Sjávarstaða næstu alda gæti ráðist á næstu fimm árum Tafir á loftslagsaðgerðum núna hafa áhrif langt inn í framtíðina. Yfirborð sjávar gæti hækkað um 70-120 sentímetra fyrir árið 2300 jafnvel þó að markmið Parísarsamkomulagsins náist. Erlent 20. febrúar 2018 22:54
Daimler gæti hafa svindlað á útblástursprófunum Mercedes framleiðandinn hefur sætt rannsóknar í Bandaríkjunum undanfarið, og fundist hefur hugbúnaður í bílum framleiddum hjá fyrirtækinu sem gæti hafa aðstoðað við að standast útblástursprófanir. Viðskipti erlent 18. febrúar 2018 15:11
Bandaríska leyniþjónustan varar við skyndilegum loftslagsbreytingum Forstjóri Leyniþjónustu Bandaríkjanna sagði loftslagsbreytingar geta valdið upplausn á heimsvísu. Erlent 14. febrúar 2018 16:51
Endurheimt votlendis gagnast takmarkað gagnvart Parísarmarkmiðunum Ísland þyrfti að jafna út losun frá framræstu landi síðasta rúma áratuginn áður en hægt væri að nýta endurheimt votlendis sem loftslagsaðgerð gagnvart Parísarsamkomulaginu. Jafnvel þá væri aðeins hægt að nýta endurheimtina að litlu leyti. Innlent 14. febrúar 2018 14:45
Loftslags- og geimrannsóknir skornar við nögl í fjárlögum Trump Orðið „loftslagsbreytingar“ kemur aðeins einu sinni fyrir í tillögum Trump-stjórnarinnar að fjárlögum 2019. Í heiti verkefnis sem á að leggja niður. Erlent 14. febrúar 2018 10:50
Hnattræn hlýnun gæti leyst kvikasilfur á norðurhjara úr læðingi Þiðnun freðmýra á norðurskautinu getur haft margþættar og grafalvarlegar afleiðingar fyrir loftslag og umhverfi jarðar. Erlent 6. febrúar 2018 11:43
Hlýnun gæti farið fram yfir mörk Parísarsamkomulagsins á næstu fimm árum Breska veðurstofan telur að hnattræn hlýnun gæti náð 1,5°C á næstu fimm árum og jafnvel farið yfir þau mörk í sterkum El niño-viðburði. Erlent 1. febrúar 2018 10:45
Bandaríkjaforseti ruglar um loftslagsvísindi í viðtali Auk þess að endurtaka rangtúlkun á eðli Parísarsamkomulagsins fór Trump með hrein ósannindi um vísindalegar staðreyndir í viðtali við Piers Morgan. Erlent 28. janúar 2018 07:24
Íbúum Höfðaborgar sagt að skrúfa fyrir klósettkassana Fólki er ráðlagt að geyma vatn úr uppvaski til að fylla á klósett og fara ekki oftar en tvisvar í viku í sturtu. Erlent 26. janúar 2018 18:28
Minni loftmengun gæti þýtt meiri hlýnun Vísindamenn áætla að rykagnir frá iðnaði og samgöngum hafi falið allt að hálfa til heila gráðu hnattrænnar hlýnunar. Meiri hlýnun gæti komið fram með hreinna lofti. Erlent 24. janúar 2018 09:30
Nýting vindorku er nýtt viðfangsefni í skipulagsgerð hér á landi Starfshópur á vegum umhverfisráðherra vinnur að því að greina hvort fjallað sé með nægjanlegum hætti um vindorkuver í lögum og reglugerðum Innlent 23. janúar 2018 18:45
Sér ekki loftslagsmarkmið og olíuvinnslu ganga saman Umhverfisráðherra telur það afar ólíklegt að ráðist verði í nýtt útboð vegna olíuleitar í tíð sitjandi ríkisstjórnar. Innlent 23. janúar 2018 16:00
Engir Benz dísilbílar í Bandaríkjunum Mjög lítil eftirspurn er eftir dísilbílum þar vestra eftir dísilvélasvindl Volkswagen. Bílar 23. janúar 2018 10:01
Trump leggur háa verndartolla á innfluttar vörur Allt að þrjátíu prósent tollur verður lagður á ódýrar sólarsellur sem eru fluttar til Bandaríkjanna með ákvörðun Donalds Trump forseta. Viðskipti erlent 22. janúar 2018 23:12
Kemur á óvart hversu lítið hlýnun jarðar dróst saman eftir metár Búist var við að árið 2017 yrði svalara en árin tvö á undan eftir að áhrifa El niño hætti að gæta. Sérfræðingur Veðurstofunnar átti von á tvöfalt meiri kólnun. Innlent 19. janúar 2018 17:00
2017 var hlýjasta árið án aðstoðar El niño Síðustu þrjú ár eru þau hlýjustu á jörðinni frá því að mælingar hófust á 19. öld samkvæmt tölum NASA og NOAA. Erlent 19. janúar 2018 08:49
Hlýnun jarðar mögulega minni en í verstu spám en meiri en í þeim skástu Góðu fréttirnar eru að hlýnun jarðar verður mögulega ekki eins mikil og verstu sviðsmyndir gera ráð fyrir. Slæmu fréttirnar er að hlýnunin verður líklega meiri en í skástu sviðsmyndunum. Erlent 18. janúar 2018 12:02
Loftslagsbreytingar ógna heiminum sem aldrei fyrr Helstu ógnirnar sem steðja að viðskiptaheiminum eru loftslagsbreytingar, tölvuárásir, efnahagsvandræði og gereyðingarvopn. Erlent 17. janúar 2018 15:32
Drykkjarvatn að klárast í Höfðaborg eftir áralangan þurrk Þurrkur hefur þjakað Höfðaborg í þrjú ár og eru vatnsbirgðir borgarinnar að þrotum komnar. Erlent 16. janúar 2018 11:30
Hlýnun fer fram úr viðmiði Parísarsamkomulagsins um miðja öldina Drög að nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna eru ekki bjartsýn á að mönnum takist að ná metnaðarfyllsta markmiði Parísarsamkomulagsins. Erlent 12. janúar 2018 10:07
New York stefnir olíufyrirtækjum vegna loftslagsbreytinga Fimm af stærstu olíufyrirtækjum heims hafa saman framleitt um 11% þeirra gróðurhúsalofttegunda sem valda nú hnattrænni hlýnun, samkvæmt stefnu borgarinnar. Erlent 11. janúar 2018 11:13
Tjón vegna náttúruhamfara í Bandaríkjunum hefur aldrei verið meira Í heildina nam tjón af völdum náttúruhamfara í Bandaríkjunum rúmum 300 milljörðum dollara í fyrra. Erlent 8. janúar 2018 16:36
Stóraukin snjókoma gæti vegið upp á móti hækkun sjávarborðs Hlýnun jarðar veldur bráðnun íss á Suðurskautslandinu en einnig aukinni snjókomu á hluta þess. Snjókoman gæti takmarkað hækkun yfirborðs sjávar sem hlýst af bráðnuninni. Erlent 8. janúar 2018 12:15
Segir bændur hafa farið hamförum við skurðgröft og vill að þeir fylli upp í þá Illa farið beitiland losar meiri koltvísýring heldur en iðnaður og landbúnaður. Innlent 7. janúar 2018 22:04
Costco hefur áhyggjur af loftslagsbreytingum Forsvarsmenn bandaríska verslunarrisans Costco hafa áhyggjur að því að loftslagsbreytingar geti haft neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins, bæði vegna þeirra breytinga sem þær geta haft í för með sér sem og vegna hugsanlegra aðgerða yfirvalda til að stemma í stigu við slíkar breytingar. Viðskipti erlent 3. janúar 2018 14:14
Trump bendir á að það sé kalt og kallar eftir hnattrænni hlýnun Í gegnum tíðina hefur Trump, forseti Bandaríkjanna, ítrekað kallað loftlagsbreytingar af mannavöldum „þvætting“, og „svindl“ sem Kínverjar hafi búið til með þeim tilgangi að draga úr samkeppnishæfni Bandaríkjanna. Erlent 29. desember 2017 10:46
Grænlendingar auka veiðar á hvítabjörnum Grænlensk stjórnvöld hafa aukið veiðikvóta á hvítabirni við Vestur- og Norður-Grænland um 21 prósent á næsta ári. Ástæðan er ný talning hvítabjarna. Erlent 28. desember 2017 21:30
Spá mikilli fjölgun hælisleitenda í Evrópu með hækkandi hita Útlit er fyrir að fjöldi hælisleitenda í Evrópu þrefaldist fyrir árið 2100 verði ekkert aðhafst í loftslagsmálum. Ný rannsókn frá Columbia-háskóla sýnir fram á þetta. Áður verið sýnt fram á tengsl þurrkatíðar við ofbeldi. Innlent 27. desember 2017 07:00
Orðinn stærsti skógareldur í sögu Kaliforníu Slökkviliðsmenn hafa barist við eldinn svo vikum skiptir og þá hafa tugir þúsunda þurft að yfirgefa heimili sín. Erlent 23. desember 2017 09:25
Landnotkun manna hefur helmingað kolefnisbindingu gróðurs Gróður á jörðinni bindur nú um 450 milljarða tonna af kolefni en gæti bundið rúmlega tvöfalt meira ef ekki væri fyrir landnotkun manna. Erlent 21. desember 2017 21:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent