn, 1-1, í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Liverpool spilaði síðasta hálftíma leiksins manni færri eftir að nýji maðurinn Darwin Núñez fékk beint rautt spjald.
Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið lánaður frá enska knattspyrnufélaginu Arsenal, líkt og á síðustu leiktíð. Að þessu sinni fer hann til tyrkneska félagsins Alanyaspor.
Saksóknari lýsti því fyrir rétti í Englandi í dag hvernig knattspyrnumaðurinn Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City, hefði ásamt félaga sínum gert sér að leik að nauðga ungum konum í afgirtri glæsivillu sinni í Cheshire-sýslu.
Það er aldrei lognmolla í kringum Manchester United og þá sérstaklega ekki þegar liðinu gengur jafn illa og raun ber vitni. Nú hefur The Athletic heimildir fyrir því að Cristiano Ronaldo sitji einn og yfirgefinn í matsal félagsins og hagi sér reglulega eins og prímadonna sé eitthvað sem honum líkar ekki við á æfingum.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hrósaði nýja framherja liðsins á blaðamannafundi fyrir leik á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk um helgina tilkynningu um mann sem hafði misst stjórn á skapi sínu í heimahúsi er hann horfði á fótboltaleik. Lið hans var að tapa stórt en er lögregla kom á staðinn hafði hann náð að róa sig og sætt sig við tapið.
Að vera bæði FH og Manchester United stuðningsmaður í dag er algjört kvalræði og þau hin sömu hljóta að þurfa á miklum og jákvæðum stuðningi að halda eftir enn eina martraðarhelgina.
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Chelsea sé á höttunum á eftir Anthony Gordon, leikmanni Everton. Chelsea hefur boðið 40 milljónir punda en liðið frá Bítlaborginni sættir sig ekki við minna en 50 milljónir punda.
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, var allt annað en sáttur eftir 4-0 afhroð liðsins gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Leikmenn liðsins áttu að fá frí á sunnudag en Ten Hag boðaði þá á aukaæfingu eftir hörmungar frammistöðu deginum áður.
Thomas Tuchel var ekki par hrifinn af frammistöðu Anthony Taylor, dómara, í leik Chelsea gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla í dag.
Manchester United hefur neitað því að félagið ætli að rifta samningi Ronaldo vegna mögulegra hegðunarvandamála hjá framherjanum.
Chelsea og Tottenham Hotspur skildu jöfn, 2-2, þegar liðin mættust í Lundúnaslag á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla í dag.
Hermt var að Cristiano Ronaldo gæti verið á förum frá Manchester United á næstu dögum en samningi hans gæti verið rift vegna hegðunarvandamála. Það reyndist ekki vera rétt.
Taiwo Awoniyi tryggði Nottingham Forest fyrsta sigurinn í ensku úrvalsdeildinni í 23 ár en Forest lék síðasti sigurleikur Forest í úrvalsdeildinni kom árið 1999. Awoniyi skoraði eina markið í 1-0 sigri á West Ham.