Króatar fara heim með verðlaun annað mótið í röð Króatía lagði Marokkó að velli með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin leiddu saman hesta sína í leiknum um bronsverðlaunin á heimsmeistaramótinu í fótbolta karla í Doha í Katar í dag. Króatar unnu brons á HM 1998 en Afríkulið hefur aldrei unnið verðlaun á heimsmeistaramóti. Fótbolti 17. desember 2022 16:54
Markvörðurinn laminn til blóðs með tunnu - myndskeið Það fór allt úr böndunum í nágrannaslag Melbourne-liðanna Melbourne City og Melbourne Victory í efstu deild karla í fótbolta í nótt. Stuðningsmaður Melbourne Victory lamdi meðal annars markvörð Melbourne City, Thomas Glover, í höfuðið en leikurinn var flautaður af í kjölfarið af ólátum stuðningsmanna liðanna. Fótbolti 17. desember 2022 12:54
Deschamps segir spurningar um endurkomu Benzema fáránlegar Didier Deschamps, þjálfari franska karlalandsliðsins í fótbolta, sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik heimsmeistaramótsins en þar mætir franska liðið því argentínska í Doha í Katar á morgun. Deschamps var meðal annars spurður hvort einhver möguleiki væri á að Karim Benzema yrði í leikmannahópi Frakka í þeim leik. Fótbolti 17. desember 2022 12:36
FIFA bannar Zelensky að senda ákall um frið fyrir úrslitaleikinn Beiðni Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, um að fá að senda skilaboð um frið á jörð, fyrir úrslitaleik Argentínu og Frakklands á heimsmeistaramótinu í fótbolta karla sem spilaður verður í Doha í Katar á morgun var hafnað af alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Fótbolti 17. desember 2022 11:48
Nýliðarnir styrkja sig Brynjar Snær Pálsson genginn til liðs við karlalið HK í fótbolta. Brynjar Snær sem er 21 á miðvallarleikmður kemur í Kórinn frá Skagamönnum en þessi uppaldi Borgnesingur hefur leikið með Skaganum frá árinu 2017. Fótbolti 17. desember 2022 08:53
HM félagsliða verður eins og HM landsliða árið 2025 Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusamabndsins - FIFA - hefur tilkynnt að sambandið hygðist hefja leik á glænýrri heimsmeistarakeppni félagsliða árið 2025. Fótbolti 17. desember 2022 08:00
Segir að FIFA hafi heilaþvegið Wenger Arsene Wenger hefur verið heilaþveginn af FIFA og hefur farið úr því að vera klárasti maðurinn í bransanum yfir í það að segja ótrúlega heimskulega hluti. Þetta segir landsliðsþjálfari Noregs. Fótbolti 16. desember 2022 23:31
Tryggðu sig áfram þótt ekki tækist að troða boltanum í markið Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði 75 mínútur í markalausu jafntefli Wolfsburg og Slavia Prag í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Úrslit kvöldsins þýða að Wolfsburg hefur endanlega tryggt sæti sitt í 8-liða úrslitum. Fótbolti 16. desember 2022 22:31
Varane og Konaté að glíma við veikindi Þátttaka frönsku miðvarðanna Raphaël Varane og Ibrahima Konaté í úrslitaleik HM í fótbolta sem fram fer á sunnudag er í hættu. Báðir eru að glíma við veikindi en margir af leikmönnum franska liðsins hafa verið veikir að undanförnu. Fótbolti 16. desember 2022 18:01
Sláandi staðreynd um Benzema og að Frakkar séu betri án hans Karim Benzema er handhafi Gullhnattarins í ár og var aðalmaðurinn á bak við sigur Real Madrid í Meistaradeildinni í vor. Það lítur hins vegar út fyrir að franska landsliðið sé betra án hans. Fótbolti 16. desember 2022 15:30
Sinisa Mihajlovic látinn Sinisa Mihajlovic, fyrrverandi leikmaður Roma, Lazio, Inter og fleiri liða, er látinn eftir baráttu við krabbamein. Hann var 53 ára. Fótbolti 16. desember 2022 14:31
Treyjan hans Messi er uppseld Lionel Messi hefur öðrum fremur komið argentínska landsliðinu alla leið í úrslitaleikinn á HM með fimm mörkum og þremur stoðsendingum í sex leikjum. Fótbolti 16. desember 2022 14:30
Macron býður Benzema, Kanté og Pogba á úrslitaleikinn Emmanuel Macron Frakklandsforseti vill bjóða meiddum leikmönnum franska landsliðsins á úrslitaleik HM. Frakkland mætir þar Argentínu og með sigri verja Frakkar heimsmeistaratitilinn sem þeir unnu í Rússlandi fyrir fjórum árum. Fótbolti 16. desember 2022 14:01
Nökkvi í fyrsta sinn í landsliðinu Nökkvi Þeyr Þórisson, leikmaður Beerschot í Belgíu, er í fyrsta sinn í íslenska landsliðshópnum í fótbolta sem mætir Eistlandi og Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum á Algarve í byrjun næsta árs. Fótbolti 16. desember 2022 13:34
Mættu til „ömmu“ Messi og sungu nafn hetjunnar Argentínska þjóðin svífur um á bleiki skýi þessa dagana eftir frábært gengi fótboltalandsliðsins á heimsmeistaramótinu í Katar. Fótbolti 16. desember 2022 13:01
Þrír þjálfarar sem töpuðu fyrir Marokkó á HM hafa misst starfið sitt Marokkóbúar komust fyrstir Afríkuþjóða í undanúrslitin á heimsmeistaramótinu í fótbolta en þrír landsliðsþjálfarar sem duttu út fyrir þeim á leiðinni þangað héldu ekki starfinu sínu. Fótbolti 16. desember 2022 12:01
Harðorður í garð Infantino: Sjálfshagsmunaseggur sem vill engu breyta Fyrrum þýski landsliðsmaðurinn Phillipp Lahm, sem er jafnframt mótsstjóri EM 2024, sem fram fer í Þýskalandi, er lítt hrifinn af Gianni Infantino, forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Fótbolti 16. desember 2022 11:30
Grátleg mistök: Veðjaði ekki á rétta argentínska landsliðið til að vinna HM Þegar þú setur pening á landslið að vinna heimsmeistaramót þá er betra að vera með á hreinu í hvaða íþrótt þú ert að veðja. Fótbolti 16. desember 2022 11:01
Uppáhaldsdómari íslenska landsliðsins dæmir úrslitaleik HM í Katar Pólverjinn Szymon Marciniak verður með flautuna í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Katar. Fótbolti 16. desember 2022 09:01
Man City fékk rúmlega hálfan milljarð fyrir þá leikmenn sem fóru á HM Ekkert er ókeypis í lífinu og þar með talið er að leyfa leikmönnum að taka þátt á stórmóti í fótbolta. Alþjóðaknattspyrnusambandið borgar félögum leikmanna fyrir hvern dag sem þeir voru í Katar. Manchester City fékk langmest af liðunum í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 16. desember 2022 07:30
„Eins og staðan er núna þá verð ég áfram en maður veit aldrei hvað gerist“ Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson lék frábærlega með Norrköping á nýafstöðu tímabili í Svíþjóð. Hann kom á láni til félagsins frá CSKA Moskvu og hefur lítinn áhuga á að fara aftur til Moskvu eins og staðan er í dag. Arnór var meðal gesta í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem er alla laugardaga á X-977. Fótbolti 15. desember 2022 23:30
Lyon vann í London | Miedema mögulega illa meidd Evrópumeistarar Lyon fóru til Lundúna í kvöld og sóttu þrjú stig í greipar Arsenal. Til að bæta gráu ofan á svart þá fór hollenska markamaskínan Vivianne Miedema illa meidd af velli. Óvíst er hversu lengi hún verður frá. Fótbolti 15. desember 2022 22:15
Blésu af æfingar yngri barna vegna kuldans Knattspyrnuæfingum yngri flokka var aflýst hjá Þrótti í Reykjavík vegna kuldans í dag. Yfirþjálfari segir að búast megi við að gripið verði til frekari slíkra ráðstafana vegna veðurs á morgun. Innlent 15. desember 2022 21:28
Glódís Perla og stöllur í Bayern svo gott sem komnar áfram Bayern München vann öruggan 4-0 útisigur á Rosengård í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Sigurinn þýðir að Bayern er svo gott sem komið í 8-liða úrslit. Glódís Perla Viggósdóttir var að leika sinn 50. leik fyrir Bayern. Fótbolti 15. desember 2022 19:46
Viðar Örn skoraði þegar Atromitos féll úr leik | Öruggt hjá Herði Björgvini Viðar Örn Kjartansson skoraði eina mark Atromitos gegn stórliði Olympiacos í grísku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld. Skömmu áður höfðu Hörður Björgvin Magnússon og félagar í Panathinaikos flogið áfram. Fótbolti 15. desember 2022 19:30
KSÍ breytir leyfiskerfinu: Félög í efstu deild karla verða að vera með kvennalið Knattspyrnusamband Íslands hefur samþykkt breytingu á leyfiskerfi sambandsins sem hljóðar þannig að lið í Bestu deild karla verða að vera með meistaraflokkslið sem keppir á Íslandsmóti kvenna. Íslenski boltinn 15. desember 2022 18:35
Jordan kaupir hlut í ensku úrvalsdeildarliði Hollywood-leikarinn Michael B. Jordan er nýr hluteigandi enska úrvalsdeildarliðsins Bournemouth. Félagið tilkynnti um fjárfestingu Jordans í dag. Enski boltinn 15. desember 2022 15:30
Real Madrid vann kapphlaupið um undrabarnið Endrick Real Madrid hefur náð samkomulagi við Palmeiras um kaup á brasilíska undrabarninu Endrick. Fótbolti 15. desember 2022 14:33
Draumur Katara að rætast Sjeik Tamim bin Hamad al-Thani, emírinn af Katar, gæti ekki beðið um betri úrslitaleik á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem fram fer í landinu. Fótbolti 15. desember 2022 13:31
Brasilísk goðsögn heldur með Messi á sunnudaginn Svo mikið er Lionel Messi æðið í heiminum að Brasilíumenn eru líka farnir að halda með honum í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Fótbolti 15. desember 2022 12:00