Minnumst og höldum áfram "Við minnumst þessara atburða en látum þá ekki trufla okkur og höldum ótrauð áfram," segir Sigurður Hafberg, grunnskólakennari á Flateyri. Húsfyllir var í íþróttahúsinu á Flateyri í gærkvöldi en þar fór fram minningarathöfn í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að snjóflóð féll á bæinn með þeim hörmulegu afleiðingum að tuttugu manns létu lífið. Innlent 27. október 2005 03:45