„Sé hina vélina skuggalega nálægt“ „Þetta var alveg mikill skellur,“ segir Evalilja Bjarnadóttir, ein þeirra farþega sem sátu í flugvél Icelandair sem lenti í árekstri á Heathrow fyrr í kvöld. Innlent 28. september 2022 22:35
Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri við vél frá Koreanair á flugvellinum Heathrow í London í í kringum klukkan átta í kvöld. Enginn slasaðist og engar tafir eru á flugum til og frá flugvellinum. Innlent 28. september 2022 21:11
Rannsóknin sé ítarleg og muni taka af allan vafa Seðlabankastjóri segir að rannsókn Fjármálaeftirlits bankans á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka muni taka af allan vafa hvort innherjaupplýsingar hafi verið nýttar í tengslum við yfirvofandi útboð bankans. Allir þættir málsins verði skoðaðir. Viðskipti innlent 28. september 2022 13:09
Forstjóri Brims kallar eftir nýrri aðferðafræði við útreikninga á kvótaþaki Forsendur fyrir útreikningi á samanlögðum aflheimildum einstakra sjávarútvegsfyrirtækja eru óskilvirkar vegna þess forsendur þorskígildisstuðla eru rangar og hafa verið í langan tíma. Þetta er mat Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims. Innherji 28. september 2022 11:24
Rannsakar hlutabréfaviðskipti dagana fyrir útboð Íslandsbanka Rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka fyrr á árinu beinist meðal annars að mögulega óeðlilegum viðskiptum á hlutabréfamarkaði yfir tveggja daga tímabil áður en útboðið kláraðist. Eftirlitið hefur kallað eftir ítarlegum gögnum frá söluráðgjöfunum um samskipti þeirra við viðskiptavini sína dagana 21. og 22. mars síðastliðinn. Innherji 28. september 2022 07:00
Yngvi ráðinn forstjóri Sýnar Yngvi Halldórsson er nýr forstjóri Sýnar. Hann tekur við starfinu af Heiðari Guðjónssyni sem tilkynnti um starfslok á dögunum. Yngvi hefur undanfarin þrjú ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Sýnar. Viðskipti innlent 27. september 2022 16:00
Hægir á innlausnum fjárfesta úr innlendum hlutabréfasjóðum Fjórða mánuðinn í röð dró lítillega úr innlausnum fjárfesta úr íslenskum hlutabréfasjóðum en stöðugt útflæði hefur verið úr slíkum sjóðum, rétt eins og í öðrum verðbréfasjóðum, samtímis miklum óróa og verðlækkunum á mörkuðum á síðustu mánuðum. Frá því í lok febrúar, þegar innrás Rússa hófst í Úkraínu, nemur nettó útflæði úr verðbréfasjóðum samanlagt um 23 milljörðum. Innherji 27. september 2022 14:59
Guðrún tekur við af Ástu sem framkvæmdastjóri Krónunnar Guðrún Aðalsteinsdóttir rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Krónunnar og hefur hún störf í dag. Hún tekur við af Ástu Sigríði Fjeldsted sem var ráðin forstjóri Festi, móðurfélags Krónunnar, fyrr í mánuðinum. Viðskipti innlent 27. september 2022 12:36
„Þetta voru losaraleg tímamörk“ Almenningur þarf enn að bíða eftir Íslandsbankaskýrslunni. Nú er gert ráð fyrir því að skýrslan verði gerð opinber í október en í upphafi var stefnt að því að skýrslan fengi að líta dagsins ljós í júní. Yfirferð Ríkisendurskoðunar hefur tekið töluvert meiri tíma en áætlað var í upphafii en íkisendurskoðandi segir að töfin eigi sér málefnalegar skýringar. Innlent 26. september 2022 18:51
Gnitanes orðið 9 milljarða króna fjárfestingafélag eftir samruna Fjárfestingafélagið Gnitanes, sem áður hét Eldhrímnir, var með eigið fé upp á ríflega 9,3 milljarða króna í lok síðasta árs eftir að hafa sameinast öðru fjárfestingafélagi, Eini ehf., sem er í eigu Einars Arnar Ólafssonar, fjárfestis og stjórnarformanns Play. Innherji 26. september 2022 12:54
Selt í Marel fyrir á annan tug milljarða á örfáum mánuðum Bandaríski sjóðastýringarrisinn Capital Group, sem var um skeið stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Marels, hefur á nokkrum mánuðum selt liðlega þriðjung allra bréfa sinna í íslenska félaginu. Stórfelld sala sjóða í stýringu Capital hefur átt sinn þátt í því að drífa áfram miklar lækkanir á hlutabréfaverði Marels. Innherji 26. september 2022 07:00
Spá mesta hagvexti síðustu fimmtán ára Hagvöxtur á Íslandi verður 7,3 prósent á árinu 2022 ef marka má spá greiningardeildar Íslandsbanka sem kynnt verður síðar í dag. Svo mikill hagvöxtur hefur ekki verið hér á landi í fimmtán ár. Innherji 26. september 2022 05:01
Seldi gjaldeyri til að mæta útflæði við útgöngu erlendra vogunarsjóða Seðlabanki Íslands greip inn á gjaldeyrismarkaði í upphafi vikunnar með einni umsvifamestu sölu sinni á gjaldeyri á þessu ári. Þetta var í annað sinn í þessum mánuði sem bankinn stóð að gjaldeyrissölu á markaði en áður hafði bankinn ekki beitt gjaldeyrisinngripum í meira en þrjá mánuði. Innherji 25. september 2022 14:00
Tilfinninganefndirnar Það skiptir máli að nú þegar við tökum fagnandi á móti erlendum vísitölusjóðum liggi fyrir einhver afstaða til tilnefningarnefnda. Þó vísitölusjóðir hafi ekki mikla skoðun, hafa þeir skoðun á stjórnarháttum. Umræðan 25. september 2022 10:00
Sjóðir Vanguard keyptu í Kviku fyrir nærri milljarð króna Bandaríski sjóðastýringarrisinn Vanguard ræður yfir nálægt eins prósenta hlut í Kviku eftir að hafa keypt nánast öll þau bréf sem voru seld í bankanum í lokunaruppboði í Kauphöllinni á föstudaginn fyrir rúmlega viku í aðdraganda þess að Ísland færðist upp í flokk nýmarkaðsríkja. Innherji 24. september 2022 14:01
Mikið þurfi að koma til svo farþegum sé vísað úr vélinni Ríka ástæðu þarf til að farþega sé vísað úr vélum Icelandair. Þetta segir talsmaður félagsins um atvik þar sem farþega var vísað úr vél í gær eftir að hafa lent í ágreiningi við áhöfn um grímuskyldu og handfarangur. Innlent 24. september 2022 13:35
Segir atvikið aðför að blaðamönnum Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra miðilsins Fréttin.is var vísað úr flugvél Icelandair í dag sem átti að fara til Munchen en Margrét ætlaði sér til Rússlands í vinnuferð. Hún segist niðurlægð eftir atvik dagsins, Icelandair hafi brotið á hennar réttindum og hún sé tilbúin til þess að fara með málið fyrir dómstóla. Innlent 23. september 2022 21:06
Sjóvá stækkaði stöðu sína í Marel fyrir um 800 milljónir á skömmum tíma Sjóvá margfaldaði hlutabréfastöðu sína í Marel yfir nokkurra vikna tímabil í aðdraganda þess að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE vísitölufyrirtækinu í byrjun vikunnar. Innherji 23. september 2022 17:32
Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu. Innlent 23. september 2022 15:33
Hætta á því að tekjuvöxtur Símans haldi ekki í við verðbólgu Hætta er á því að tekjuvöxtur Símans haldi ekki í við verðbólgu og fjárfestar hljóta að velta fyrir sér framtíðarsýn fjarskiptafélaganna á meðan tekjuvöxturinn er eins hægur og raun ber vitni. Þetta kemur fram í nýju verðmati greiningarstofunnar Jakobsson Capital, sem Innherji hefur undir höndum. Innherji 23. september 2022 14:00
Boða til nýs hluthafafundar í október Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn varður fimmtudaginn 20. október næstkomandi. Viðskipti innlent 23. september 2022 11:14
Mismunandi leiðir inn á markaðinn II Að fá inn akkeris- og/eða kjölfestufjárfesta gerir fyrirtækjum kleift að handvelja tiltekna aðila inn í hluthafahópinn, aðila sem koma ekki einungis með fjármagn heldur verðmæta þekkingu og reynslu að borðinu. Umræðan 23. september 2022 10:00
Sjóðastýringarrisinn Vanguard kominn í hóp stærri eigenda Íslandsbanka Bandaríska eignarstýringarfélagið Vanguard er orðið á meðal stærri hluthafa Íslandsbanka eftir að nokkrir sjóðir í stýringu þess keyptu í bankanum fyrir samanlagt um 1.300 milljónir króna í sérstöku uppboði sem fór fram eftir lokun markaða fyrir helgi. Innherji 23. september 2022 07:00
Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. Innlent 22. september 2022 22:22
Gunnþór: Sala á uppsjávarafurðum til Úkraínu gengið vonum framar Þrátt fyrir innrás Rússa fyrir um hálfu ári síðan hefur sala á uppsjávarafurðum til Úkraínu gengið vonum framar á þessu ári, að sögn Gunnþórs Ingvasonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað. Innherji 22. september 2022 18:38
Stærsta sjóðastýringarfyrirtæki heims keypti í Marel fyrir á fjórða milljarð Vísitölusjóðir bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Vanguard keyptu nánast öll þau bréf í Marel sem voru seld í sérstöku lokunaruppboði í Kauphöllinni síðasta föstudag í aðdraganda þess að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE vísitölufyrirtækinu. Innherji 22. september 2022 16:11
Brim kaupir aukinn kvóta og nýtt skip Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi við Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. um kaup á félaginu RE 27 ehf. en eignir þess eru frystitogarinn Sólborg RE og veiðiheimildir. Markmið viðskiptanna er sagt vera að efla uppsjávarsvið Brims og styrkja uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði. Viðskipti innlent 22. september 2022 14:31
Breyta nafni hótelkeðju Icelandair og Flugleiða Nafnabreytingu á Flugleiðahótelum hf. og keðju Icelandair Hótela er lokið, en nýir eigendur félagsins, Berjaya Land Berhard (Berjaya), gerðu samkomulag við fyrri eigendur, Icelandair Group, um að láta af notkun vörumerkis þess síðarnefnda að lokinni sölu hótelfélagsins. Viðskipti innlent 21. september 2022 11:50
Útvíkka starfsemina og stofna sjóða- og eignastýringu VÍS hefur ákveðið að útvíkka starfsemi sína og bjóða upp á sjóða- og eignastýringu. Nýtt dótturfélag verður stofnað undir starfsemina sem mun hljóta nafnið SIV eignastýring. Arnór Gunnarsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS, verður framkvæmdastjóri SIV eignastýringar. Viðskipti innlent 21. september 2022 09:39
Undirbúningur sjóða sem seldu íslensku bréfin „langur og vel skipulagður“ Ótti innlendra fjárfesta um að það sé talsvert uppsafnað framboð af hlutabréfum sem ekki hafi náðst að selja á þeim verðum þegar erlendir vísitölusjóðir komu inn á markaðinn í uppboði eftir lokun Kauphallarinnar síðasta föstudag skýrir meðal annars það verðfall sem hefur orðið á bréfum flestra skráða félaga í vikunni. Innherji 20. september 2022 17:30