Ævintýraleg helgi að baki hjá Þorbirni: „Þetta var bara endalaust“ Steinar Þór Kristinsson, frá björgunarsveitinni Þorbirni á Grindavík, telur að fjölmargir ferðamenn hafi misst af flugferðum af landi brott um helgina. Fleiri hundruð manns var komið til bjargar. „Þetta var bara endalaust,“ segir Steinar Þór. Innlent 19. desember 2022 09:09
„Löng helgi hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum“ Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum var kallað út snemma í morgun til að sinna ýmsum verkefnum tengdu óveðrinu sem nú gengur yfir landið. Innlent 19. desember 2022 07:38
Hellisheiði og Reykjanesbraut báðar lokaðar Óveður gengur nú yfir landið og eru gular viðvaranir í gildi víða og appelsínugul viðvörun í gildi á Suðausturlandi. Innlent 19. desember 2022 06:43
Pólverjar um þriðjungur útskriftarnema frá Fisktækniskólanum Tæplega þriðjungur nemenda sem útskrifuðust úr Fisktækniskóla Íslands í vikunni sem leið eru Pólverjar. Rekstrarstjóri fiskvinnslu í Grindavík segir fiskvinnsluna ekki geta verið án erlends vinnuafls. Pólverjarnir eru hæstánægðir með námið sem að hluta var kennt á pólsku. Innlent 18. desember 2022 20:45
Garðvegur lokaður: Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík mjög slæm Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík er mjög slæm. Garðvegur verður lokaður í einhvern tíma vegna snjómoksturs. Á svæðinu er enn mjög þungfært. Innlent 18. desember 2022 18:23
Tólf hundruð veðurtepptum ferðalöngum bjargað af Grindavíkurvegi í nótt Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík vann mikið þrekvirki í nótt þegar hún kom rúmlega þúsund manns, sem höfðu setið fastir á Grindavíkurvegi vegna veðurs í hálfan sólarhring, til byggða. Björgunarsveitir biðla til fólks að huga vel að veðurspám en gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mánudag og þriðjudag. Innlent 18. desember 2022 12:03
Um þrjú hundruð bílum komið af Grindavíkurvegi í nótt Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík stóð í ströngu, ásamt Lögreglunni á Suðurnesjum og Vegagerðinni, við að létta á umferð og gera Grindavíkurveg færan. Áætlað er að um þrjú hundruð bílar hafi verið ferjaðir af veginum í bílalestum. Innlent 18. desember 2022 10:02
Búið er að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg Víða er enn ófært en Vegagerðin tilkynnti í morgun að búið væri að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg. Varað er við mannlausum bifreiðum á hægri akrein Grindavíkurvegar, á tvöfalda kaflanum. Innlent 18. desember 2022 08:00
Ferðamenn streyma í Bláa lónið en Grindavíkurvegur lokaður Lögregla og björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum hefur ekki undan við að vísa ferðamönnum frá Grindavíkurvegi sem nú er lokaður vegna ófærðar. Lögregla hvetur fólk til að vera ekki á ferð á Suðurnesjum að ástæðulausu. Innlent 17. desember 2022 12:34
Þrjátíu bílar fastir á Grindavíkurvegi Verið er að kalla út allar björgunarsveitir á Suðurnesjum og ræsa þar aðgerðarstjórn vegna þrjátíu bíla sem fastir eru á Grindavíkurvegi. Innlent 17. desember 2022 11:29
Ótrúlegur sigur Vals | Keflavík vann í Grindavík Valur vann hreint út sagt ótrúlegan sigur á Fjölni í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 63-122 í Grafarvogi í kvöld. Þá vann Keflavík góðan sigur á Grindavík. Körfubolti 14. desember 2022 21:30
Grindavík Íslandsmeistari í pílukasti Grindavík varð um helgina Íslandsmeistari félagsliða í pílukasti. Átta lið voru skráð til leiks. Sport 13. desember 2022 16:31
Leituðu í alla nótt og fara nú yfir gögnin Leit með neðansjávarfari að skipverjanum á Sighvati GK-57 hélt áfram í alla nótt og var leit hætt nú skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Farið verður yfir gögnin og staðan tekin aftur síðar í dag. Innlent 7. desember 2022 10:32
Öryggismyndavélar um borð en engin upptaka af slysinu Leitin að skipverjanum sem féll frá borði við Garðskagavita á laugardag hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Suðurnesjum segir að öryggismyndavélar hafi verið um borð en myndbandsupptaka sé ekki til af slysinu. Innlent 6. desember 2022 15:14
Skipverjinn þriggja barna faðir sem flutti til Íslands ungur Skipverjinn á Sighvati GK-57 í Grindavík sem leitað hefur verið að frá því á laugardag heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980. Hann býr í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum. Innlent 5. desember 2022 20:49
Leitin að skipverjanum ekki enn borið árangur Leitinni að karlmanni, sem féll frá boði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa á laugardag var haldið áfram í dag. Hún hefur þó ekki borið árangur og henni hætt í kvöld. Leit hefst aftur í morgunsárið með varðskipi Landhelgisgæslunnar en óákveðið er hvort þyrlan verði kölluð út. Innlent 5. desember 2022 19:46
Skýrsla tekin af skipstjóranum í morgun Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af skipstjóra Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun. Skipverji féll frá borði Sighvats síðdegis á laugardag í Faxaflóa og stendur leit að honum enn yfir. Innlent 5. desember 2022 14:31
Samfélagið í Grindavík í sárum og bíður þess að skipverjinn finnist Samfélagið í Grindavík er í sárum eftir að sjómaður, búsettur í bænum, féll frá borði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa. Þetta segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Innlent 5. desember 2022 11:38
Reykjanesbraut opnuð tímabundið vegna óveðurs Hlé hefur verið gert á malbikunarframkvæmdum á Reykjanesbraut vegna veðurs. Innlent 17. nóvember 2022 07:13
Reykjanesbraut lokuð í sólarhring Reykjanesbraut verður lokað í kvöld á kaflanum frá Grindavíkurvegi og í átt að Hafnarfirði vegna malbiksframkvæmda. Veginum verður lokað klukkan 20 í kvöld og er áætlað að opnað verði á ný klukkan 20 annað kvöld. Innlent 16. nóvember 2022 09:07
Tvö hundruð tonna sæeyrnaeldi í Grindavík HS Orka og Sæbýli undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku. Gert er ráð fyrir byggingu á tvö hundruð tonna eldi sem mögulegt er að fimmfalda á næstu tíu árum. Viðskipti innlent 15. nóvember 2022 14:45
Óþrifnaður við gosstöðvarnar Mörg hundruð manns leggja leið sína að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli á hverjum degi þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá goslokum. Klósettskortur á svæðinu hefur verið til vandræða þar sem þreyttir göngugarpar hafa gert þarfir sínar úti í náttúrunni og skilið ummerkin eftir. Innlent 26. október 2022 21:02
Sendu tvær þyrlur eftir sprengingu um borð í flutningaskipi Landhelgisgæslunni barst í dag tilkynning um eld um borð í erlendu flutningaskipi undan ströndum Íslands. Áhafnir tveggja þyrla, varðskipsins Þórs og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum voru kallaðar út á mesta forgangi. Innlent 24. október 2022 15:50
Ítrekaður utanvegaakstur í Reykjanesfólkvangi Umhverfisstofnun hefur fengið ítrekaðar ábendingar eða orðið vitni að akstri bifreiða og torfærutækja utan vega við Vigdísarvallaleið og í nágrenni Kleifarvatns. Innlent 20. október 2022 10:26
Barátta grindvískra barna fyrir lengri opnun í sundlauginni skilar árangri Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar hefur lagt til að opnunartími sundlaugarinnar í bænum verði lengdur til klukkan 18 um helgar yfir vetrartímann í stað klukkan 16. Breytingin kemur í kjölfar undirskriftarsöfnunar grunnskólabarna í bænum. Innlent 19. október 2022 11:26
Helgi Sig tekur við þjálfarastarfinu í Grindavík Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur staðfest ráðningu á Helga Sigurðssyni sem nýjum þjálfara liðsins. Íslenski boltinn 9. október 2022 16:49
Blikar kláruðu Grindavík á útivelli Breiðablik vann 12 stiga sigur á Grindavík suður með sjó í Subway-deild kvenna, 65-77. Körfubolti 5. október 2022 21:15
Þórður fær lóðir því hann dró ás Ellefu manns og fyrirtæki sóttu um lóðirnar Mávahlíð 9 til 11 í Grindavík. Umsóknirnar voru teknar fyrir á fundi afgreiðslunefndar byggingarmála í bænum. Til að ákveða hver fengi lóðina var notast við spiladrátt. Innlent 3. október 2022 11:07
Loka pósthúsunum í Grindavík, á Skagaströnd og Kópaskeri Pósturinn hyggst loka pósthúsum sínum í Grindavík, á Skagaströnd og á Kópaskeri um miðjan janúar á næsta ári. Í svörum frá Póstinum segir að engar uppsagnir séu þó fyrirhugaðar í tengslum við lokanirnar. Innlent 22. september 2022 10:23
Eldgosið í Fagradalsfjalli frábrugðið öðrum eldgosum Vísindamenn segja undanfara eldgossins í Fagradalsfjalli hafa verið ólíkan undanförum annarra eldgosa í heiminum. Fyrir gosið dró úr skjálftavirkni, en algengara er að jarðskjálftavirkni aukist fyrir gos, þegar kvika þrýstir sér upp á yfirborðið. Þeir segja niðurstaða rannsóknar um eldgosið í Fagradalsfjalli mikilvæga fyrir alþjóðasamfélagið. Innlent 14. september 2022 20:37