

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Ólafur Ingi Skúlason, aðstoðarþjálfari og fyrirliði Fylkis, lét gamminn geisa á Twitter í gær en Ólafur Ingi fékk rautt spjald í leik Fylkis og Stjörnunnar fyrr í vikunni.
Garðabæjarstúlkur eru komnar á sigurbraut eftir þægilegan 3-0 sigur á FH í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta.
Nýliðar Þróttar fengu verðugt verkefni í kvöld þegar Íslandsmeistararnir komu í heimsókn.
Fylkir bar sigurorð af KR í Vesturbænum í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Lokatölur 3-1 fyrir Árbæingum.
Breiðablik sigraði Selfoss með tveimur mörkum gegn engu í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að það sé mikilvægt fyrir KA að spila á mikið af norðanmönnum því þeir vilji vera Bayern norðursins. Þetta sagði hann í Pepsi Max-stúkunni á mánudagskvöldið.
Í stórleik kvöldsins heimsækja Blikakonur lið sem þær hafa ekki tapað fyrir í úrvalsdeildinni í sex ár.
KR vann 1-0 sigur á Val í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla um síðustu helgi en leikurinn var opnunarleikur sumarsins í Pepsi Max-deild karla. Sigurmarkið skoraði Óskar Örn Hauksson eftir fyrirgjöf og vandræðagang í vörn Vals.
Örvar Eggertsson hefur fært sig um set og mun taka slaginn með Fjölni í Pepsi Max deildinni í sumar.
32 liða úrslit Mjólkursbikars karla eru nú öll staðfest með leikdögum og leiktímum.
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að ólseigt lið KR í Pepsi Max-deild karla minni hann á San Antonio Spurs í kringum tímabilið 2014. Þeir neita að gefast upp og láta ekki umræðu spekinga hafa áhrif á sig.
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, vonast til þess að Ólafur Örn Eyjólfsson, leikmaður HK, springi enn frekar út í sumar en Hjörvar ræddi um miðjumanninn öfluga í Pepsi Max-stúkunni á mánudagskvöldið.
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að það sé skelfilegt mál að HK vakni upp við þann vondan draum að vera varla með framherja er Pepsi Max-deild karla er farinn af stað.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að hann hafi ekki séð Hilmar Árna Halldórsson æfa aukaspyrnur í nokkur ár en þrátt fyrir það hefur hann raðað inn mörkum úr aukaspyrnum.
Keflavík hefur styrkt raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en Helgi Þór Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Tveir leikir í spænska boltanum eru í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 í dag en beinum útsendingum fer fjölgandi eftir að boltinn fór að rúlla víðs vegar um heiminn eftir kórónuveiruhléið.
Breiðablik vann afar sannfærandi 3-0 sigur á nýliðum Gróttu í 1. umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. Getumunurinn á liðunum virtist mjög mikill.
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Valsmanna, var heldur betur í eldlínunni í opnunarleik Vals og KR í Pepsi Max deild karla og það sýnir tölfræðin.
„Það mátti sjá tár á hvarmi. Það voru allir ofboðslega ánægðir fyrir hönd Kidda,“ sagði Gummi Ben í Pepsi Max stúkunni þegar rætt var um Kristin Steindórsson og langþráð mark hans gegn Gróttu á sunnudag.
Atli Sigurjónsson hljóp 1,4 kílómetra á spretti, það er að segja á yfir 20 km/klst, þegar hann lék með KR gegn Val í 1. umferð Pepsi Max-deildinni í fótbolta.
Rúnar Páll Sigmundsson er búinn að stýra Stjörnumönnum til sigurs í öllum ellefu deildarleikjum sínum á móti Fylki síðan að hann tók við í Garðabænum.
„Hver getur skorað þarna annar en Óttar?“ spurðu sérfræðingarnir sig í Pepsi Max stúkunni, þegar þeir ræddu um sóknarleik Víkings eftir að liðið varð að sætta sig við 1-1 jafntefli við nýliða Fjölnis í gærkvöld.
Ragnar Bragi Sveinsson verður ekki með Fylki næstu vikurnar eftir að hann skall illa með höfuðið saman við Daníel Laxdal í 2-1 tapinu gegn Stjörnunni í Pepsi Max deildinni í fótbolta í gærkvöld.
„Þetta er bara árás. Alveg hrikalega gróft,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, um tæklingu Ólafs Inga Skúlasonar í Fylki sem fékk rautt spjald fyrir brot í leik liðanna í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í gær.
Stjarnan vann Fylki á dramatískan hátt í Pepsi Max deild karla í kvöld. Lokatölur 2-1, en sigurmarkið kom undir lok leiksins í uppbótartíma.
Stjarnan vann Fylki á dramatískan hátt í Pepsi Max deild karla í kvöld. Lokatölur 2-1, en sigurmarkið kom undir lok leiksins í uppbótartíma.
HK hefur fengið Stefan Alexander Ljubicic til liðs við sig og á hann að styrkja liðið fyrir komandi átök í Pepsi Max-deild karla.
Stjarnan vann dramatískan sigur á Fylki í Pepsi Max deild karla í kvöld, lokatölur 2-1 í Garðabænum þar sem Stjörnumenn tryggðu sigurinn í blálokin.
Ísak Andri Sigurgeirsson, sautján ára drengur, tryggði Stjörnunni dramatískan 2-1 sigur á Fylki er liðin mættust í 1. umferð Pepsi Max-deildar karla í kvöld.
Víkingar taka á móti nýliðum Fjölnis á Víkingsvellinum í 1. umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. Fjölnisliðinu er spáð falli en Víkingum er spáð mun betra gengi í sumar.