
Barcelona í úrslit Meistaradeildarinnar
Barcelona er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir að liðið gerði í kvöld jafntefli við erkifjendur sína í Real Madrid á heimavelli, 1-1. Barcelona vann undanúrslitarimmu liðanna samanlagt, 3-1.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Barcelona er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir að liðið gerði í kvöld jafntefli við erkifjendur sína í Real Madrid á heimavelli, 1-1. Barcelona vann undanúrslitarimmu liðanna samanlagt, 3-1.
Wayne Rooney og Fabio da Silva voru ekki með á æfingu Manchester United í dag, daginn fyrir seinni undanúrslitaleikinn á móti þýska liðinu Schalke sem fer fram á Old Trafford á morgun.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ætlar að passa upp á allt gangi snurðulaust fyrir sig á seinni leik Barcelona og Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Það gekk mikið á í kringum fyrri leikinn enda hafa liðin staðið í miklu orðastríði síðan að þeim leik lauk.
Eric Abidal, franski varnarmaðurinn hjá Barcelona, er í hópnum hjá liðinu í seini undanúrslitaleik liðsins á móti Real Madrid í kvöld en hann fór í aðgerð vegna krabbameins í lifur í mars síðastliðnum. Andres Iniesta kemur einnig aftur inn í liðið eftir meiðsli.
Orðastríð Real Madrid og Barcelona er enn í fullum gangi þótt að það sé að flestra mati orðið ljóst að Barcelona sé komið áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur í fyrri leiknum í Madrid. Liðin mætast í seinni leiknum á Camp Nou í kvöld.
Ottmar Hitzfeld, fyrrum þjálfari Bayern München, er allt annað en sáttur með leikfræði og hegðun Poprtúgalans Jose Mourinho í tengslum við fyrri undanúrslitaleik Real Madrid og Barcelona. Hitzfeld er á því að með því að spila algjöra varnartaktík og ásaka Barcelona-menn síðan um svindl eftir 0-2 tap hafi Mourinho skaðað hið góða nafn Real Madrid.
UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, vill ekki aðhafast neitt í kvörtunum Real Madrid og Barcelona í kjölfarið á fyrri undanúrslitaleik liðanna í síðustu vikur og hefur ennfremur staðfest það að rauða spjald Pepe muni standa. Pepe verður því í banni í seinni leiknum á morgun.
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, ætlar að hvíla menn í seinni leiknum á móti Schalke í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn. Framundan er "úrslitavika" á Old Trafford þar sem United-liðið getur bæði komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem og nánast tryggt sér sigur í ensku deildinni.
Forráðamenn Real Madrid heimta að UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, refsi Pep Guardiola, þjálfara Barcelona og leikmanninum Dani Alves fyrir óíþróttamannslega framkomu í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Þeir eru samt ekki þeir einu sem Real-menn ásaka um óíþróttamannslega hegðun.
Einn hataðasti knattspyrnumaður heims, Sergio Busquets, gæti verið í vandræðum eftir að í ljós kom að hann var líklega með kynþáttaníð í garð Brasilíumannsins Marcelo hjá Real Madrid.
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, var ekki einn um að vera ósáttur við dómgæsluna í Meistaradeildarleiknum gegn Barcelona í gær. Ronaldo segist ekkert skilja heldur í dómgæslunni.
Það er lítil hamingja í herbúðum Barcelona með ummæli José Mourinho, þjálfara Real Madrid, eftir leik liðanna í Meistaradeildinni í gær. Lögfræðingar Barcelona skoða nú þann möguleika að kæra Mourinho fyrir ummælin.
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, viðurkenndi það eftir 2-0 tap á heimavelli í fyrri leiknum á móti Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld að liðið ætti litla sem enga möguleika á því að komast áfram í úrslitaleikinn á Wembley.
Knattspyrnusamband Evrópu hefur fyrirskipað það að leikmenn Real Madrid og Barcelona skulu halda kyrru fyrir í búningsklefanum sínum á Santiago Bernabéu þar sem Barcelona vann 2-0 sigur á Real í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld.
Lionel Messi skoraði bæði mörk Barcelona í 2-0 sigri á Real Madrid á Santiago Bernabéu í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Messi hefur þar með skorað 11 mörk í 11 leikjum í Meistaradeildinni á þessu tímabili.
Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði bæði mörk Barcelona í 2-0 sigri á erkifjendum sínum í Real Madrid á Santiago Bernabéu í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Real-liðið lék manni færri síðasta hálftíma leiksins eftir að Pepe fékk beint rautt spjald og í kjölfarið var Jose Mourinho, þjálfari liðsins, rekinn upp í stúku.
Manuel Neuer, markvörður Schalke, var pirraður eftir tapið gegn Man. Utd í Meistaradeildinni en honum fannst sitt lið sýna Man. Utd allt of mikla virðingu í leiknum.
Orðastríð þjálfara Real Madrid og Barcelona færist í aukana með hverjum leik en þriðja orrusta liðanna í fjögurra leikja stríðinu fer fram í Madrid í kvöld. Þá mætast þau í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hrósaði þýska landsliðsmarkverðinum Manuel Neuer mikið eftir 2-0 sigur United á Schalke í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í Þýskalandi í kvöld. Manuel Neuer hélt Schalke á floti fyrsta klukkutíma leiksins en United náði síðan að skora tvö mörk á tveimur mínútum á 67. og 69. mínútu leiksins og tryggja sér góðan sigur.
Wayne Rooney var maðurinn á bak við bæði mörk Manchester United í 2-0 sigri á Schalke í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í Þýskalandi í kvöld. Rooney lagði upp fyrra markið fyrir Ryan Giggs og skoraði það seinna sjálfur.
Ryan Giggs skoraði ekki aðeins gríðarlega mikilvægt fyrsta mark í 2-0 sigri Manchester United á Schalke í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld því hann bætti um leið eitt Meistaradeildarmet og jafnaði annað.
Andres Iniesta hætti eftir tíu mínútur á æfingu með Barcelona á Santiago Bernabeu í kvöld og verður ekki með liðinu í fyrri undanúrslitaleiknum á móti Real Madrid í Meistaradeildinni á morgun. Iniesta meiddist á móti Osasuna um helgina og er ekki búinn að ná sér af þeim meiðslum.
Manchester United er komið með annan fótinn inn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley eftir 2-0 útisigur á Schalke í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Þýskalandi í kvöld.
Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, er búinn að hrista af sér meiðslin sem héldu honum frá bikarúrslitaleiknum og verður klár í slaginn gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á morgun.
Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segir sína menn alls ekki vanmeta Schalke en liðin mætast í Þýskalandi í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Það styttist í að hinn fertugi markvörður Man. Utd, Edwin van der Sar, leggi skóna á hilluna eftir frábæran feril. Hann vill eðlilega klára ferilinn á því að vinna Meistaradeildina en United sækir Schalke heim í Meistaradeildinni í kvöld.
Undanúrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast í kvöld er Schalke tekur á móti Man. Utd. Manuel Neuer, markvörður Schalke sem var lengi orðaður við Man. Utd, er fullviss um að hann nái að halda hreinu gegn Wayne Rooney rétt eins og hann gerði er hann stóð í marki Þýskalands gegn Englandi á HM.
Það ríkir mikil eftirvænting fyrir fyrri undanúrslitaviðureign Schalke og Manchester United í Meistaradeildinni sem fram fer í kvöld í Gelsenkirchen í Þýskalandi. Schalke hefur komið öllum á óvart með frammistöðu sinni í Meistaradeildinni en liðið sló Evrópumeistara Inter út í 8-liða úrslitum.
Ralf Rangnick, stjóri Schalke, sér ekkert því til fyrirstöðu að leggja Manchester United bæði heima og að heiman í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Patrice Evra, leikmaður Manchester United, segir að félagið ætli að læra af leikjunum sem liðið lék gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í fyrra.