

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Natasha Anasi-Erlingsson spilaði í dag sinn fyrsta leik í treyju Íslandsmeistara Vals sem var að sjálfsögðu gegn hennar fyrrum félagi Keflavík. Á endanum hafði Valur betur með herkjum og er nú jafnt Breiðabliki á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta þegar 13. umferðum er lokið.
Pétur Pétursson sló á létta strengi eftir nauman 2-1 sigur Íslandsmeistara Vals á Keflavík í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Sigurmarkið kom í uppbótartíma en það reyndist sjálfsmark.
KA vann óvæntan 1-0 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Víkings í 15. umferð Bestu deild karla í knattspyrnu í dag. Liðin mætast í bikarúrslitum á Laugardalsvelli í næsta mánuði.
Íslandsmeistarar Vals hafa nú unnið níu leiki í röð í deild og bikar en heppnin var svo sannarlega með þeim þegar liðið lagði Keflavík í Bestu deild kvenna í dag.
HK gerði 1-1 jafntefli í dag gegn Vestra inn í Kórnum, en jöfnunarmark Vestra kom eftir agaleg mistök fyrirliða heimamanna, Leifs Andra Leifssonar. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, átti erfitt með að sætta sig við úrslit leiksins aðspurður hvort þetta hafi verið sanngjörn niðurstaða.
Nik Chamberlain var létt eftir 1-0 sigur Breiðabliks á Stjörnunni í Garðabæ í dag. Breiðablik heldur toppsæti deildarinnar eftir sigurinn.
HK og Vestri gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik 15. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Mistök fyrirliða HK-inga, Leifs Andra Leifssonar, reyndust hans mönnum dýr.
Breiðablik vann 1-0 útisigur á Stjörnunni í Bestu deild kvenna síðdegis. Það sem virtist löglegt jöfnunarmark var dæmt af heimakonum undir lok leiks í Garðabæ.
Melissa Alison Garcia skoraði sigurmark Þróttar gegn FH, 2-1, í fyrsta leik sínum fyrir félagið. Með sigrinum komust Þróttarar upp í 6. sæti deildarinnar.
ÍBV vann Dalvík/Reyni, 1-0, í fyrri leik dagsins í Lengjudeild karla. Tvö rauð spjöld fóru á loft í Eyjum.
Víkingur lyfti sér upp í 4. sæti Bestu deildar kvenna með sigri á Þór/KA, 0-2, á VÍS-vellinum á Akureyri í gær. Mörkin tvö voru lagleg og þá sýndi markvörður Víkinga glæsileg tilþrif.
Eins og greint var frá á dögunum þá var markvörðurinn Jökull Andrésson við það að ganga í raðir Lengjudeildarliðs Aftureldingar. Vistaskiptin hafa nú verið staðfest og Jökull getur ekki að spila fyrir uppeldisfélagið.
John Andrews, þjálfari Víkings, var mjög ánægður eftir 2-0 sigur gegn sterku liði Þór/KA norðan heiða í dag. Víkingur var betri aðilinn og átti sigurinn skilið. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir, nýjasti leikmaður liðsins, skoraði ásamt Lindu Líf Boama sem kláraði leikinn endanlega í blálokin.
Víkingur gerði góða ferð norður yfir heiðar og sigraði Þór/KA 2-0 í Bestu deild kvenna. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir og Linda Líf Boama skoruðu mörkin og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Þetta var þriðji tapleikur Þór/KA í röð á heimavelli sem þykir ekki boðlegt þar á bæ.
Helena Ólafsdóttir hitaði upp að venju fyrir umferðina sem framundan er í Bestu deild kvenna og fékk til sín gesti af dýrari gerðinni í þetta sinn. Landsliðsþjálfararnir Þorsteinn Halldórsson og Ásmundur Guðni Haraldsson, sem eru nýkomnir úr landsliðsverkefni og stýrðu Íslandi á EM 2025.
Patrick Pedersen er mesti markaskorari Valsmanna frá upphafi en hann hafði beðið í meira en ellefu hundruð mínútur eftir marki í Evrópuleik.
Fótboltamaðurinn Adam Ægir Pálsson hefur samið við ítalska C-deildarliðið Perugia. Hann staðfesti þetta í samtali við Vísi.
Markvörðurinn Jökull Andrésson er á leið hingað til lands eftir að hafa spilað erlendis frá árinu 2017. Hann mun ganga í raðir Aftureldingar og verja mark liðsins í Lengjudeild karla í knattspyrnu.
KR hefur samið við hinn sautján ára gamla Jakob Gunnar Sigurðsson. Hann kemur frá Völsungi þegar tímabilinu er lokið og skrifar undir þriggja ára samning í Vesturbænum.
Fylkir lyfti sér af botni Bestu deildar karla með 3-0 sigri á ÍA í gær og FH komst upp í 4. sætið með því að vinna HK, 3-1.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir hefur samið við Tampa Bay Sun, nýtt félag í Bandaríkjunum.
FH vann öruggan 3-1 sigur gegn HK. Staðan var 1-1 í hálfleik en skiptingar Heimis Guðjónssonar, þjálfara FH, skiluðu sínu og FH vann 3-1.
Taphrina HK heldur áfram. HK-ingar fóru í Hafnarfjörðinn og töpuðu 3-1 gegn FH. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var svekktur eftir leik og sagði að hann myndi reyna að styrkja liðið í félagaskiptaglugganum.
Ómar Björn Stefánsson kom Fylkismönnum á bragðið í dag þegar hann skoraði fyrsta af þremur mörkum Fylkis í sigri Árbæinga á Skagamönnum í blíðunni. Leikurinn endaði 3-0 og Fylkismenn lyfta sér upp af botni deildarinnar.
Fylkir lyfti sér upp af botni Bestu deildar karla með góðum 3-0 sigri á ÍA á heimavelli sínum í Árbænum í kvöld. Skagamönnum var kippt á jörðina og það harkalega en þó að gestirnir hafi þjarmað að Árbæingum gekk ekki að koma boltanum yfir línuna.
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á Íþrótta og Ólympíusamband Íslands og Lárus Blöndal formann sambandsins, í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann segir Lárus þurfa að taka til í eigin veðmálastarfsemi áður en hann fari að tala fyrir því að banna erendar veðmálasíður.
Amanda Jacobsen Andradóttir hefur verið seld frá Val til ríkjandi Hollandsmeistara FC Twente.
KA vann 2-0 gegn tíu mönnum Vestra í Bestu deild karla í gær. Mörkin tvö og rauða spjaldið má sjá hér fyrir neðan.
Njarðvík tapaði stigum í fjórða leiknum í röð í Lengjudeild karla í fótbolta í dag eftir markalaust jafntefli á móti sameiginlegu liði Dalvikur og Reynis.
Framarar unnu 1-0 sigur á KR á Lambhagavellinum í Bestu deild karla í fótbolta í gær.