

Húsnæðismál

Íbúðamarkaðurinn okkar
Fjármagn stýrir miklu. „Cash is king“ er stundum sagt á enskunni. Ein stærsta yfirsjónin í aðdraganda kreppunnar 2008 á heimsvísu var hve lítið hagfræðilíkön tóku mið af áhrifum fjármálakerfisins á hagkerfið. Nú er talað um fjármálasveiflu, ekki bara hagsveiflu.

Halldór segir lánið frá Fossum tengjast ótengdu og ónefndu verkefni
Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, gagnrýnir fréttaflutning Vísis um fasteign hans og viðskipti við Fossa ehf. og segir umfjöllunina „í öllum aðalatriðum ranga“ og byggða á „órökstuddum vangaveltum.“

Dularfull fjármögnun dýrasta húss á Íslandi
Halldór Kristmannsson hefur sett hús sitt við Sunnuflöt 48 í Garðabæ á sölu. Höll. Ef Halldór fær viðunandi tilboð má búast við því að þar fari dýrasta hús Íslandssögunnar. Enda um glæsilega lúxusvillu að ræða sem vart á sér hliðstæðu hér á landi.

Segir hagstæðara að kaupa fyrstu eign í dag en eftir ár
Hagstæðara er fyrir þá sem ætla sér að koma sér inn á fasteignamarkaðinn sem fyrstu kaupendur að gera það núna en það verður eftir um ár. Vaxtahækkunarferli sé nú hafið og útlit sé fyrir að það muni halda áfram og á sama tíma mun hægja á íbúðaverðshækkunum.

Hinn langþráði stjórnarsáttmáli
Mörg stór og mikilvæg mál bíða þess að á þeim verði tekið af djörfung og dug. Vonandi taka hinir þjóðlegu íhaldsflokkarnir sem nú vinna að stjórnarsáttmála sig á og gerast framfarasinnaðir og alþjóðlegir því mikið liggur við fyrir þjóðina. Hér eru nokkur mál sem spennandi er að sjá hvort og þá hvernig tekið verður á í sáttmálanum.

Hófu framkvæmdir við nýja 450 íbúða byggð í Þorlákshöfn
Framkvæmdir hófust í dag við uppbyggingu fyrsta áfanga nýrrar 450 íbúa byggðar í Þorlákshöfn sem fær nafnið Móabyggð. Fyrsta skóflastungan var tekin að byggingu fyrstu 78 íbúðanna í morgun.

Sitja fyrstu kaupendur í súpunni?
Íbúðaverð hefur hækkað um 15% undanfarið ár. Mikil eftirspurn er á íbúðamarkaði um þessar mundir sem framboðið annar ekki.

Félagsbústaðir eru óhagnaðardrifð leigufélag
Í tilefni af aðsendri grein Gunnars Smára Egilssonar sem birtist á visi.is fyrr í vikunni um starfsemi Félagsbústaða sé ég mig knúna til að koma mikilvægum upplýsingum um starfsemina á framfæri og leiðrétta rangfærslur eða misskilning sem fram kemur í skrifum Gunnars Smára.

Íbúðaverð kunni að halda áfram að hækka hratt
Greiðslubyrði húsnæðislána hefur lækkað um 27% frá árinu 2019 ef tekið er mið af lækkun vaxta og hækkun ráðstöfunartekna á tímabilinu. Hækkandi ásett verð og lítið söluframboð benda til þess að íbúðaverð kunni að halda áfram að hækka hratt næstu mánuði.

Mikil eftirspurn eftir íbúðum í september og fleiri íbúðir seljast á yfirverði
Umsvif á fasteignamarkaði jukust lítillega í september eftir minnkun síðustu mánuði. Enn hefur dregið úr fjölda íbúða sem auglýstar eru til sölu og þá er meðalsölutími íbúða með því lægsta sem mælst hefur.

Félagsbústaðir högnuðust um rúman milljarð á starfsemi sinni
Gunnar Smári Egilsson sakar Félagsbústaði um það sem hann kallar næsta bæ við glæpsamlega starfsemi.

Félagsbústaðir okra á fátækum
Þrátt fyrir að ætla mætti að Félagsbústaðir, sem halda utan um félagslegar leiguíbúðir Reykjavíkur, sé óhagnaðardrifið félag er mikill hagnaður af rekstrinum.

Rafrænir húsfundir
Í byrjun sumars tóku gildi breytingar á lögum um fjöleignarhús og er stjórn húsfélags nú heimilt að halda rafræna húsfundi, að einhverju leyti eða öllu, enda sé tryggt að félagsmenn geti tekið fullan þátt í fundarstörfum.

Meira byggt í Bolungarvík en sést hefur í seinni tíð
Óvenju mikil umsvif eru í húsbyggingum í Bolungarvík, bæði í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Ráðamenn bæjarins segjast í seinni tíð ekki hafa séð annan eins fjölda umsókna um lóðir undir nýjar íbúðir.

Ný stjórn Samtaka leigjenda: Leigumarkaðurinn skuli þjóna leigjendum
Staða leigjenda er of veik, réttindi þeirra lítil og húsnæðiskostnaður of hár. Breyta þarf leigumarkaðinum svo að hann þjóni leigjendum, en miðsnoti þá ekki. Þetta segir í tilkynningu frá stjórn Samtaka leigjenda sem skipuð var á aðalfundi í gær.

Þúsundir íbúða í pípunum í Reykjavík
Á næstu tíu árum verða byggðar um eða yfir tíu þúsund íbúðir í Reykjavík og tuttugu og fimm þúsund á næstu tveimur áratugum sem þýðir að fjöldi íbúða í borginni tvöfaldist á þeim tíma. Þá verði tuttugu og fjórum milljörðum varið í uppbyggingu innviða í tengslum við fjölgun íbúða.

Dagur segir næstu tíu ár verða áratug Reykjavíkur
Næstu tíu ár verða áratugur Reykjavíkur í uppbyggingu íbúðarhúsnæði að sögn borgarstjóra. Nægt framboð sé af lóðum og þúsundir íbúða verði byggðar á næstu mánuðum og árum.

Bein útsending: Uppbygging íbúða í Reykjavík
Árviss kynningarfundur borgarstjóra Reykjavíkur um uppbyggingu íbúða í borginni verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur milli klukkan 9 og 11. Hægt er að horfa á fundinn á Vísi.

Stefnt að aðgerðum vegna búsetu í atvinnuhúsnæði
Borgarstjóri segir að reikna megi með því að minnsta kosti hundruð manna búi í atvinnuhúsnæði þar sem aðbúnaði og öryggi fólks sé ábótavant. Gera eigi gangskör að því að meta umfangið og grípa til aðgerða í framhaldinu án þess þó að ógna húsnæðisöryggi fólks.

Húsnæðisverð hækkaði meira en spár gerðu ráð fyrir
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,59% milli mánaða í október og mælist nú 4,5 prósent. Þetta er mesta verðbólga á árinu frá því í apríl þegar hún mældist 4,6%. Verðbólgan er að miklu leyti til knúin áfram af miklum hækkunum á íbúðaverði að því er kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.

Bjarni segir verðbólguna ekki komna úr böndunum
Fjármálaráðherra segir verðbólguna ekki farna úr böndunum en hún hélt áfram að aukast í þessum mánuði og mælist nú fjögur komma fimm prósent. Hækkun húsnæðisverðs heldur áfram að drífa verðbólguna áfram en án hennar mælist verðbólgan þrjú prósent á síðustu tólf mánuðum.

Fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði og kortleggja búsetu fólks
Fulltrúar slökkviliðs munu á næstu mánuðum fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og kortleggja búsetu fólks. Ráðist er í verkefnið í kjölfar brunans á Bræðraborgarstíg og slökkviliðsstjóri segir markmiðið að tryggja öryggi þeirra sem búa í slíku húsnæði.

Fyrst koma innviðirnir, svo uppbyggingin
„Undanfarin ár hafa verið algjör metár í uppbygginu í borginni og það sem við erum að leggja upp með er að það haldi áfram. Og raunar ætlum við að bæta í heldur en hitt.“ Þetta sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Bítínu á Bylgjunni í morgun, þar sem rætt var um húsnæðismál í höfuðborginni.

Afsiðun húsnæðismarkaðarins
Frá aldamótum fram að síðustu áramótum hækkaði verð á íbúðum í sambýli um 411%. Á sama tíma hækkaði almennt neysluverð um 151%. Þetta merkir að verð á íbúðum hækkaði um meira en helming umfram almennt verðlag. Það er galið.

Sementsskortur á landinu sem gæti komið byggingaiðnaðinum illa
Sementsskortur er yfirvofandi á landinu, sem valdið hefur steypuframleiðendum verulegum vandræðum. Framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar segir að fyrirtækið geti nú aðeins þjónustað helming viðskiptavina sinna og gæti skorturinn haft veruleg áhrif á byggingariðnað á landinu.

Efast um að borgin kaupi fleiri smáhýsi
Smáhýsi fyrir heimilislausa hafa nú verið ónotuð í geymslu í rúmt ár þar sem erfiðlega hefur gengið að finna þeim samastað. Formaður velferðarráðs Reykjavíkur segir andstöðu við málið hafa komið sér á óvart og efast um að borgin kaupi fleiri smáhýsi.

Telja að jafnvægi náist ekki nema meira sé byggt
Sérfræðingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru ósammála hagfræðingum Landsbankans um að jafnvægi sé mögulegt á húsnæðismarkaðnum á næstunni. Telja þeir margt benda til að slíkt jafnvægi náist ekki nema núverandi byggingaráform verði aukin.

Íbúðaverð heldur áfram að hækka
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði að meðaltali um 1,2% milli ágúst og september. Fjölbýli hækkaði um 1,2% og sérbýli um 1,3%. Vegin árshækkun mælist nú 16,4% og hækkar um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði. Íbúðasala var minni en á fyrri mánuðum árs.

Þéttingarstefnan skapi íbúðaskort í Reykjavík
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins í Reykjavík segja þéttingarstefnu meirihutans í húsnæðismálum eiga sinn þátt í að skapa skort á nýjum íbúðum í borginni. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir hins vegar met hafa verið slegið í fjölda íbúða á undanförnum árum.

Pawel segir met hafa verið slegið í fjölda nýrra íbúða í borginni
Pawel Bartoszek formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur sagði í Pallborðinu á Vísi í dag að aldrei hefðu verið byggðar eins margar íbúðir í borginni og gert hefði verið á undanförnum árum. Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og Kolbrún Baldursdóttur oddviti Flokks fólksins gagnrýndu hins vegar meirihlutann fyrir einstrengingslega stefnu í íbúðamálum.