

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur - Fram 4-1 | Meistararnir unnu öruggan sigur gegn nýliðunum
Íslandsmeistarar Víkings unnu öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti nýliðum Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld.

Berst fyrir EM-sætinu í Mosó
Nýliðar Aftureldingar sóttu sér mikinn liðsstyrk á lokadögum félagaskiptagluggans, úr toppliðum landsins, og mæta með sterkari hóp í næstu leiki í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Besta upphitunin: Fyrirliði Vals hrósaði umgjörðinni hjá Aftureldingu í hástert
Helena Ólafsdóttir fékk fyrirliða Vals og Aftureldingar í heimsókn til að hita upp fyrir 4. umferð Bestu deildar kvenna sem fer af stað á morgun.

Sjáðu nýliða KV kynna glænýjan heimavöll félagsins til leiks
KV tekur á móti HK í Lengjudeild karla í fótbolta í dag. Í tilefni fyrsta heimaleiks sumarsins hefur félagið birt stórglæsilegt kynningarmyndband þar sem nýtt nafn heimavallar félagsins er opinberað.

„Blikar gera það sem maður hefur ekki séð þá gera síðustu tvö ár“
Frábær byrjun Blika var til umræðu í Stúkunni í gær eftir að Blikar tryggðu sér 3-2 sigur á Stjörnunni eftir að hafa misst niður 2-0 forystu.

„Þá þýðir ekkert að fara í fýlu“
Arnór Smárason komst ekki í byrjunarlið Heimis Guðjónssonar í upphafi Bestu deildarinnar en hafði tvisvar komið inn á sem varamaður og skorað. Í gær fékk hann tækifæri í byrjunarliðinu í fyrsta skiptið og hjálpaði Valsmönnum að vinna 4-0 sigur á Skaganum

Blikar fyrsta liðið í sextán ár með fullt hús eftir fimm leiki
Breiðablik komst í gærkvöldi í sannkallaðan úrvalshóp með átta öðrum liðum sem hafa náð fullkominni fimm leikja byrjun á Íslandsmótinu frá því að liðin fóru að spila heima og að heiman sumarið 1959.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik 3-2 Stjarnan | Blikar ná í mikilvæg stig í hörkuleik
Óskar Hrafn Þorvaldsson og hans lærisveinar í Breiðablik höfðu betur gegn gamla læriföðurinum, Ágústi Gylfasyni og Stjörnumönnum. Breiðablik er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir og sitja sem fastast á toppi deildarinnar.

Jón Þór: Fórum að gera hlutina hver í sínu horni
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, sagði að þótt það hafi verið svekkjandi að lenda undir blálok fyrri hálfleik hafi annað mark Vals sett hans menn út af laginu. ÍA tapaði 4-0 fyrir Val á Hlíðarenda í kvöld.

Heimir: Allt var eins og það átti að vera í kvöld
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir að það hafi verið dýrmætt að skora skömmu fyrir hálfleik í leiknum gegn ÍA í kvöld. Valsmenn unnu á endanum öruggan 4-0 sigur.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - ÍA 4-0 | Valur vann á afmælisdaginn
Valur hélt upp á 111 ára afmæli félagsins með 4-0 sigri á ÍA í 5. umferð Bestu deildar karla á Hlíðarenda í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: KA 1-0 FH | Dramatík fyrir norðan
KA vann dramatískan 1-0 sigur á FH á Dalvíkurvelli í kvöld þar sem Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á þriðju mínútu uppbótartíma.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 1-2 KR | Vesturbæingar sóttu stigin þrjú til Eyja
Eyjamenn þurfa að bíða lengur eftir sínum fyrsta sigri í Bestu deild karla. KR-ingar sóttu stigin þrjú á Hásteinsvelli þar sem gestirnir skoruðu öll þrjú mörkin. Lokatölur 1-2 fyrir KR.

Garðar snýr aftur í ÍA
Garðar Gunnlaugsson hefur gengið í raðir ÍA frá Kára og tekur slaginn með uppeldisfélagi sínu í Bestu deild karla í sumar.

Bestu mörkin um glæsimark Birtu: Hafa verið að bíða eftir henni
Blikakonan Birta Georgsdóttir opnaði markareikning sinn í Bestu deildinni með frábæru marki á móti Stjörnunni í 3. umferðinni. Bestu mörkin skoðuðu markið hennar betur.

Elvis í ÍBV
ÍBV hefur samið við Úgandamanninn Elvis Bwomono um að leika með liðinu í Bestu deild karla í sumar.

Margrét Lára: Ég er svo þreytt á því að horfa á þetta í íslenskum kvennafótbolta
Margrét Lára Viðarsdóttir ræddi sérstaklega fyrirgjafir í íslenskum kvennafótbolta í Bestu mörkunum í gær.

„Hún er alltaf að þefa eitthvað uppi“
Melina Ayres var í fyrsta sinn í byrjunarliði Breiðabliks þegar liðið vann Stjörnuna 3-0 á mánudagskvöld og hún skoraði tvö markanna. Sérfræðingar Bestu markanna hrifust af frammistöðu Ástralans.

Alexandra lánuð til Breiðabliks til að komast í leikform fyrir EM
Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur verið lánuð frá Frankfurt til Breiðabliks.

Bestu mörkin ræddu samsæriskenningu Nik Þróttara um Ása dómara
Nik Anthony Chamberlain, þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna, er ekki sáttur með dómarann Ásmund Þór Sveinsson sem hann sakar um að stunda það að gera mistök gegn hans liði. Bestu mörkin ræddu þessi nýjustu „mistök“ Ása dómara.

Þorsteinn Már aftur í Vesturbæinn
KR-ingar halda áfram að styrkja sinn leikmannahóp nú þegar innan við sólarhringur er í að félagaskiptaglugginn í íslenska fótboltanum lokast.

Blómstrar tíu kílóum léttari: „Hafa ýtt helvíti hart á mig“
Á engan er hallað þegar sagt er að Blikinn Ísak Snær Þorvaldsson hafi verið besti leikmaður Bestu deildarinnar hingað til. Hann þakkar góða frammistöðu miklu betra líkamlegu formi.

Stjarnan kaupir Daníel Finns frá Leikni
Stjarnan hefur keypt Daníel Finns Matthíasson frá Leikni. Samningur hans við Breiðholtsfélagið var að renna út.

Þungavigtin: „Það voru einhverjir sauðir þarna sem ákváðu að hrækja á Óskar Hrafn“
„Spilamennska Skagamanna var ekki það eina sem var til skammar á vellinum, þú ert kominn með myndband undir hendurnar,“ segir Ríkharð Óskar Guðnason við Kristján Óla Sigurðsson í nýjasta þætti Þungavigtarinnar.

Kristján: Verðum að rétta okkur af snarlega
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, fór ekkert í grafgötur með að hann var ósáttur við frammistöðu síns liðs gegn Breiðabliki í kvöld. Blikar unnu leikinn, 3-0.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 3-0 | Blikar aftur á beinu brautina
Breiðablik vann öruggan sigur á Stjörnunni, 3-0, þegar liðin mættust á Kópavogsvelli í 3. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Sigurinn var mikilvægur fyrir Blika eftir óvænt tap í Keflavík í síðustu umferð. Þetta var aftur á móti fyrsta tap Stjörnukvenna í sumar.

Umfjöllun og viðtal: Valur - Keflavík 3-0 | Meistarar Vals vöknuðu í síðari hálfleik
Keflavík tapaði sínum fyrsta leik í Bestu deild kvenna á Hlíðarenda í kvöld þegar Íslandsmeistararnir í Val unnu góðan 3-0 sigur.

Pétur: Mér fannst bara best að stilla þessu upp svona og þá geri ég það
Valur vann góðan 3-0 sigur á Keflavík í 3. umferð Bestu deildar kvenna á Hlíðarenda í kvöld. Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var sáttur við stigin þrjú.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Þróttur 1-1 | Stál í stál
Selfoss og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli á Jáverk-vellinum í þriðju umferð bestu deildar kvenna í kvöld. Andra Rut Bjarnadóttir kom Þrótturum yfir á fyrstu mínútu leiksins og Brenna Lovera jafnaði um miðjan seinni hálfleik. Selfoss er nú á toppi deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: KR - ÍBV 0-2 | Þægilegt hjá ÍBV og nýliðarnir án stiga
ÍBV vann þægilegan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Meistaravelli í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Nýliðar KR hafa nú tapað öllum þremur leikjum sínum til þessa í deildinni.