
Houston tókst loksins að vinna leik eftir tuttugu töp í röð
Houston Rockets vann langþráðan sigur í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og Los Angeles Clippers endaði átta leikja sigurgöngu Atlanta Hawks með magnaðri endurkomu í seinni hálfleik.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Houston Rockets vann langþráðan sigur í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og Los Angeles Clippers endaði átta leikja sigurgöngu Atlanta Hawks með magnaðri endurkomu í seinni hálfleik.
Keflvíkingar fóru illa með Grindvíkinga á heimavelli þeirra síðarnefndu í Domino´s deildinni í kvöld. Lokatölur 115-82 þar sem gestirnir léku við hvern sinn fingur.
Ólafur Ólafsson ræddi við Svala Björgvinsson að leik loknum í kvöld og var hreinskilinn um slaka frammistöðu Grindvíkinga í tapinu gegn grönnunum í Keflavík.
Þór Þ. vann ÍR í leik sem best er lýst sem kaflaskiptum en á endanum skiptir máli að skora fleiri stig en andstæðingurinn og það gerði Þór Þ.
Lárus var sáttur við sigur sinna manna á ÍR í kvöld en hafði áhyggjur af töpuðum boltum hjá sínum mönnum. Leikar enduðu 98-104 og Þór Þ. fer í annað sætið. Hann þurfti síðan að ræða kæru dómaranefndar á Adomas Drungilas og setur stórt spurningarmerki við verklagið hjá nefndinni.
Nick Nurse gerði Toronto Raptors að NBA-meisturum á sínu fyrsta tímabili með liðið en nú gengur allt á afturfótunum hjá liðinu.
Chris Paul varð í nótt aðeins sjötti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar sem nær að gefa tíu þúsund stoðsendingar en því náði hann í leik með Phoenix Suns á móti Los Angeles Lakers.
Njarðvíkingar töpuðu í gær sjötta leik sínum í röð í Domino´s deild karla í körfubolta og hafa aldrei áður tapað svo mörgum leikjum í einum rykk í sögu úrvalsdeildar karla.
Forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu hafa í eitt og hálft ár reynt að fá félagið skráð sem gilt íþróttafélag. Málið hefur meðal annars tafist vegna umræðunnar í kjölfar sýningar á heimildarmyndinni Hækkum rána, segir framkvæmdastjóri Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.
Marsfárið er byrjað í Bandaríkjunum og eins og vanalega verða oft mjög óvænt úrslit í úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans. Nú stefnir í annað ævintýri hjá litla Loyola skólanum.
Lið Los Angeles Lakers byrjar ekki vel án LeBrons James og Jaylen Brown var með skotsýningu í sigri Boston Celtics í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Russell Westbrook og Nikola Jokic voru báðir með þrennur í tapleikjum. Chris Paul gaf stoðsendingu númer tíu þúsund í sigri Phoenix Suns.
Valur vann afar nauman tveggja stiga sigur á lánlausu liði Njarðvíkur í Ljónagryfjunni í kvöld.
Þrátt fyrir afar svekkjandi tap gegn Val í kvöld gat Maciek Baginski, leikmaður Njarðvíkur, einbeitt sér á það jákvæða við leikinn en Njarðvík leiddi leikinn nánast allan tímann.
Þór frá Akureyri lét það ekki á sig fá að lenda 18-1 undir í leik sínum á móti KR heldur gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 86-90. Leikurinn var hluti af 16. umferð Dominos deildar karla í körfuknattleik en leikið var í DHL-höllinni.
KR tapaði fyrir Þór frá Akureyri í spennuþrungnum leik í Dominos deild karla í kvöld 86-90. Leikurinn var partur 16. umferð deildarkeppninnar en KR var með gott forskot eftir fyrsta leikhluta en glutraði leiknum niður þannig að tekið verður eftir.
Stjarnan kom sér aftur á sigurbraut þegar liðið vann Hauka í Mathús Garðabæjar höllin í kvöld. Sterkur fjórði leikhluti Stjörnunnar réði baggamuninn í kvöld og eru Haukar enn á botni deildarinnar eftir að hafa tapað sínum fjórða leik í röð.
Einn leikur fór fram í Dominos deild kvenna í kvöld.
Tindastóll vann lífs nauðsynlegan sigur á Hetti, 90-82, er liðin mættust í Síkinu í kvöld. Sigurinn var mikilvægur í baráttunni um úrslitakeppnissæti.
Stjarnan komst aftur á beinu brautina í kvöld eftir sigur á botnliði Hauka. Stjarnan voru talsvert betri í seinni hálfleik sem varð til þess að þeir unnu 12 stiga sigur 88 - 76.
Martin Hermannsson meiddist snemma leiks þegar lið hans, Valencia, tók á móti Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.
Haukur Helgi Pálsson og félagar hans í MoraBanc Andorra mættu liði Manresa í spænska körfuboltanum í dag. Lokatölur 92-86 eftir framlengingu, og Andorra jafnar Manresa því að stigum í níunda sæti deildarinnar, einu sæti frá sæti í úrslitakeppni.
LeBron James, leikmaður Los Angeles Lakers, fór meiddur af velli í tapi liðsins gegn Atlanta Hawks. LeBron snéri sig á ökkla en röntgen myndir sýna að hann er ekki brotinn. Hann gæti þó verið frá í allt að þrjá mánuði.
Atlanta Hawks vann sinn áttunda leik í röð þegar þeir heimsóttu Los Angeles Lakers. Lokatölur 99-94, en stóru fréttirnar þær að LeBron James þurfti að yfirgefa völlinn þegar hann snéri sig á ökkla. Ekki er vitað hvað hann verður lengi frá.
Íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason fékk ekki mikið að spreyta sig í leik kvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.
Keflavíkurkonur unnu öruggan sigur á Skallagrími í Dominos deild kvenna í kvöld.
Katla Rún Garðarsdóttir, leikmaður Keflavíkur, átti fínan leik í 74-51 sigri á Skallagrím. Katla setti niður 12 stig ásamt því að taka fjögur fráköst og gefa eina stoðsendingu.
Tveimur leikjum er nýlokið í Dominos deild kvenna í körfubolta.
Strákarnir í Körfuboltakvöldi fóru um víðan völl í þætti sínum í gær. Meðal þess sem um var rætt var framlag af bekknum hjá Keflvíkingum.
Boston Celtics tapaði gegn Scramento Kings í nótt og hafa nú tapað þrem leikjum í röð. Denver Nuggets sigraði í Chicago eftir framlengdan leik og San Antonio Spurs eru nú komnir með þrjá sigurleiki í röð eftir góða ferð til Cleveland.
Jón Arnór Sverrisson, leikmaður Njarðvíkur, var algjörlega miður sín og hálf orðlaus í viðtali eftir 89-57 tap gegn erkifjendunum í Keflavík.