Meirihluti Svía vill í NATO Meirihluti Svía er hlynntur aðild að Atlantshafsbandalaginu samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þetta er í fyrsta sinn sem meirihluti íbúa hefur verið fylgjandi aðild að bandalaginu. Erlent 21. apríl 2022 13:24
Innganga Finna geti breytt öryggisstrúktúrnum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ef Finnar ganga í Atlantshafsbandalagið geti það að einhverju leyti breytt öryggisstrúktúrnum í Evrópu. Finnska þingið hefur umræðu í dag um hvort að sótt verði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Innlent 20. apríl 2022 10:47
Ísland myndi styðja NATO-aðild Finna Íslensk stjórnvöld munu styðja aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu, komi til þess að Finnar sæki um aðild. Innlent 19. apríl 2022 07:39
Ísland búi sig undir hörð viðbrögð af hálfu Rússa Stjórnmálafræðiprófessor telur að Ísland þurfi að vera viðbúið því að verða fyrir barðinu á refsiaðgerðum Rússa, ef Finnland og Svíþjóð sækjast eftir aðild að NATO. Velta megi fyrir sér hvort Ísland sé „veikasti hlekkurinn í varnarkeðju NATO.“ Innlent 14. apríl 2022 12:00
Finnar og Svíar færast nær NATO-aðild Forsætisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar segja báðir að öryggislandslag Evrópu hafi tekið grundvallarbreytingum með innrás Rússa í Úkraínu. Það geti leitt til þessa að bæði ríki sæki um aðild að NATO, Atlantshafsbandalaginu. Erlent 13. apríl 2022 15:00
Finnar sparka líka rússneskum embættismönnum úr landi Stjórnvöld í Finnlandi hafa ákveðið að sparka tveimur rússneskum embættismönnum úr landi vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Ísland er þar með eina ríkið á Norðurlöndum sem ekki hefur vísað rússneskum embættismönnum úr landi. Erlent 8. apríl 2022 13:36
Stuðningur Finna við inngöngu í NATO aukist um níu prósent frá innrás Meira en sextíu prósent Finna eru hlynnt inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og aðeins sextán prósent þeirra eru mótfallnir því. Stuðningur við innöngu hefur aukist gríðarlega frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 14. mars 2022 14:42
Besta saunan í Breiðholtinu Saunan í Breiðholtslaug er sú besta í Reykjavík, samkvæmt úttekt finnska sendiráðsins á Íslandi. Lífið 27. febrúar 2022 19:41
Typpi skíðagarps fraus í annað sinn á einu ári: „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“ Þrátt fyrir að 50 km skíðaganga karla hafi verið stytt um 20 km á seinustu stundu í gær til að vernda keppendur frá veðri og vindum kom það ekki í veg fyrir að finnski skíðagarpurinn Remi Lindholm þurfti að afþýða sérstaklega viðkvæman líkamspart að keppni lokinni. Sport 20. febrúar 2022 17:02
RAX Augnablik: „Ég þurfti að labba þarna berrassaður í sjóinn“ Á ferð sinni um Finnland, þegar Ragnar Axelsson ljósmyndari var að skrásetja lífið á norðurslóðum, langaði hann að ná myndum af hinni miklu gufubaðshefð sem Finnar halda í heiðri. Menning 20. febrúar 2022 07:01
Finnar flýta afléttingu Stjórnvöld í Finnlandi hafa ákveðið að hefja afléttingu sóttvarnartakmarkana vegna Covid-19 fyrr en gert var ráð fyrir, þar sem álag á heilbrigðiskerfið þar fer minnkandi. Erlent 28. janúar 2022 10:08
Finnskur þingmaður sóttur til saka vegna ummæla um samkynhneigða Finnskur þingmaður og fyrrverandi innanríkisráðherra mætti fyrir dóm í dag, ákærður fyrir hatursorðræðu gegn samkynhneigðum. Málið snýst um athugasemdir sem þingmaðurinn lét falla um að samkynhneigð væri þroskaröskun og synd. Erlent 24. janúar 2022 13:08
Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. Erlent 21. janúar 2022 13:19
Finnar segja langtímaáhrif Covid geta orðið að stórslysi Stjórnvöld í Finnlandi hafa áhyggjur af langtímaáhrifum kórónuveirusjúkdómsins og velta því upp hvort afleiðingarnar geti hreinlega orðið að stórslysi fyrir heilbrigðiskerfið og þjóðfélagið í heild. Málið var kynnt á pallborðsumræðum í Finnlandi nýverið. Erlent 9. janúar 2022 14:56
Ótrúleg fjölgun hnúðlaxa er hulin ráðgáta Finnskur rannsóknarprófessor segir enga leið að spá fyrir um afleiðingar hinnar gríðarlegu aukningar í stofni hnúðlaxa í Norður Atlantshafinu. Hún gæti orðið drastísk ef vöxtur stofnsins heldur áfram á sömu braut og hann hefur verið á en hann virðist hafa tífaldast milli ára. Innlent 19. október 2021 13:34
Finnskir táningar í fangelsi fyrir hrottafengið morð Þrír finnskir drengir á táningsaldri hafa verið dæmdir til langrar fangelsisvistar eftir að þeir voru fundnir sekir um hrottafengið morð á kunningja þeirra. Erlent 4. september 2021 22:34
Hyypia lét kveikja í sér á hátíð Hvað ætli Liverpool-goðsögnin Sami Hyypiä sé að gera þessa dagana? Kappinn gekk alla vega um í ljósum logum á tónlistarhátíð í Finnlandi um helgina. Fótbolti 25. ágúst 2021 11:30
Strangari reglur fyrir ferðamenn hér en á hinum Norðurlöndunum Kröfur á ferðamenn, bæði íslenska og erlenda, sem koma hingað til lands eru mun harðari en á ferðamenn á hinum Norðurlöndunum. Bólusettir farþegar þar þurfa ekki að fara í skimun, hvorki fyrir heimferð eða eftir komuna til landsins. Innlent 24. ágúst 2021 22:22
Hefja nýja rannsókn á flaki Estonia í dag Ný rannsókn um orsök Estonia-slyssins hefst í dag og munu kafarar meðal annars halda niður að flaki farþegaferjunnar til að rannsaka gat á síðu skipsins sem sænskir heimildargerðarmenn uppgötvuðu í fyrra. Skipið hvílir nú á hafsbotni í Eystrasalti eftir að hafa sokkið í óveðri aðfaranótt 28. september 1994. Erlent 9. júlí 2021 11:41
Yfir þrjátíu stiga hiti á norðanverðum Norðurlöndunum Hitamet hafa fallið í hitabylgju sem gengur nú yfir Skandinavíuskaga og Finnland. Hitinn hefur farið vel yfir þrjátíu gráður í Lapplandi undanfarna daga. Erlent 6. júlí 2021 13:34
Dani sýknaður af ákæru um 34 ára gamalt morð í finnskri ferju Dómstóll í Turku í Finnlandi hefur sýknað danskan karlmann af ákæru um morð sem framið var um borð í finnskri ferju árið 1987. Erlent 30. júní 2021 11:16
Svíar vitna í Lloyd úr „Dumb and Dumber“ í léttu gríni um litla möguleika Finna Lloyd Christmas sá alltaf það besta í stöðunni sama hversu döpur hún var. Finnarnir verða að gera það sama í kvöld. Þeir eiga möguleika á sæti í sextán liða úrslitunum en sá möguleiki er þó frekar fjarstæður. Fótbolti 23. júní 2021 10:30
Leiðtogi Sannra Finna dregur sig í hlé Jussi Halla-aho, leiðtogi Sannra Finnra, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri í formannskjöri á landsfundi flokksins í Seinäjoki í ágúst. Hann segist þó ætla að sitja áfram sem þingmaður flokksins. Erlent 21. júní 2021 10:53
Bjórþyrsti spéfuglinn sem Finnar geta reitt sig á Markvörðurinn Lukas Hradecky fagnaði einu sinni sigri finnska landsliðsins með því að þamba heilt bjórglas frá stuðningsmanni. Það er eiginlega alltaf stutt í grínið hjá þessari þjóðhetju Finna en hann viðurkennir að minna hafi verið um grín eftir fyrsta leikinn á EM, sigurinn á Dönum þar sem Christian Eriksen fór í hjartastopp. Fótbolti 16. júní 2021 10:02
Finnar gerðu skýrar kröfur til Íslendinga Finnar létu sitt ekki eftir liggja í umdeildum skilaboðum í kynningarglugga sínum við lok atkvæðagreiðslunnar í Eurovision í kvöld. Þegar kom að þeim drógu þeir skyndilega upp skilti þar sem á stóð: „Play Jaja Ding Dong.“ Lífið 20. maí 2021 22:21
Finnsku stjórnarflokkarnir náðu samkomulagi Finnsku stjórnarflokkunum fimm hefur tekist að ná samkomulagi um fjárlagaramma til næstu þriggja ára. Hefur þannig tekist að koma í veg fyrir að stjórnin riði til falls líkt og sumir óttuðust eftir að viðræður drógust á langinn og leiðtogar eins stjórnarflokksins sögðust efast um framhald samstarfsins. Erlent 28. apríl 2021 11:38
Covid-pakki ESB í óvissu vegna erja á finnska stjórnarheimilinu Deilur innan finnsku ríkisstjórnarinnar tefla nú efnahagsaðgerðapakka Evrópusambandsins vegna kórónuveirufaraldursins í tvísýnu. Öll aðildarríkin þurfa að samþykkja pakkann en finnska stjórnin er sögð ramba á barmi falls. Erlent 27. apríl 2021 23:40
Hið meinta þunglyndi Finna stórlega orðum aukið Finnar mælast þeir hamingjusömustu í heimi samkvæmt árlegri árlegri hamingjuskýrslu. Íslendingar eru í öðru sæti. Innlent 19. mars 2021 13:30
Finnar lýsa yfir neyðarástandi og loka í þrjár vikur Stjórnvöld í Finnlandi hafa lýst yfir neyðarástandi vegna útbreiðslu hins svokallaða breska afbrigðis kórónuveirunnar í landinu. Sumar aðgerðir stjórnvalda taka gildi þegar í stað, en aðrar 8. mars. Munu aðgerðirnar gilda í þrjár vikur. Erlent 25. febrúar 2021 09:12
Evrópuríki lýsa yfir óánægju með breytingar Pfizer Nokkur Evrópuríki hafa lýst yfir óánægju vegna fyrirhugaðra breytinga á afhendingaráætlun Pfizer. Færri skammtar af bóluefni lyfjaframleiðandans munu berast til Evrópu frá og með næstu viku vegna þess að Bandaríkjadeild framleiðandans ætlar að hægja á flutningi efnisins til Evrópu. Erlent 15. janúar 2021 21:50