Íslendingar halda með Tékkum í kvöld: Umspilið undir Það er ekki bara mikið undir hjá Tékklandi og Moldóvu í Olomouc í kvöld þegar þjóðirnar mætast í lokaleik sínum í undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 20. nóvember 2023 12:00
Gerrard skiptir um skoðun og segir Ronaldo besta leikmann allra tíma Steven Gerrard, fyrrverandi fyrirliði Liverpool og núverandi þjálfari Al-Ettifaq, virðist vera búinn að skipta um skoðun á því hver besti leikmaður allra tíma er. Fótbolti 20. nóvember 2023 11:31
Völdu byrjunarliðið fyrir umspilið: Orri fremstur en ósammála um markmanninn Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson fengu það verkefni að velja byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir EM-umspilið sem það fer væntanlega í mars á næsta ári. Fótbolti 20. nóvember 2023 10:30
Kevin De Bruyne: Þetta er ekki ég Belgíski knattspyrnumaðurinn Kevin De Bruyne neitar því að hafa komið eitthvað nálægt því að semja nýja lagið hjá kanadíska rapparanum Drake. Enski boltinn 20. nóvember 2023 10:01
Skoraði tíu mörk á móti unglingaliði Liverpool Chido Obi-Martin er nafn sem fótboltaáhugafólk á örugglega eftir að heyra mikið af í framtíðinni. Enski boltinn 20. nóvember 2023 09:31
Hundrað leikmenn meiddir í ensku úrvalsdeildinni Er of mikið álag á bestu fótboltamönnum heims? Þegar þú skoðar meiðslalistann í ensku úrvalsdeildinni þá blasir svarið eiginlega við. Enski boltinn 20. nóvember 2023 09:00
„Margir góðir vinir mínir búa enn í Grindavík eða eiga fjölskyldu þar“ Landsliðsfyrirliðinn Alfreð Finnbogason á rætur að rekja til Grindavíkur og var spurður út í sinn gamla heimabæ eftir tap Íslands í Portúgal í lokaleik þjóðanna í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu. Fótbolti 20. nóvember 2023 07:30
Elísabet neitaði þjálfarastarfi hjá karlaliði í efstu deild í Svíþjóð Elísabet Gunnarsdóttir veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér en hefur áhuga á þjálfunarstarfi í einhverri af stærri deildum Evrópu. Hún hafnaði boði um að gerast aðstoðarþjálfari hjá liði í efstu deild karla í Svíþjóð. Fótbolti 20. nóvember 2023 07:01
Áfall fyrir ungu stjörnuna hjá Barcelona og spænska landsliðinu Spænski landsliðsmaðurinn Gavi sleit krossband í leik Spánar og Georgíu í undankeppni EM í gær. Fótbolti 20. nóvember 2023 06:34
Telur Ísland geta byggt á þessu fyrir mögulegt umspil „Við höfum verið að reyna mismunandi hluti en ég tel okkur hafa fundið kerfið og hvernig við viljum spila,“ sagði Åge Hareide eftir 2-0 tap Íslands gegn Portúgal í lokaleik þjóðanna í undankeppni EM karla í knattspyrnu. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:50
Skotland og Noregi gerðu jafntefli í stórskemmtilegum leik Leikjum dagsins í undankeppni EM karla í knattspyrnu er nú lokið. Skotland og Noregur gerðu 3-3 jafntefli, Spánn vann 3-1 sigur á Georgíu á meðan Slóvakía og Lúxemborg unnu útisigra í riðli Íslands. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:35
Umfjöllun: Portúgal - Ísland 2-0 | Tap gegn fullkomna liðinu og óvíst hvað tekur við Ísland lék í kvöld sinn síðasta leik í undankeppninni fyrir EM 2024 í fótbolta er liðið sótti Portúgal heim. Heimamenn unnu 2-0 sigur og áttu því fullkomna undankeppni en þeir unnu alla tíu leiki sína. Ísland endaði í 4. sæti J-riðils með tíu stig. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:30
Jóhann Berg: „Þetta er eitt skref fram á við“ Íslenska landsliðið tapaði 2-0 ytra gegn Portúgal í síðasta leik sínum í undankeppni EM 2024. Liðið bætti þó heildarframmistöðu sína mjög eftir slakan leik gegn Slóvakíu síðastliðinn fimmtudag. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:23
Sjáðu mörkin sem fullkomnuðu fullkomna undankeppni Portúgals Portúgal lagði Ísland 2-0 í lokaleik liðanna í undankeppni EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2024. Portúgal vann alla tíu leiki sína í undankeppninni og lýkur henni því með fullt hús stiga. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:20
Jón Dagur um Ronaldo: „Hann ýtti mér eitthvað“ „Við vorum helvíti þéttir. Auðvitað fengu þeir einhverja sénsa í endann en frammistaðan, sérstaklega varnarleikurinn, er eitthvað sem við getum byggt á,“ sagði Jón Dagur Þorsteinsson, kantmaður Íslands, eftir 2-0 tapið gegn Portúgal í lokaleik undankeppni EM í fótbolta í kvöld. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:06
„Þurfum að halda í það sem við erum góðir í“ „Mér fannst þetta mjög fínt, vörðumst vel og vorum þéttir,“ sagði Guðlaugur Victor Pálsson, varnarmaður Íslands, um 2-0 tap liðsins gegn Portúgal ytra í lokaleik undankeppni EM 2024. Þrátt fyrir tap sagði Guðlaugur Victor að það væru nokkrir ljósir punktar í frammistöðu kvöldsins. Fótbolti 19. nóvember 2023 21:59
Einkunnir Íslands gegn Portúgal: Hákon Rafn framúrskarandi þrátt fyrir mistök í markinu Ísland tapaði síðasta leik sínum í undankeppni EM 2024 gegn Portúgal ytra, 2-0. Heilt yfir átti íslenska liðið fínan leik og spilaði mun betur en í síðasta leik gegn Slóvakíu. Tveir menn enduðu jafnir með hæstu einkunn, Hákon Rafn og Arnór Sigurðsson. Báðir áttu þeir frábæran leik, en lækkuðu aðeins í einkunn eftir mistök sem leiddu að marki. Fótbolti 19. nóvember 2023 21:56
Tapið í Portúgal á Twitter: „Þetta er markmaður númer 1 hjá okkur“ Ísland tapaði 2-0 gegn Portúgal í lokaleik liðanna í undankeppni EM 2024. Fótbolti 19. nóvember 2023 20:50
Bayern aftur á toppinn Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir stóð vaktina í vörn Bayern München þegar liðið tyllti sér á topp þýsku úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu. Fótbolti 19. nóvember 2023 19:46
Lukaku skoraði fernu í fyrri hálfleik Belgía rúllaði Aserbaísjan upp í lokaleik þjóðanna í undankeppni EM 2024. Þá vann Svíþjóð 2-0 sigur á Eistlandi. Fótbolti 19. nóvember 2023 19:21
Byrjunarlið Íslands í Portúgal: Sex breytingar Byrjunarlið Íslands fyrir lokaleik liðsins í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu er klárt. Fótbolti 19. nóvember 2023 18:49
Man City fór með sigur af hólmi á Old Trafford Nágrannarnir og fjendurnir í Manchester United og City mættust í stórleik ensku úrvalsdeildar kvenna á Old Trafford í dag. Gestirnir fóru með 3-1 sigur af hólmi. Enski boltinn 19. nóvember 2023 18:46
Afi dæmdi fótboltaleik 3. flokks kvenna þegar enginn dómari mætti Afi leikmanns UMF Selfoss stökk inn í hlutverk dómara þegar enginn dómari mætti á leik 3. flokks kvenna í knattspyrnu á Faxaflóamótinu í dag. Foreldri segir atvikið ekki einsdæmi hjá liðinu. Forsvarsmaður Breiðabliks harmar atvikið. Sport 19. nóvember 2023 18:14
Þrír sendir heim fyrir leikinn mikilvæga gegn Moldóvu Tékkland og Moldóva mætast á mánudag í leik sem sker úr um hvor þjóðin kemst á EM 2024 í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi. Tékkland verður án þriggja nokkuð sterkra leikmanna en þremenningarnir voru sendir heim fyrir agabrot. Fótbolti 19. nóvember 2023 17:49
Segir James óstöðvandi í þessum ham og lét svo rétthafa heyra það Emma Hayes, þjálfari Englandsmeistara Chelsea, sparaði ekki stóru orðin um Lauren James eftir 5-1 sigur liðsins á Liverpool. Þá lét hún stjórnendur efstu deildar kvenna í Englandi sem og sjónvarpsréttahafa heyra það en leikurinn var sá þriðji á aðeins sex dögum hjá Chelsea. Enski boltinn 19. nóvember 2023 16:46
Ungverjaland og Serbía á EM Ungverjaland og Serbía eru komin á Evrópumót karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2024. Fótbolti 19. nóvember 2023 16:11
Bruno sér hættuna við lið Íslands sem hefur að engu að keppa Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United og portúgalska landsliðsins, segist eiga von á erfiðum leik við Ísland líkt og hann og liðsfélagar hans upplifðu í Reykjavík fyrr á árinu. Leikurinn verði góð prófraun fyrir Portúgal sem hefur unnið alla sína leik í undankeppni EM til þessa. Fótbolti 19. nóvember 2023 15:31
Upphitun fyrir Portúgal – Ísland: Á ferð með Gumma Ben í Tuk Tuk um götur Lissabon Íslenska karlalandsliðið í fótbolta heimsækir Portúgal á José Alvalade leikvanginum í Lissabon í kvöld. Um er að ræða lokaleik liðsins í undankeppni EM 2024. Fótbolti 19. nóvember 2023 14:42
Óvissa uppi varðandi þátttöku Arnórs í kvöld Óvíst er hvort Arnór Ingvi Traustason muni geta tekið þátt í leik Íslands við Portúgal í Lissabon í kvöld í lokaumferð undankeppni EM 2024 í fótbolta. Fótbolti 19. nóvember 2023 14:31
Mikilvæg stig í súginn hjá Bröndby Kristín Dís Árnadóttir og liðsfélagar hennar í Bröndby urðu að sætta sig við 2-1 tap gegn Fortuna Hjörring í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 19. nóvember 2023 14:00