
Eurovision-vaktin: Stóra stundin rennur upp hjá Hatara
Allt sem máli skiptir á stóra deginum á einum stað.
Fréttir af framlagi Íslendinga og annarra þjóða í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Allt sem máli skiptir á stóra deginum á einum stað.
Hugleikur Dagsson ferðaðist um Evrópu með brot úr sínu besta uppistandi. Í Finnlandi var lokasýningin tekin upp af kvikmyndagerðarmanninum Árna Sveinssyni
Fyrir tuttugu árum náði Selma Björnsdóttir þeim magnaða árangri að hreppa annað sætið í Eurovision þegar hún söng All Out of Luck. Þá var keppnin haldin í Jerúsalem.
Hatari er farinn af stað í lokakaflann á Eurovision-ævintýri sínu. Að loknum morgunverði í morgun skelltu söngvarar, dansarar og fylgdarfólk sér í svörtu og bláu íþróttagallana sína, kvöddu foreldra og maka áður en haldið var upp í rútu áleiðis í Expo Tel Aviv höllina.
Andrean Sigurgeirsson, dansari Hatara, hefur vakið mikla athygli um allan heim. Kærasti hans, Viktor Stefánsson, segir það einstaka upplifun að fylgja Hatara í keppninni.
Englendingurinn Peter Fenner er skilgreiningin á aðdáanda Íslands í Eurovision. Hann hefur fylgt íslenska hópnum eftir allt frá því hann heillaðist af All out of luck í Jerúsalem fyrir tuttugu árum. Enn er hann mættur og með tuttugu ára gamlan minjagrip með sér.
Hatari með lag sitt Hatrið mun sigra situr í sjötta sæti veðbanka að morgni úrslitadags Eurovision í Tel Aviv. Lagið er komið á kunnuglegan stað á ný í sjötta sæti þar sem það sat í um mánuð fram að brottför til Ísrael.
Hollendingar, með Duncan Laurence einan á píanóinu, eru af mörgum taldir sigurstranglegir í Eurovision í kvöld. Veðbankar um allan heim setja þá í fyrsta sæti. Liðsmenn Hatara eru klárir í kvöldið eftir aukaæfingu.
Það gekk bara mjög vel. Við vorum afslappaðri en vanalega held ég, sagði Matthías Tryggvi Haraldsson eftir dómararennslið í Eurovision í Expo-höllinni í Tel Aviv.
Kate Miller-Heidke, sem flytur framlag Ástralíu í Eurovision þetta árið, er fyrsti handhafi heiðurssleggju Hatara. Matthías Tryggvi Haraldsson, söngvari Hatara, hvatti Kate til að nota sleggjuna til að tortíma andstæðingum sínum á friðsælan hátt.
Í kvöld kom Hatari fram á dómararennslinu í Eurovision og flutti lagið Hatrið mun sigra en Ísland var 17. atriðið á sviðið.
"Ég lenti í því í fyrradag á götu hér í Ísrael að gangandi vegfarandi komst að því hvaðan ég væri og það var bara öskra gyðingahatari, gyðingahatari og aðrir vegfarendur litu upp og hugsuðu líklega hvaða stórhættulegi og furðulegi maður væri þarna á ferð."
Dómararennslið í úrslitum Eurovision stendur nú yfir í Expo Tel Aviv höllinni. Um er að ræða búningarennsli og eiginlega generalprufu fyrir sjónvarpsútsendinguna annað kvöld. Nema dómnefndir í þátttökulöndunum 41 horfa á og gefa einkunnir sínar.
Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins og stofnandi Þjóðarflokksins, segir Eurovision farið að snúast alltof mikið um homma og transfólk.
Leikarinn Will Ferrell mun sjálfur leika íslenskan Eurovision-söngvara í væntanlegri mynd bandaríska grínistans um Eurovision-söngvakeppnina.
Franska söngkonan Bilal Hassani með lagið Roi mun standa uppi sem sigurvegari í Eurovision þetta árið sé miðað við áhuga á söngkonunni á Google.
Moroccanoil er stoltur samstarfsaðili Eurovision söngvakeppninnar 2019 í Tel Aviv og er hár allra keppenda alfarið í höndum Antonio Corral Calero, alþjóðlegs fulltrúa Moroccanoil.
Segir þá hafa gert meira fyrir frjálsa Palestínu en flestir sem krefjast meira af þeim.
Hatari steig á sviðið í Expo-höllinni í Tel Aviv í dag og tók lagið Hatrið mun sigra á æfingu íslenska hópsins fyrir dómararennslið.
Kristlín Dís Ingilínardóttir er hluti af þéttum hóp Íslendinga í Tel Aviv sem saman stendur af fjölskyldum og kærustum liðsmanna Hatara. Hún er unnusta Matthíasar Tryggva Haraldssonar söngvara Hatara.
Söngkona Hera Björk Þórhallsdóttir hefur síðustu daga verið í Tel Aviv og kom meðal annars fram á Euro Café klúbbnum í vikunni.
Hollendingurinn Duncan Laurence hefur unnið hug og hjörtu á Eurovision í Tel Aviv og fátt virðist geta komið í veg fyrir að hann standi uppi sem sigurvegari í keppninni.
Hollendingurinn Duncan Laurence er langsigurstranglegasti keppandinn í Eurovision í ár.
Þessu greinir Jon Ola Sand framkvæmdastjóri Eurovision frá á Twitter-reikningi sínum í dag.
Nú liggur fyrir að Hatari verður 17. atriði á svið á úrslitakvöldi Eurovision annað kvöld. Það kann að gleðja Íslendinginn að sautjánda sæti í röðinni er sannkallað lukkusæti.
Gera má ráð fyrir mikilli partístemningu víða um land á morgun, þegar Hatari stígur á svið fyrir Íslands hönd í Eurovision-keppninni. Ísland hefur ekki komist upp úr undanúrslitum síðan árið 2014 svo búast má við miklu partíhaldi um land allt.
Hatari verður sautjándi á svið á úrslitakvöldi Eurovision í Tel Avív á laugardaginn.
"Klemens hefur alltaf verið mjög orkumikill, mjög fjörugur en átt mjög gott með að einbeita sér á sama tíma. Söngur og dans hefur verið hans dálæti frá því við munum eftir honum,“ segir Rán Tryggvadóttir, móðir Klemensar Nikulássonar Hannigan, annars söngvara Hatara.
Ekkert virðist geta haggað Duncan Laurence þegar kemur að mati veðbanka á líklegum sigurvegara í Eurovision þetta árið.
Í kvöld fór fram annar undanúrslitariðillinn í Eurovision og komust þá tíu þjóðir til viðbótar áfram á lokakvöldið.