
Vönduð vinnubrögð?
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir frumvarp um hækkun á veiðigjaldi vera vel og faglega unnið. Sú fullyrðing er í mótsögn við staðreyndir málsins. Það endurspeglast vel í því að áhrif frumvarpsins á hagaðila, sem eru fjölmargir, hafa hvorki verið metin af opinberri stofnun né af hennar eigin ráðuneyti.