

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Chelsea lagði Tottenham og ekki enn fengið á sig mark síðan Tuchel tók við
Chelsea vann sannfærandi 1-0 sigur á erkifjendum sínum í Tottenham Hotspur er liðin mættust á heimavelli síðarnefnda liðsins í kvöld.

Bednarek sleppur en Luiz fer í bann
Rauða spjaldið sem Jan Bednarek fékk í 9-0 tapi Southampton fyrir Manchester United hefur verið dregið til baka. Brottvísunin sem David Luiz, leikmaður Arsenal, fékk í 2-1 tapinu fyrir Wolves stendur hins vegar.

Enginn, ekki einu sinni James Milner, var fæddur þegar Liverpool lenti síðast í svona þurrkatíð á Anfield
Eftir tvo útisigra í London í síðustu viku þá héldu stuðningsmenn Liverpool örugglega að liðið þeirra væri búið að finna taktinn á nýjan leik. Annað kom á daginn á Anfield í gær.

Jesse Lingard var bara eitt stórt bros í gærkvöldi
Jesse Lingard hafði ekki fengið eina sekúndu í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en nýtti níutíu mínúturnar sínar vel í búningi West Ham í gærkvöldi.

Klopp: Eina útskýringin sem ég sé núna er að við séum þrekað lið
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, talað um vöntun á ferskleika í sínu liði eftir tap á móti Brighton á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Gylfi skorar bara með fyrirliðabandið
Gylfi Þór Sigurðsson var á skotskónum með Everton liðinu í gær þegar liðið vann 2-1 sigur á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni.

„Erum ekki í titilbaráttunni“
Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, segir að eins og sakir standa þá séu ensku meistararnir ekki í titilbaráttunni. Þetta sagði hann eftir 1-0 tap Liverpool gegn Brighton í kvöld en þetta var annað tap Liverpool í röð á heimavelli.

Aftur tapaði Liverpool á Anfield og Lingard skoraði tvö gegn Villa
Brighton náði í óvænt þrjú stig á Anfield í kvöld er liðið vann 1-0 sigur á ensku meisturnum í Liverpool. Á sama tíma sóttu David Moyes og lærisveinar í West Ham þrjú stig á Villa Park er liðið vann Aston Villa 3-1.

Gylfi skoraði og Everton vann
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrra mark Everton er liðið vann 2-1 sigur á Leeds á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Sigurinn mikilvægur fyrir Everton sem lá á heimavelli gegn Newcastle um helgina.

Öruggt hjá City og Leicester
Manchester City og Leicester unnu góða sigra í fyrstu tveimur leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni. City hafði betur gegn Burnley en Leicester gegn Fulham. Báðir leikirnir enduðu 0-2.

Fengið á sig sex víti og fengið þrjú rauð spjöld síðan hann kom til Arsenal
David Luiz fékk á sig vítaspyrnu og var rekinn af velli þegar Arsenal tapaði fyrir Wolves, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Rúnar ekki í Evrópudeildarhóp Arsenal
Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er ekki í Evrópudeildarhóp Arsenal sem liðið tilkynnti inn til UEFA í dag. Nokkrar breytingar voru gerðar á 25 manna listanum frá því fyrir áramót.

Fantasy-spilarar æfir út í Bednarek
Þeir Fantasy-spilarar sem völdu Jan Bednarek í liðið sitt hugsa honum eflaust þegjandi þörfina vegna frammistöðu hans í 9-0 tapi Southampton fyrir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær.

„Fokk! Er þetta að gerast aftur?“
„Ég tók nú bara þessa treyju því hún var það fyrsta sem ég sá í skápnum. Svo settist ég niður til að horfa leikinn og þá hófst þetta „shit show“,“ segir Hallgrímur Viðar Arnarson, stuðningsmaður Southampton, sem hugsar sig tvisvar um áður en hann klæðist aftur treyju liðsins sem hann á.

Guardiola með svaka lofræðu um nýja ómissandi manninn sinn
Pep Guardiola virðist vera búinn að finna sinn nýja uppáhaldsleikmann í Manchester City liðinu ef marka má lofræðu hans um portúgalska miðvörðinn Rúben Dias.

Rúnar Alex var ekki fæddur þegar þetta gerðist síðast hjá Arsenal
Rúnar Alex Rúnarsson fékk óvænt sitt fyrsta tækifæri í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar Arsenal tapaði á móti Wolves á útivelli.

Klopp ræddi mögulegt kraftaverk, áföll og aðdáun sína á óvæntum tækifærum
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var spurður út í stöðuna á hollenska miðverðinum Virgil van Dijk á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Brighton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hasenhüttl: Við eigum ekki fleiri leikmenn
Ralph Hasenhüttl var eðlilega dapur er hann mætti í viðtal hjá BBC eftir 0-9 tap sinna manna í Southampton gegn Manchester United á Old Trafford í kvöld.

Rúnar Alex fyrsti íslenski markvörðurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni
Rúnar Alex Rúnarsson skráði sig á spjöld knattspyrnusögunnar í kvöld er hann varð fyrsti íslenski markvörðurinn til að standa í marki liðs í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er Arsenal tapaði 2-1 gegn Wolves í kvöld.

Rúnar Alex kom inn af bekknum er Arsenal sá tvö rauð í tapi | Sharp gaf Sheffield líflínu
Tveimur af fjórum leikjum kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Wolves vann 2-1 heimasigur á Arsenal þar sem gestirnir fengu tvívegis að líta rauða spjaldið. Þá vann Sheffield United 2-1 sigur í uppgjöri botnliða deildarinnar.

Meistaradeildarleikur Liverpool mögulega á flakk
Það styttist í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar en það er samt ekki alveg ljóst hvar allir leikirnir verða spilaðir.

Hayes gæti orðið fyrsta konan sem tekur við ensku karlaliði
Enska C-deildarliðið AFC Wimbledon íhugar að ráða Emmu Hayes, knattspyrnustjóra Englandsmeistara Chelsea, sem næsta stjóra liðsins.

Skuggalegir menn komu heim til Ferdinands og sögðu honum að skrifa undir samning við United
Rio Ferdinand segir að hópur stuðningsmanna Manchester United hafi komið heim til sín 2005 og hvatt sig til að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Báru saman tvær súpersóknir Liverpool á London leikvanginum
Þeir sem sáu Mohamed Salah skora seinna markið sitt um helgina fannst örugglega að þeir hafi séð svona svipað mark áður. Það kom líka á daginn þegar fólkið á samfélagsmiðlum Liverpool fór að skoða málið betur.

Nýi Liverpool maðurinn í fjögurra leikja bann í vetur fyrir að hrækja á mótherja
Miðverðir úr b-deildarliði og verstu vörn þýsku deildarinnar eiga að bjarga málunum fyrir Jürgen Klopp og Liverpool í miðvarðarhallæri félagsins.

Að láni frá Liverpool á síðustu stundu
Southampton hefur fengið Japanann Takumi Minamino að láni frá Liverpool eftir að félaginu mistókst að fá Ainsley Maitland-Niles, sem fór frá Arsenal til West Bromwich Albion.

Gylfi fær norskan samherja
Framherjinn Joshua King er að semja við Everton. Þetta segir fréttamaðurinn Kris Temple sem vinnur hjá breska ríkisútvarpinu, BBC.

Matip frá út leiktíðina
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, hefur staðfest að varnarmaður liðsins Joel Matip muni ekki leika meira á leiktíðinni vegna ökklameiðsla.

Annar varnarmaður kominn til Liverpool
Liverpool hefur staðfest komu varnarmannsins Ozan Kabak til félagsins. Fregnir bárust af því snemma dags að Tyrkinn væri á leið til félagsins og nú hefur það verið staðfest.

„Í venjulegum glugga hefðum við ekki horft til Preston“
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að í venjulegum félagaskiptaglugga hefðu ensku meistararnir ekki horft til Preston í leit að nýjum leikmanni. Tilkynnt var í kvöld að Ben Davies, varnarmaður Preston, væri kominn til meistaranna.