Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Formenn ríkisstjórnarflokkanna segjast stoltar af því að hafa lagt málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin hafi fengið sitt að segja og ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og ætli ekki að halda viðræðum áfram. Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöðuna og framhaldið. Innlent 30. ágúst 2026 14:18
Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Formenn stjórnarandstöðu segja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Þau árétta að Evrópusamstarf sé Íslandi enn mikilvægt en skilaboð þjóðarinnar séu skýr til ríkisstjórnar um að einbeita sér að þeim verkefnum sem þau voru kjörin til að leysa, eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þau hafi ætlað að gera það með Evrópusambandinu en meirihluti þjóðar hafi ekki trúað á þá lausn. Innlent 30. ágúst 2026 12:45
Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Íslendingar hafa hafnað áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Lokatölur voru 46,95 prósent já og 53,05 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 09:32
Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Kosningavaka fréttastofu Sýnar verður á dagskrá í kvöld í beinni útsendingu á Sýn og á Vísi frá klukkan 22:15. Innlent 29. ágúst 2026 21:22
Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Kjörstöðum í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið verður lokað klukkan 22. Fylgst verður grannt með gangi mála í kosningasjónvarpi Sýnar og hér í kosningavaktinni á Vísi. Innlent 29. ágúst 2026 20:41
Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur BlueBay „alls ekki á óvart“ Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur einu stærsta skuldabréfastýringarfélagi Evrópu, sem er jafnframt umsvifamikill eigandi íslenskra ríkisskuldabréfa, ekki á óvart en hann telur að ef já-ið verður ofan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort hefja eigi á nýjan leik aðildarviðræður við ESB þá muni fjárfestar fara að veðja á samleitni vaxta við evrusvæðið. Innherji 29. ágúst 2026 15:24
Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Allir þeir sem fréttastofa ræddi við á förnum vegi í dag voru sammála um að umræðan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hefði ekki verið nægilega málefnaleg og erfitt að treysta á réttar upplýsingar. Flestir voru þó búnir að gera upp hug sinn. Innlent 28. ágúst 2026 21:02
Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Margmenni var í símaveri Áfram Ísland og Já til að sjá á lokametum kosningabaráttunnar. Kosningastjórar beggja fylkinga segja mikinn baráttuanda í fólki en hlakka þó til að setja tærnar upp í loft á sunnudaginn. Innlent 28. ágúst 2026 20:01
Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, vill að Íslendingar gangi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið að nýju. Hún náði þó ekki að greiða atkvæði og gagnrýnir að ekki hafi verið tekin upp rafræn kosning á Íslandi. Hún telur að barátta Ólafs Ragnars Grímssonar fyrir nei-hliðina muni koma í bakið á honum. Sjálf hafi hún með samningatækni knúið fram hagstæðari húsnæðislán hjá íslenskum banka. Innlent 28. ágúst 2026 14:59
Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Formaður Miðflokksins segir erlendum fjölmiðli að ríkisstjórn Íslands verði mögulega ekki skuldbundin til að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandsins jafnvel þótt það verði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun. Hann hefur ekki áhyggjur af ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland. Innlent 28. ágúst 2026 13:20
Inga segir já Inga Sæland formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra hefur þegar greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun, og sagði já. Inga segir hótanir, ósannindi og falsfréttir í aðdraganda kosninga yfirgengilegar. Henni hafi verið hótað eins og fleiri ráðherrum. Innlent 28. ágúst 2026 12:34
Þorgerður beygði af í Bítinu Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa borist alvarlegar hótanir síðustu vikur og átti erfitt með að ræða þær í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir þær til skoðunar hjá lögreglu. Hún segist þó telja sig örugga. Hún sagðist berjast fyrir bættum lífskjörum Íslendinga og að atkvæðagreiðslan á morgun snúist um það, og breytta stöðu alþjóðlega. Innlent 28. ágúst 2026 08:52
Segir Katrínu sparka í konuna sína Eiginmanni framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar blöskrar að Katrín Jakobsdóttir skuli stilla sér kyrfilega upp með peningavaldinu og sparka í konuna hans í leiðinni. Katrín ávarpaði samkomu Áfram Ísland á Austurvelli í gær og sagðist myndu kjósa nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Innlent 28. ágúst 2026 08:05
Hvað kýs fræga fólkið? Kosið verður á morgun um það hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fjöldi fólks hefur gefið upp afstöðu sína í málinu og hefur Vísir tekið saman tuttugu fræga einstaklinga sem ætla ýmist að kjósa já eða nei, af ýmsum ástæðum. Við sögu koma athafnamenn, listafólk, fólk úr íþróttaheiminum og fleiri góðir. Lífið 28. ágúst 2026 07:01
Við vitum nú þegar nógu mikið til að geta tekið upplýsta ákvörðun um að segja Nei ESB hefur með of mikilli reglugerðarvæðingu heft nýsköpun og aukið viðskiptakostnað verulega og þannig dregið úr verðmætasköpun og efnahagslegum lífsgæðum íbúa. Umræðan 28. ágúst 2026 06:37
Almenningur hafi aldrei átt séns Í fjórða og síðasta Pallborði Vísis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag mættu fyrst stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir. Þau snertu á upplýsingaóreiðu og hafði Eiríkur á orði að almenningur hafi aldrei „átt séns.“ Umræðan sé farin að minna ískyggilega mikið á Brexit umræðu í Bretlandi á sínum tíma. Innlent 27. ágúst 2026 14:38
Stöndum saman um heilög mál Frelsið er fjöregg þjóðarinnar sem okkur ber að varðveita. Þjóð sem hefur lotið erlendu yfirvaldi ætti að þekkja mikilvægi eigin ákvörðunarvalds. Lítil þjóð á ekki að berjast við sjálfa sig þegar grundvallarhagsmunir hennar eru í húfi. Hún á að standa saman um heilög mál eins og réttinn til að stjórna sjálf nýtingu auðlinda sinna til sjós og lands. Umræðan 27. ágúst 2026 07:05
Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp, söngkonan Bríet tók lagið og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson leiddi samtal við salinn í svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ í Austurbæ í Reykjavík sem fram fór fyrr í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Innlent 26. ágúst 2026 21:00
Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði. Innlent 26. ágúst 2026 18:59
Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar. Innlent 26. ágúst 2026 14:01
Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn. Erlent 26. ágúst 2026 11:22
Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já. Innlent 26. ágúst 2026 08:54
ESB-kosning á radar erlendra fjárfesta í íslenskum verðbréfum Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum. Innherji 26. ágúst 2026 06:37
„Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. Innlent 25. ágúst 2026 22:01
Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Tugir þúsunda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fer fram á laugardag. Opnunartími í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hefur verið lengdur nú þegar styttist óðum í kjördag. Innlent 25. ágúst 2026 20:52
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. Innlent 25. ágúst 2026 15:11
Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Greint verður frá niðurstöðum úr glænýrri könnun Maskínu í Pallborðinu nú þegar fjórir dagar eru í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Innlent 25. ágúst 2026 12:01
Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Elkem áætlar að núverandi tollakjör í Bandaríkjunum geti bætt afkomu verksmiðjunnar á Grundartanga um 300 til 350 milljónir króna á ári. Íslenskt kísiljárn, sjávarafurðir og eldisafurðir eru nú tollfrjálsar á Bandaríkjamarkaði á meðan vörur frá nokkrum helstu samkeppnisríkjum bera viðbótartolla. Viðskipti innlent 24. ágúst 2026 16:19
Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, biðlar til Donald Trump Bandaríkjaforseta að bjóða Íslendingum samning sem myndi gera Ísland að 51. ríki Bandaríkjanna. Handbolti 24. ágúst 2026 12:01
Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Fasteignaverð hefur rokið upp í löndum við inngöngu í Evrópusambandið. Fasteignasali segir þó ómögulegt að fullyrða hvað myndi gerast gangi Ísland inn í sambandið og taki upp evru. Viðskipti innlent 23. ágúst 2026 14:22
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent