Fitnessdrottning opnar matardagbók Freyja Sigurðardóttir Fitnessdrottning með meiru leyfði okkur að skyggnast örlítið inn í líf sitt með því að skrá niður matardagbókina sína. Hún segir vatnsdrykkju vera gríðarlega mikilvæga sem og góður svefn. Vaknaði 04:45. Græjaði mig í vinnuna, fékk mér heimatilbúið múslí. Það samanstendur af tröllahöfrum, rúsínum, þurrkuðum ávöxtum, hnetum og Hleðslu próteindrykk út á. Tók inn tvær CLA fitusýrur, vítamín og eitt risastórt vatnsglas. Þá brunaði ég Reykjanesbrautina og mætti í Hreyfingu klukkan 6:00 til að þjálfa en ég starfa þar sem einkaþjálfari. Klukkan 7:00 tók ég sjálf æfingu. Fyrir æfinguna fékk ég mér HydroxyCut Hardcore brennslu efni blandað í vatn og tók síðan hrikalega á því. Eftir æfingu fékk ég mér súkkulaði próteindrykk Whay Isolate frá Fitnesssport. Ég elska þennan próteindrykk en bragðið er alveg æðislegt. Klukkan 8:15 hélt ég áfram að þjálfa kroppalingana mína í Hreyfingu. Klukkan 10:00 fékk ég mér eitt epli og vatn. Klukkan 12:00 fékk ég mér NINGS en ég alveg elska heilsuréttina þaðan. Á Nings á ég fjóra uppáhalds rétti en ég mæli hiklaust með þeim fyrir þá sem vilja huga vel að því sem þeir setja ofan í sig. Nr.88 Tröllatrefjar með kjúklingi og grænmeti. Nr.60 Tofukjöt og blandað grænmeti með Satay sósu Nr.65 Steiktar eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti Nr.68 Ristaðar hrísgrjónanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti. Fyrir valinu í dag var réttur númer 88. Réttirnir frá Nings eru alveg ekta, allt þeirra hráefni er lífrænt. Ég drakk vatn með. Þjálfaði þennan dag til klukkan 15:00. Á heimleiðinni drakk ég eina ískalda karmellu Hleðslu og borðaði einn banana. Hlustaði á Hljóma og Valdimar í botn á leiðinni. Var síðan mætt til Keflavík City klukkan 16:00 en þá voru vaktaskipti á börnunum mínum þremur. Halli, maðurinn minn, fór á æfingu og ég tók við duglegum strákum. Við fórum saman í Nettó að versla í matinn. Jökull Máni elsti strákurinn minn fékk að velja kvöldmat og fyrir valinu varð Fahitas og Taco með fullt af grænmeti. Kvöldmatur klukkan 19:00. Fahitas, grænmeti, Taco sósa, sýrður rjómi 5% og fituminna hakk. Þessi réttur slær alltaf í gegn. Síðan fórum við í smá hjólatúr en fjölskyldan er nýbúin að fjárfesta í hjólum. Drakk alveg fullt af vatni yfir daginn en það er gríðarlega mikilvægt. Svo var ég alveg búin á því klukkan22:00. Svefn er líka mikilvægur og þess vegna reyni ég að hvílast vel því næsta dag vakna ég klukkan 05:20. Lífið 26. maí 2011 08:15
Léttist um 20 kg Ég er búin að vera í megrun meira og minna í tuttugu ár, sagði Júlía Albertsdóttir sem léttist um 20 kg eftir að hún byrjaði að nota náttúrulegt efni sem nefnist CC Flax sem er sérhannað fyrir konur. Í meðfylgjandi myndskeiði segir hún hvernig hún fór að því að léttast og líða betur í kjölfarið. Ekki nóg með að náttúruefnið, sem Júlía hefur tekið inn síðan árið 2010, vinni gegn fyrirtíðarspennu og einkennum breytingarskeiðsins hjá konum þá sýnir kanadísk rannsókn sem gerð var á 115 konum að þær sem juku neyslu á efninu höfðu lægri fitumassa. CC Flax inniheldur mulin hörfræ (Lignans), trönuberjafræ og kalk úr sjávarþörungum. Lífið 19. maí 2011 10:26
Græja sem grennir Halldóra Ástrún Jónasdóttir starfsmaður hjá Trimform Berglindar og Hulda Lind Kristindóttir fyrirsæta útskýra í meðfylgjandi myndskeiði hvað trimform-græja gerir en um er að ræða blöðkur sem eru settar upp við þau svæði á líkamanum sem eru slöpp. Þá fræða Unnur Kristín Óladóttir Íslandsmeistari í módelfitness 2011 og Kristbjörg Jónasdóttir sem varð í örðu sæti í sömu keppni okkur hvað þær fá út úr þessari græju. Lífið 11. maí 2011 15:15
Rauðkur heitar í sumar Sandra Olgeirsdóttir hjá Hárhönnun 101 og Iðunn Aðalsteinsdóttir litafræðingur Aveda eru nýkomnar heim frá London þar sem þær kynntu sér nýjungar í hárlitun og klippingum en þær sýna í meðfylgjandi myndskeiði nýjungar þegar kemur að hári. Appelsínurauður litur kemur sterkur inn og þrívíddarklipping. Mini Master Djamm hjá Aveda. Lífið 10. maí 2011 13:10
Lygilega sniðug augnmálning Margrét Friðriksdóttir förðunarfræðingur gerir vægast sagt magnaða hluti með því að nota XOXO förðunarpakkann á andlit Írisar Bjarkar Jóhannesdóttur ungfrú Reykjavík 2010 eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Margrét farðar annað augað á Írisi á mettíma. Sjón er sögu ríkari. Lífið 5. maí 2011 17:15
Svona færðu stinnan rass og sléttan maga Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Helga Lind Björgvinsdóttir þjálfari í Hreyfingu nokkrar auðveldar en góðar æfingar til að styrkja maga, rass og læri. Æfingarnar eru tilvaldar til að gera heima í stofu. Lífið 28. apríl 2011 14:50
Hér er svarið ef þú ert með krullur Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sandra Olgeirsdóttir hárgreiðslumeistari hvernig hægt er að færa krulluðu hári raka, skerpa á krullunum og koma í veg fyrir að hárið verði úfið. Hún notar undraefni frá Aveda sem heitir Be Curly Style-Prep. Aveda á Facebook Aveda.is Lífið 28. apríl 2011 08:43
Þetta er algjör snilld í hárið Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sandra Olgeirsdóttir hárgreiðslumeistari og einn af eigendum hársnyrtistofunnar 101 Hárhönnun á Skólavörðustíg hvernig nota má undraefni frá Aveda í hárið sem kallast Pure Abundance. Sandra kryddar hárið með efninu sem gefur hárinu lygilega lyftingu með því að nudda púðrinu í hársvörðinn. Lífið 27. apríl 2011 12:48
Bæ bæ baugar (nei þetta er ekki enn ein bótox fréttin) Helga Emilsdóttir förðunarfræðingur hjá Bobbi Brown í Lyf og heilsu í Kringlunni sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig hægt er að afmá dökkar línur og bauga í kringum augun á auðveldan máta með hyljara frá snyrtivöruframleiðandanum La Mer. Veitið athygli hvernig fyrirsætan Marentza Poulsen lítur út í byrjun myndskeiðsins, þ.e. áður en Helga setur hyljarann í kringum augun hennar. Útkoman er vægast sagt frábær. Lífið 21. mars 2011 18:10
Svona færðu helköttaða handleggi Ester Júlía Olgeirsdóttir Zumba kennari í World Class veit hvað þarf til að komast í hörkuform og fá helköttaða handleggi. „Aðalmálið er að næra sig rétt, hreyfa sig sex sinnum í viku, vera duglegur að mæta og fara eftir ráðum þjálfarans..." sagði Ester meðal annars í miðjum Zimba tíma með keppendum í fegurðarsamkeppni ungfrú Reykjavík 2011. Sjá má viðtalið við Ester í meðfylgjandi myndskeiði. Lífið 7. febrúar 2011 12:53
Keppendur ungfrú Reykjavík í ræktinni Fegurðardrottning Reykjavíkur 2011 verður krýnd með mikilli viðhöfn 25. febrúar næstkomandi á veitingahúsinu Broadway þar sem fegurstu fljóð höfuðborgarsvæðisins keppa um þessa eftirsóttu nafnbót. Eins og meðfylgjandi myndir sýna tóku keppendur ærlega á því í World Class í Laugum í dag. Frábær stemning ríkir í hópnum sem er áberandi hraustlegur og fagur á að líta. Þá má einnig sjá þegar stúlkurnar teygðu vel úr sér og dönsuðu við taktfasta tónlist í Zumba tíma. Lífið 6. febrúar 2011 18:02
Upphandleggurinn er 42 sentimetrar að ummáli Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson undirbýr sig nú af krafti fyrir hlutverk sitt sem hrottinn Tóti úr bókinni Svartur á leik en tökur á myndinni hefjast 1. mars. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Stefáns Mána sem kom út fyrir sex árum en hitt aðalhlutverkið verður í höndum Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar. Hann mun leika Stebba sækó. Lífið 5. febrúar 2011 13:00
Taktu mataræðið endanlega í gegn Þórdís Jóna Sigurðardóttir annar eigandi veitingahússins HaPP sem hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi hefur nú sett á laggirnar svokallaða „HaPP daga" sem fram fara í Stykkishólmi. Um er að ræða fimm daga ferð þar sem lögð er áhersla á gott mataræði, hreyfingu og að ekki sé minnst á náin tengsl við náttúruna. Lífið 30. janúar 2011 10:15
Það er náttúrulega sturlun að hlaupa stanslaust í 24 tíma Gunnlaugur Júlíusson maraþonhlaupari hleypur í 24 tíma á bretti í World Class í Kringlunni í dag. Hvað 24 tíma hlaup á bretti varðar þá hefur enginn Íslendingur tekist á við það fyrr. Gunnlaugur varð fyrstur Íslendinga til að hlaupa 100 km hlaupi á bretti fyrir ári síðan í World Class í Laugum. Norðurlandametið í 24 tíma hlaupi á Kim Rasmussen frá Danmörku en hann hljóp 202,9 km árið 2004. Einn Norðmaður hefur hlaupið 24 tíma á bretti en það er Lars Sætran sem hljóp 193 km árið 2003. Sænska metið er 181 km sett fyrr á þessu ári af Hans Byren. Það sem best er vitað hefur enginn Finni hlaupið 24 tíma á bretti. Allir sem hafa áhuga á að fylgjast með Gunnlaugi eru velkomnir á staðinn hvenær sem er meðan á hlaupinu stendur. Hlaupið hefst kl.12:00 í dag, laugardag, 18.desember í World Class í Kringlunni 1 og er það jafnframt formleg opnun á 24 stunda opnun 7 daga vikunnar á Heilsurækt World Class í Kringlunni. Nánari upplýsingar er að finna á www.worldclass.is. Lífið 18. desember 2010 11:07
Trylltur með klikkað fótaflæði Í meðfylgjandi myndskeiði segir Stella Rósenkranz frá danska dansaranum Sonny Petersen sem kemur frá Los Angeles til að halda námskeið hér á landi um helgina. „Hér er hip hop. Það gerast ekki tæknilega flóknari dansarnir en þetta í hip hop-i. Stjórnin á líkamanum er ótrúleg og samt svo áreynslulaust," sagði Stella og sýndi okkur myndband með Sonny. Sjá hér (Youtube) „Hér er house dans. Þetta er svo skemmtilegur stíll. Sjúklega erfið fótavinna og maður svitnar endalaust! Það skapast líka geðveik stemmning í þessum tímum, gjörsamlega tryllt," sagði hún. Sjá hér (Youtube). Skráning er í s. 553 0000 í World Class og námskeiðið fer fram í World Class í Laugum. Lífið 11. nóvember 2010 17:18
Svona færðu stinnan bossa - myndband Sigrún Björg Ingvadóttir einkaþjálfari og Tabata kennari í World Class í Kringlunni sýnir okkur heimaæfingar fyrir efri og neðri hluta líkamans sem auðvelt er að framkvæma. Eina sem Sigrún notast við er stóll og teygja. Sjá æfingarnar í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 9. október 2010 09:30
Sjö ráð til að koma sér í form Gunnar Borg Sigurðsson þolfimileiðbeinandi í World Class taldi upp eftirfarandi heilræði þegar við báðum hann um sjö ráð til handa þeim sem vilja koma sér í gott líkamlegt form: Lífið 8. september 2010 09:15
Í hot-jóga kennaranám til Taílands Gyða Pétursdóttir flytur til Taílands í byrjun október þar sem hún hyggst læra til jógakennara. Gyða mun dvelja ásamt öðrum nemendum á paradísareyjunni Koh Samui og stunda þar hot-jóga, hugleiðslu og læra kennslutækni. Lífið 3. september 2010 19:00
Kökuhús Pocahontas Álftamýrarskóli hefur staðið fyrir skreytingakeppni á piparkökuhúsum síðustu tvö ár. Nemendur í unglingadeild skólans taka þátt í liðakeppni um best skreytta húsið. Heilsuvísir 19. desember 2008 06:00
Á sama stað í tuttugu ár Í heil tuttugu ár hafa fjórtán vaskar vinkonur hist á hverjum miðvikudegi á veitingastaðnum Á næstu grösum og snætt heilsusamlegan hádegisverð. Þessar sömu konur byrjuðu saman í leikfimi fyrir um 26 árum og hafa haldið hópinn síðan. „Ein okkar byrjaði á því að smala vinkonum og kunningjakonum í leikfimi. Heilsuvísir 19. desember 2008 03:00
Ómótstæðileg jólakort Jólakort úr hvítu súkkulaði með jólakveðju og mynd eru til þess fallin að gleðja ættingja og vini með óvæntum hætti. Sumir veigra sér þó við því að borða sína nánustu en erfitt er að standast freistinguna. Heilsuvísir 12. desember 2008 06:00
Alltaf til efni í naglasúpu Bókverkakonan Áslaug Jónsdóttir á alltaf til gott hráefni í súpu heima hjá sér. Hún fær nefnilega sent ferskt, íslenskt grænmeti vikulega og lumar svo á kryddi úr eigin ræktun í krukkum og frysti. Heilsuvísir 12. desember 2008 06:00
Tók fiskinn loks í sátt Finnbogi Marinósson ljósmyndari segist hafa lært að meta fisk sem veislukost eftir vinnu sína við matreiðslubókina Meistarinn og áhugamaðurinn. Áður pantaði hann aldrei fisk á matsölustað. Heilsuvísir 28. nóvember 2008 06:00
Matseðillinn til reiðu Systkinin Valgarð og Linda Sörensen eru að fara af stað með fyrirtæki sem útbýr í samvinnu við valda aðila innkaupalista með uppskriftum sem nálgast má við inngang stærri matvöruverslana. Heilsuvísir 28. nóvember 2008 06:00
Leynivopnin í eldhúsinu Guðrún Möller gefur lítið fyrir afrek sín í eldhúsinu en segist klóra sig fram úr uppskriftum fái hún undirbúningstíma. Góð áhöld segir hún nauðsynleg við eldamennskuna. Heilsuvísir 14. nóvember 2008 06:00
Að sofa eins og ungbarn Stundum er sagt um þá sem sofa óslitnum svefni að þeir sofi eins og ungbarn, en þó eiga mörg börn ónáðugar nætur fram eftir aldri. Þar kemur Foreldraskólinn til hjálpar með námskeið í svefni barna. Heilsuvísir 6. nóvember 2008 04:00
Lífrænt, létt og ljúffengt Matur, sem gerir manni gott í munni, maga, sál og sinni, býðst nú þar sem veisluborðin svigna undan freistandi og bráðhollum heilsukrásum í Krúsku, glampandi nýrri matsölu NLFÍ á Suðurlandsbraut. Heilsuvísir 24. október 2008 07:00
Allir borða plokkfiskinn Steinn Óskar Sigurðsson matreiðslumaður kom dætrum sínum upp á fiskát með því að matreiða plokkfisk á nýjan máta og eru dæturnar duglegar við að aðstoða pabba sinn í eldhúsinu. Heilsuvísir 24. október 2008 06:00
Hraðskreiðar skutlur Rafskutlur sjást orðið víða á götum bæjarins en þeir sem þær nota eru einkum eldri borgarar og fólk sem á erfitt með gang. H-Berg flytur inn rafskutlur af ýmsum stærðum og gerðum. Heilsuvísir 22. október 2008 04:00
Hildur fatahönnuður í nýjasta hefti Vogue Vegleg umfjöllun verður um fatahönnuðinn og tískuteiknarann Hildi Björk Yeoman í nýjasta hefti tímaritsins Vogue í Portúgal. Blaðamaður tímaritsins sá einkasýningu Hildar Bjarkar í versluninni Kronkron á Laugavegi og leist rosalega vel á það sem fyrir augu bar. Heilsuvísir 7. október 2008 08:00