

Innrás Rússa í Úkraínu
Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

UNICEF kemur 62 tonnum af hjálpargögnum til Úkraínu
Um helgina komu sex fulllestaðir flutningabílar frá UNICEF til Lviv í vesturhluta Úkraínu með alls 62 tonn af hjálpargögnum. Sendingin kemur frá alþjóðlegu vöruhúsi UNICEF í Kaupmannahöfn og meðal hjálpargagna eru hlífðarfatnaður fyrir heilbrigðisstarfsfólk, margvísleg sjúkragögn, þar á meðal lyf, skyndihjálparpakkar, ljósmóðurpakkar og tæki og búnaður til skurðaðgerða. Hátt í 20 þúsund hlý teppi og vetrarfatnaður fyrir börn eru einnig á leið til Úkraínu gegnum Pólland frá vöruhúsi UNICEF í Tyrklandi.

Rússneski áróðurs-fimleikamaðurinn sér ekki eftir að hafa merkt sig með Z
Rússneski fimleikamaðurinn Ivan Kuliak hljóp ekkert í felur þrátt fyrir að hafa hneykslað marga með stríðsáróðri sínum á heimsbikarnum í fimleikum og hefur hann nú tjáð sig um atvikið.

Sprengingar heyrast í Kænugarði: Í fyrsta sinn sem hann verður var við átökin, segir ljósmyndari
Nú fyrir stundu heyrðust tvær miklar sprengingar í miðborg Kænugarðs. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem býr í borginni, segist sjá reyk liggja upp frá miðbænum og hvíta rák eins og eftir flugskeyti.

Smásál vermir stól forseta lýðveldisins
Það fer um mig hrollur að fyrsta framlag ríkisstjórnarinnar til „friðar” í Úkraníu hafi verið að leggja til Íslenska flugvél undir vopnaflutninga. Með þeirri aðgerð tók Ísland beinan þátt í styrjöld sem var svo trompað í Silfri RÚV af forseta sem gengur nú erinda vopnaframleiðenda eins og ég sagði í aðdraganda forsetakosninga að hann myndi gera á örlagastundu ef kjörinn í embætti.

Óvíst hvort Úkraínumenn fá MiG-þoturnar en Bandaríkjamenn senda Patriot-kerfi til Póllands
Algjör óvissa ríkir um það hvort Úkraínumenn fái MiG-29 herþotur frá Póllandi eftir nokkurn vandræðagang bandarískra og pólskra stjórnvalda. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, mun heimsækja Pólland í dag þar sem málið verður líklega á dagskrá.

Vinnum að friði!
Á níunda áratug síðustu aldar var veröldin á heljarþröm. Risaveldin kepptust við að stækka vopnabúr sín og óttast var að heimsstyrjöld gæti brotist út, jafnvel bara fyrir mistök eða misskilnings.

Leiðtogar Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmana neita að ræða við Biden
Leiðtogar Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmana eru sagðir hafa neitað að eiga samtal við Joe Biden Bandaríkjaforseta á síðustu vikum á sama tíma og Biden og ráðamenn í Evrópu hafa leitað leiða til að draga úr gríðarlegri hækkun olíuverðs.

Vaktin: Pepsi, Coca-Cola, McDonalds og fleiri loka í Rússlandi
Rússar hafa hótað að skrúfa fyrir gasútflutning til Evrópu en Evrópuríkin, Bandaríkin og Japan íhuga nú að hætta að kaupa olíu frá Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu.

Vottaði rússneskri þjóð sem lent hafi í klóm „sturlaðs einræðisherra“ samúð
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar flutti í kvöld ávarp á friðartónleikum sem haldnir voru í Hallgrímskirkju vegna stríðsins í Úkraínu. Íslenskt tónlistarfólk flutti tónlist fyrir þá sem voru samankomnir í kirkjunni og mótmæltiþar hernaðarbrölti rússneskra stjórnvalda.

Leggur til að sumarbústaðir verði nýttir sem húsnæði fyrir flóttamenn
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss hvetur verkalýðsfélög landsins til að lána sumarbústaði sína undir flóttafólk frá Úkraínu. Hann nefnir Ölfusborgir til dæmis í því sambandi en þar er um fjörutíu hús, sem gætu rúmað tæplega 200 manns frá Úkraínu.

Hafa vart undan við að prenta úkraínska fánann
Gríðarleg eftirspurn er eftir úkraínska fánanum og hefur Fánasmiðjan á Ísafirði vart undan við að prenta hann. Fjölmargir flagga nú fánanum til þess að sýna samstöðu með Úkraínumönnum.

LME lokar fyrir viðskipti með nikkel eftir 177 prósenta verðhækkun
London Metal Exchange (LME) lokaði í dag fyrir viðskipti með nikkel og gerir ráð fyrir áframhaldandi lokun næstu daga. Í tilkynningu segja forsvarsmenn LME um að ræða fordæmalausar aðstæður.

Tugir fallið í borgum Úkraínu í dag
Tugir hafa fallið í stórskotaliðs- og eldflaugaárásum Rússa á borgir í Úkraínu undanfarinn sólarhring. Rússar hóta að hætta útflutningi á gasi til Þýskalands og annarra evrópuríkja. Bandaríkjaforseti tilkynnti um bann á innflutningi á olíu frá Rússlandi í dag og Bretar ætla að þynna innflutninginn út á árinu. Um tvær milljónir manna hafa flúið Úkraínu.

„Hryllingur að þetta sé að gerast 2022“
Mikið mæðir á sjálfboðaliðum við landamæri Póllands og Úkraínu sem taka á hverjum degi á móti þúsundum flóttafólks.

Hættuástandi lýst yfir á landamærunum vegna fjöldaflótta frá Úkraínu
Viðbragðsáætlun Ríkislögreglustjóra hefur verið virkjuð vegna yfirálags á landamærum og hún færð úr óvissustigi yfir á hættustig. Með því eru virkjuð tæki, tól og aðstoð til að taka sem best á móti stærri hópum af fólki í neyð.

Seðlabankinn í þröngri stöðu, gæti þurft að hækka vexti ofan í kreppuverðbólgu
„Allir tapa á þessu ömurlega stríði Pútíns,“ segir Valdimar Ármann, forstöðumaður eignastýringar Arctica Finance, en efnahagshorfur beggja vegna Atlantshafsins eru orðnar mun dekkri en áður eftir að stríðsátökin í Úkraínu hófust fyrir tólf dögum síðan.

Segir það rétta ákvörðun að fresta leik Skotlands og Úkraínu
Ekkert verður af leik Skota og Úkraínumanna í umspili um sæti á HM en leikurinn átti að fara fram 24. mars næstkomandi.

Enska úrvalsdeildin sagði upp samningi sínum við Rússa og styrkir Úkraínu
Rússar munu ekki fá að sjá leiki í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta lengur því forráðamenn liða ensku deildarinnar hafa ákveðið að segja upp samningi sínum við rússnesku rétthafana.

Lagahöfundur og söngkona Let It Go hrósa úkraínsku stúlkunni
Söngur lítillar stúlku í neðanjarðarbyrgi í Kænugarði í Úkraínu hefur vakið athygli víða um heiminn. Stúlkan sem heitir Amelia syngur lagið Let It Go úr Disney teiknimyndinni Frozen á sínu móðurmáli.

Eiga von á að Biden banni innflutning á olíu frá Rússlandi
Fastlega er gert ráð fyrir að innflutningsbann á jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi verði hluti af næsta efnahagsþvinganapakka Bandaríkjastjórnar vegna innrásar Rússa í Úkraínu sem kynntur verður í dag. Blaðamannafundur Joe Biden Bandaríkjaforseta hefst klukkan 15:45.

Fullt út úr dyrum á friðartónleikum í Hallgrímskirkju
Boðað var til friðartónleika í Hallgrímskirkju klukkan 18 í dag vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar komu fram. Tónleikarnir voru í beinni útsendingu á Vísi.

Sveinn fékk ekki símtal frá sendiherra Rússlands á Íslandi
Læknirinn og lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson fékk ekki símtal frá froðufellandi starfsmanni rússneska sendiráðsins eins og hann lýsti í Facebook-færslu sem vakið hefur mikla athygli og ratað í fréttir.

Rússneskum karfaveiðiskipum meinað að koma til landsins
Rússneskum karfaveiðiskipum verður ekki lengur heimilt að koma til Íslands eftir að íslensk stjórnvöld tóku ákvörðun um að afturkalla undanþágu sem verið hefur í gildi frá aldamótum.

Heimsmarkaðsverð á áli orðið ævintýralega hátt
Heimsmarkaðsverð á áli fór í gær í 3.850 dollara tonnið. Þetta er langhæsta álverð sögunnar. Álmarkaðir hafa heldur róast framan af degi og verðið sigið niður, fór niður í 3.740 dollara í morgun og var komið niður undir 3.500 dollara um hádegisbil.

Stríðsátökin „varpa skugga á allt annað,“ fjárfestar búast áfram við miklum sveiflum
Þróun stríðsátakanna í Úkraínu og skilaboð bandaríska seðlabankans í næstu viku eru þeir þættir sem munu ráða mestu um stefnu markaða næstu daga og vikur. „Það er líklegt að sveiflur verði áfram miklar enda er ekki að sjá neina lausn í sjónmáli,“ segir Davíð Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Akta.

Roland vonast til að geta snúið aftur til Úkraínu en fjölskyldan ekki jafn spennt
Roland Valur Eradze vonast til að geta snúið til baka til úkraínsku borgarinnar Zaporizhzhia eftir nokkra mánuði. Hann er aðstoðarþjálfari meistaraliðsins HC Motor þar í borg.

Úkraínsk íþróttakona sýnir Rússum sannleikann á Instagram reikningi Þjóðverja
Rússnesk stjórnvöld gera allt til þess að þegnar þeirra fái ekki að vita sannleikann um hvað er í gangi í innrás þeirra í Úkraínu.

Úkraínskt flóttafólk gisti á heimili dómsmálaráðherra
Úkraínsk kona og sonur hennar gistu í nótt á heimili Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra í Kópavogi. Fólkið er á meðal þeirra sem flúið hafa heimalandið eftir innrás Rússlands.

Roland sleppir ekki símanum og vonar að leikmennirnir hans lifi þetta af
Roland Eradze, fyrrverandi landsliðsmarkvörður íslenska landsliðsins í handbolta, er kominn heim til Íslands en hann þurfti að skilja við leikmenn sína úti í Úkraínu. Eradze er aðstoðarþjálfari HC Motor sem kemur frá borginni Zaporizhzhia í Úkraínu.

Þorir ekki á flótta með níræða ömmu sína
Anastasiia Komlikova ákvað að halda kyrru fyrir í Úkraínu þegar sprengjuregnið hófst aðfararnótt fimmtudagsins 24. febrúar því hún taldi víst að amma hennar myndi ekki þola ferðalagið að landamærunum.