
Þyrfti þrefaldan bílskúr undir grillgræjurnar
BBQ Kóngurinn er bók vikunnar á Vísi
Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.
BBQ Kóngurinn er bók vikunnar á Vísi
Jólin eru handan við hornið og flestir eflaust farnir að velta fyrir sér hvað eigi að hafa á boðstólnum á aðfangadagskvöld. Fyrir flesta er þetta kannski erfið spurning að svara, en hvað með fólkið sem bragðar ekki á jólasteikinni?
Uppistandarinn, rithöfundurinn og kaffihúsaeigandinn Dóri DNA minnist þess með hlýhug þegar hann fékk Hyundai 166 mhz pentium tölvu í jólagjöf sem barn og er það ein af hans uppáhalds jólaminningum. Í dag þykir honum hins vegar lang skemmtilegast að upplifa jólin í gegnum börnin sín og skapa minningar með þeim.
Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir hafa glatt ófá börnin sem hinar litríku persónur Skoppa og Skrítla. Þeir sem horft hafa á Skoppu og Skrítlu vita að þær eru báðar mikil jólabörn og hafa til dæmis verið með jóladagatal á Stöð 2 og jólasýningu í Borgarleikhúsinu. En eru þær Linda og Hrefna jafn mikil jólabörn og vinkonurnar Skoppa og Skrítla?
Fjölmiðlamaðurinn Egill Ploder segir High School Musical DVD-disk vera eina eftirminnilegustu jólagjöf sem hann hefur fengið, þrátt fyrir að hann hafi fengið margar góðar gjafir í gegnum tíðina. Í ár óskar hann sér hins vegar einna helst ryksuguróbót, enda fátt leiðinlegra en að ryksuga að hans mati.
Gróðurhúsið opnaði formlega í Hveragerði í dag og var haldið partý þar á laugardag til að halda upp á opnunina. Fjölbreytt starfsemi er í byggingunni sem á að höfða bæði til Íslendinga og erlendra ferðamanna en þar er að finna hótel, mathöll, bar, verslanir, kaffihús, matarmarkað og ísbúð.
Manuela Ósk Harðardóttir framkvæmdarstjóri Miss Universe Iceland og meðeigandi heilsumiðstöðvarinnar Even labs, segist alltaf byrja að skreyta fyrir jólin mjög snemma. Orðatiltækið „more is more“ sé hennar slagorð þegar kemur að jólaskreytingum, enda séu jólin hennar uppáhaldstími.
Hangikjötið frá Kjarnafæði Norðlenska er fyrsta flokks hátíðarmatur.
Brynja Dan, eigandi Extraloppunnar og varaþingmaður Framsóknarflokksins, hefur fengið margar skemmtilegar jólagjafir í gegnum tíðina. Henni er minnisstætt vandræðalegt atvik frá því að hún var unglingur og opnaði nærfatasett fyrir framan alla fjölskylduna eitt aðfangadagskvöldið.
Þann 23. desember fara af stað þættirnir Þetta reddast á Stöð 2. Umsjónarkona þáttanna er plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir.
Rapparinn Emmsjé Gauti varð meira jólabarn eftir að hann eignaðist börn en hann hefur skapað sínar eigin jólahefðir með fjölskyldunni. Ein af hefðum Gauta eru jólatónleikarnir Jülevenner sem hafa skipað sér fastan sess í jólahaldi margra. Þar fær hann til sín frábæra gesti en í ár það þau Aron Can, Salka Sól, Steindi JR, Selma Björns og Herra Hnetusmjör sem munu hringja inn jólin með Gauta.
Samtök hlynsýrópsframleiðenda í Quebec-ríki Kanada hafa neyðst til þess að nýta neyðarbirgðir til þess að anna eftirspurn eftir hlynsýrópi í aðdraganda jólanna.
Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segist vera meiri Grinch en fólk heldur. Hún geti aftur á móti nýtt sér leiklistina til þess að finna jólabarnið innra með sér. Þessa dagana er hún á fullu að æfa fyrir jólasýningu Þjóðleikhússins, Framúrskarandi vinkona, sem frumsýnd verður á annan í jólum.
Eva Laufey Kjaran matgæðingur og fjölmiðlakona gaf út nýja bók á dögunum, Bakað með Evu. Í næstu viku fer hún svo aftur af stað með nýja þáttaröð af matreiðsluþáttunum Blindur bakstur.
Athafnamaðurinn Nökkvi Fjalar Orrason segir mikilvægt að fólk gleymi sér ekki í jólastressinu, það þurfi ekki allt að vera fullkomið um jólin. Sjálfur ætlar hann að njóta jóladýrðarinnar í London þar sem hann er búsettur, áður en hann kemur heim í faðm fjölskyldunnar.
Úrval á vegan-fæði hefur aukist gríðarlega undanfarin ár í takt við breyttar matarvenjur landsmanna. Íslenskir framleiðendur hafa verið að auka framleiðslu sína til að koma til móts við grænkera, sérstaklega fyrir jólin.
Athafnakonan og áhrifavaldurinn Birgitta Líf Björnsdóttir ætlar að verja jólunum erlendis í sólinni með fjölskyldu sinni. Hún segir jólin fyrst og fremst snúast um samverustundir með fjölskyldunni og að þá skipti staðsetningin litlu máli.
Verðhækkanir tóku gildi hjá flatbökurisanum Domino‘s um síðustu mánaðamót. Forstjórinn segir að um sé að ræða viðbrögð við ýmsum hækkunum á hráefnisverði og mikið hafi verið lagt upp úr því að halda verðbreytingum í hófi.
Það er óhætt að segja að Sigga Beinteins sé ein ástsælasta söngkona landsins og eru jólatónleikar hennar, Á hátíðlegum nótum, orðnir að hefð hjá mörgum í aðdraganda jólanna. Tónleikarnir í ár fara fram í Eldborgarsal Hörpu dagana 3. og 4. desember, þar sem Sigga mun syngja inn jólin ásamt stórskotaliði söngvara. Hér ætlum við hins vegar að komast að því hvað það er sem kemur sjálfri Siggu Beinteins í jólaskapið.
Þrjár mathallir verða opnaðar á litlum bletti í miðbæ Reykjavíkur á næsta ári. Rekstrarstjóri þeirrar stærstu segir framkvæmdir skotganga og óttast ekki samkeppni.
Borðbúnaðurinn eftir danska hönnuðinn Christian Bitz nýtur mikilla vinsælda fyrir mikinn karakter og fágað yfirbragð.
Það er óhætt að fullyrða að hver einasti Íslendingur hafi einhvern tímann sungið með jólalaginu Ég hlakka svo til. Lag sem sungið var af hinni ellefu ára gömlu Svölu Björgvins í þættinum Jólaboð afa árið 1998. Í dag er hún ein skærasta stjarna okkar Íslendinga. Svala segist vera mikið jólabarn en fyrir henni snúast jólin frekar um að gefa en þiggja.
Söngkonan og áhrifavaldurinn Camilla Rut, betur þekkt sem Camy, er mikið jólabarn. Hún og eiginmaður hennar, Rafn Hlíðkvist, hafa haldið vinsæla jólatónleika síðustu ár en árið 2019 fylltu þau Gamla bíó. Camilla segir jólin fyrst og fremst snúast um að skapa minningar með börnunum og finnst henni fátt dýrmætara en að upplifa jólin í gegnum drengina sína tvo.
Áfrýjunarnefnd Neytendastofu telur að ekki sé hætta á því að neytendur ruglist á vörum frá Sóma annars vegar og Jömm og Oatly hins vegar, þrátt fyrir að viss líkindi séu með útliti á merkingum á vörum framleiðendanna.
Þakkargjörðarhátíðin var haldin hátíðleg í dag og á morgun taka verslanir víða um land þátt í afsláttargleðinni sem fylgir Svörtum föstudegi. Um er að ræða einn stærsta verslunardag ársins og nýtur hann sífellt meiri vinsælda hér á landi.
Á skömmum tíma hafa þau Metta og Áki stimplað sig inn í íslenskan veitingabransa með keðjunni Maikai sem hófst sem ástríðuverkefni í eldhúsinu heima. Þau eru þó ekki einungis viðskiptafélagar, heldur eru þau einnig par. Ástarsaga þeirra byrjaði eins og margar nútíma ástarsögur, með „followi“ á Instagram.
Eftir þriggja ára hlé er baguette með skinku og osti loks komið aftur á matseðilinn hjá Icelandair. Þreyttir ferðalangar geta því glaðst að nýju og notið þessa sívinsæla réttar þegar þeir eru á ferðalagi með flugfélaginu.
Matreiðslumaðurinn, kráareigandinn, dýravinurinn, kraftlyftingakonan, jógakennarinn og fjallagarpurinn Hrefna Rósa Sætran er farin af stað við að undirbúa hátíðirnar heima fyrir og í vinnunni.
Saga Grillhússins telur tæp 30 ár í miðbæ Reykjavíkur.
Stórfjölskyldan, vinahópar og vinnustaðir nýta sér heimsent jólahlaðborð.