
KKÍ aflýsir öllum fjölliðamótum í mars en deildarleikir fara fram
Leikir í Domino´s deildum karla og kvenna í körfubolta eru enn á dagskrá en körfuboltaleikjum í fjölliðamótum yngri flokka hefur verið frestað út mánuðinn.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Leikir í Domino´s deildum karla og kvenna í körfubolta eru enn á dagskrá en körfuboltaleikjum í fjölliðamótum yngri flokka hefur verið frestað út mánuðinn.
FIBA, alþjóða körfuboltasambandið, hefur frestað öllum leikjum sínum ótímabundið. EuroLeague hefur einnig frestað leikjum en þar spilar íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson sem leikur með Alba Berlín.
Smitaðist af kórónuveirinni skömmu eftir að hann snerti alla hljóðnema á blaðamannafundi.
Jón Axel Guðmundsson fékk boð um að taka þátt á móti fyrir 64 bestu leikmenn á elsta ári í bandaríska háskólakörfuboltanum. Afar ólíklegt er að hann leiki með Grindavík í úrslitakeppni Domino's deildar karla.
Margir leikmenn NBA deildarinnar hafa að undanförnu verið nálægt leikmanni Utah Jazz sem er smitaður af kórónuveirunni.
Engir leikir fara fram á næstunni í NBA deildinni í körfubolta eftir að ákveðið var að gera ótímabundið hlé á deildinni á meðan menn reyna að ná stjórn á útbreiðslu kórónuveirunnar.
Haukar töpuðu mikilvægum stigum um sæti í úrslitakeppni Dominos-deildar kvenna er liðið tapaði fyrir Breiðabliki á útivelli, 75-67.
KR tapaði fyrir Skallagrími í úrslitum Geysisbikars kvenna í síðasta mánuði og náði fram hefndum í dag.
Allar líkur eru á því að Golden State Warriors muni leika fyrir luktum dyrum í næstu heimaleikjum sínum vegna kórónuveirunnar en ESPN greinir frá þessu.
Anthony Davis hefði getað tryggt Los Angeles Lakers liðinu sigur og LeBron James þrennu með lokaskotinu í nótt en það klikkaði og fjögurra leikja sigurganga Lakers endaði á heimavelli á móti Brooklyn Nets.
Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í kvöld. Boðið verður upp á fótbolta, handbolta og körfubolta.
Kórónuveiran hefur alls staðar áhrif og nú er búið að breyta verklagi í kringum leiki í bandarísku íþróttalífi.
Jón Axel Guðmundsson, leikmaður Davidson í bandaríska háskólaboltanumm, gæti klárað tímabilið með Grindavík en þetta staðfestir hann í samtali við Karfan.is.
WNBA stjarnan Maya Moore tók sér tveggja ára hlé frá WNBA deildinni til að hjálpa saklausum manni að losna úr fangelsi og nú lítur út fyrir að barátta hennar sér að skila árangri.
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, um næstu skref í baráttunni við kórónuveiruna.
Áhorfendum er óhætt að mæta áfram á íþróttaleiki á Íslandi þrátt fyrir kórónuveiruna en þetta er helsta niðurstaðan á samráðsfundi í höfuðstöðvum íslenskra íþrótta í gær.
Milwaukee Bucks tapaði í nótt þriðja leiknum sínum í röð og þeim fjórða í síðustu fimm leikjum. Liðið hefur nú skyndilega aðeins tapað einum leik minna en Los Angeles Lakers.
Tímabilið gæti verið búið hjá einni stærstu stjörnu NBA deildarinnar ef hann stendur við stóru orðin.
Elvar Már Friðriksson skoraði fimmtán stig og var þriðji stigahæsti leikmaður Borås er liðið tapaði gegn BC Luleå í sænska körfuboltanum í kvöld, 84-78.
Félögin í Domino's deildum karla og kvenna í körfubolta myndu tapa háum fjárhæðum ef samgöngubann yrði sett á vegna kórónuveirunnar.
Það er eðlilega uggur innan íþróttahreyfingarinnar vegna kórónuveirunnar enda gæti ástandið haft stór áhrif á íþróttaviðburði hér á landi.
Golden State Warriors fullvissaði stuðningsmenn sína og aðra um það að Stephen Curry sé ekki kominn með kórónuveiruna eftir að hann missti af leik liðsins á laugardagskvöldið vegna veikinda aðeins tveimur dögum eftir að hann sneri til baka í liðið.
Los Angeles Lakers endaði sex leikja sigurgöngu Los Angeles Clippers með sigri í stórleiknum í NBA deildinni í körfubolta en Clippers hafði unnið tvo fyrstu leiki liðanna á leiktíðinni. Þetta var líklega besta helgi LeBron James síðan hann kom til Lakers liðsins.
"Mér hefur þótt Stjarnan frábært deildarkeppnislið en ég efast ennþá um hvað liðið mun gera í úrslitakeppninni,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi Domino's Körfuboltakvölds, í þættinum á föstudaginn.
Þórir Þorbjarnarson var í eldlínunni í bandaríska háskólakörfuboltanum í kvöld.
Góður leikur Martins Hermannssonar dugði Alba Berlin ekki til sigurs gegn Hakro Merlins í toppbaráttuslag í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.
Sara Rún Hinriksdóttir var í eldlínunni í enska körfuboltanum í dag með liði sínu Leicester Riders.
Tryggvi Snær Hlinason átti fínan leik fyrir Zaragoza þegar liðið tapaði fyrir Real Madrid í toppslag í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, 92-70.
Logi Gunnarsson gerir mun meira fyrir Njarðvík á útivelli en á heimavelli. Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds eru með sínar skýringar á því.
Georgi Boyanov hefur sannað sig sem algjör lykilmaður í liði ÍR og með hann í fararbroddi eru ÍR-ingar hættulegur andstæðingur að mati sérfræðinga Domino's Körfuboltakvölds.