

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Eyþór og Björgvin gerðu allt vitlaust þegar þeir fluttu Gullvagninn saman
Í síðasta þætti af Kvöldstund með Eyþóri Inga var sjálfur Björgvin Halldórsson gestur og má með sanni segja að þeir félagar hafi farið á kostum.

Solsidan-stjarnan Rebecka Teper er látin
Sænska leikkonan Rebecka Teper, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem „Lussan“ í þáttunum Solsidan, er látin, fimmtug að aldri.

Skúrinn - Næsti flytjandi kynntur til sögunnar
Skúrinn hóf göngu sína á Vísi fyrr í vikunni en þar keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu auk þess sem þeir flytja einnig frumsamið lag.

Vök hitar upp fyrir Backstreet Boys
Íslenska hljómsveitin Vök mun hita upp fyrir strákabandið Backstreet Boys í Nýju-Höllinni þann 28. apríl næstkomandi.

„Ber húð gefur besta gripið á súlunni“
Í þættinum Spegilmyndin á Stöð 2 í gærkvöldi var fjallað um heilsu og hreyfingu og kynnti Marín Manda sér allskyns hreyfingu sem hentar fyrir fólk á öllum aldri.

Sjónvarpsrýni: Feðgar og dauðir menn á ferð
Þar sem þessi rýnir hefur ekki tíma til að klára allar þáttaraðir og skrifa ítarlega dóma um þær hefur hann öðru hvoru brugðið á það ráð að fara yfir nokkrar seríur á hundavaði. Hér er umfjöllun um fjórar slíkar.

Góð barnabók er gulli betri
Alþjóðlegur dagur barnabókarinnar er haldinn hátíðlegur árlega í kringum 2. apríl, sem er fæðingardagur ævintýraskáldsins Hans Christian Andersen. Að þessu sinni er hann haldinn hérlendis í dag, 13. apríl. Tilgangur dagsins er að minna á mikilvægi barnabóka.

Gísli Örn leikstýrir Frozen á öllum Norðurlöndunum
Söngleikurinn Frost byggður á Disney-myndinni Frozen verður settur á svið í Þjóðleikhúsinu næsta vetur. Gísli Örn Garðarsson er með réttinn að sýningunni á öllum Norðurlöndunum. Hann mun því ekki aðeins leikstýra uppfærslu söngleiksins hérlendis heldur einnig á hinum fjórum Norðurlöndunum.

Þrettán konur saka Depardieu um kynferðisofbeldi og áreitni
Þrettán konur hafa sakað franska leikarann Gerard Depardieu um kynferðisofbeldi og áreitni. Að minnsta kosti ein kvennanna var undir lögaldri þegar hún var áreitt á tökustað af leikaranum.

Fyrsta sýnishorn True Detective
Fyrsta sýnishorn þáttanna True Detective: Night Country sem voru teknir upp hér á landi var frumsýnd í dag. Fjöldi Íslendinga kom að gerð þáttanna sem verða frumsýndir seinna á árin. Þættirnir verða sýndir samtímis í Bandaríkjunum hjá HBO og á Íslandi á Stöð 2.

Laufey á meðal umsækjenda um starf skrifstofustjóra
Alls sóttu átján manns um embætti skrifstofustjóra skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára frá og með næstu mánaðarmótum.

Skúrinn hefur göngu sína á Vísi – fyrsti flytjandinn kynntur til sögunnar
Skúrinn hefur göngu sína á Vísi í dag en þar keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu auk þess sem þeir flytja einnig frumsamið lag.

Vigdís Hafliðadóttir frumflutti lag Barnamenningarhátíðar
Tónlistarkonan Vigdís Hafliðadóttir frumflutti lag Barnamenningarhátíðar árið 2023 í Engjaskóla klukkan 13 í dag. Lagið ber heitið Kæri heimur og verða nemendur skólans viðstaddir flutninginn.

Höfðar mál gegn meðlimi Backstreet Boys fyrir nauðgun
Nick Carter, einum meðlimi hljómsveitarinnar Backstreet Boys, hefur verið stefnt fyrir nauðgun. Söngkonan Melissa Schuman sakar hann um að hafa beitt sig ofbeldi fyrir tuttugu árum. Hún steig fyrst fram með ásökunina árið 2017. Þá neitaði Carter sök og gerir hann það enn samkvæmt lögmanni hans.

Ráðgjafi vanhæfur vegna fjárhagslegra hagsmuna og fyrrverandi forstöðumaður fær vonda umsögn
Menningamálaráðuneytið úrskurðaði kvikmyndaráðgjafa Kvikmyndamiðstöðvar vanhæfan vegna fjárhagslegra hagsmuna til að taka ákvörðun tengda umsókn um eftirvinnslustyrk kvikmyndar. Synjun umsóknarinnar var snúið við vegna þess að ekkert benti til þess að forstöðumaður sjóðsins hefði komið að ákvörðuninni og vegna skorts á rökstuðningi.

Gaf ókunnugri stúlku hundrað ára fiðlu fyrir námið
Halldór Guðmundsson leigubílstjóri gaf fyrir páska hinni fimmtán ára gömlu Arndísi Snorradóttur hundrað ára gamla fiðlu. Þau þekkjast ekki neitt en hún var að safna fé fyrir námskeiði hljóðfæranámi. Góðverkið hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum.

Berglind Festival, Logi Geirs og Steindi skemmtu sér á forsýningu Aftureldingar
Það var stemning í loftinu í Bíó Paradís nú á dögunum þegar þar fór fram forsýning á íslensku þáttaröðinni Aftureldingu. Stórskotalið íslenskra leikara kemur saman í þáttaröðinni undir leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Göggu Jónsdóttur og Elsu Maríu Jakobsdóttur.

Stranger Things stjarna trúlofuð syni Bon Jovi
Leikkonan Millie Bobby Brown og leikarinn Jake Bongiovi eru trúlofuð ef marka má nýja Instagram færslu Brown.

Al Jaffee er látinn
Verðlaunateiknarinn Al Jaffee sem teiknaði fyrir tímaritið Mad í 77 ár, er látinn 102 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að snúa hinni svokölluðu miðopnu (e. centerfold) á höfuð sér þegar hann fann upp á the Mad Fold-in þar sem lesendur áttu að brjóta baksíðu tímaritsins saman svo það kæmi falin mynd í ljós.

Heimalöguðu veitingarnar eina áhyggjuefni eiginmannsins
Grínistinn, skemmtikrafturinn og áhrifavaldurinn Eva Ruza Miljevic hélt fermingarveislu frumburða sinna nú fyrir skemmstu. Hún segir töluverðan mun á börnunum sem eru tvíburar hvað skipulagningu varðar. Sjálf er hún, að eigin sögn, hamfarakokkur en lagði þó til heimalagaðar veitingar í veisluna sem urðu eina áhyggjuefni eiginmannsins.

Kim Kardashian sýnir ógnvekjandi hliðar
Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian er óhrædd við að takast á við ný og jafnvel ógnvekjandi verkefni, ef marka má nýjustu færslu hennar á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar kom fram að Kim fari með hlutverk í væntanlegri seríu af hryllingsþáttunum American Horror Story.

Opinn fyrir því að eignast þrettánda barnið með Swift
Barnamaskínan og sjónvarpskynnirinn Nick Cannon segist vera opinn fyrir því að eignast sitt þrettánda barn og það með söngkonunni Taylor Swift. Hann segist telja þau verða mjög gott par skildu þau byrja saman.

Gítarleikari Mötley Crüe lögsækir félaga sína
Mick Mars, gítarleikari þungarokkssveitarinnar Mötley Crüe kærði félaga sína á fimmtudag, 6. apríl. Krefst hann þess að afhent verði öll gögn um fjárhag sveitarinnar. Sakar hann félaga sína um að leyna fjárhagslegum upplýsingum.

Eiga ekki pening fyrir öllu skólaárinu
Félag íslenskra listdansara hefur sett á fót undirskriftalista til að skora á Ásmund Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra að veita fjármunum til listdansnáms til samræmis við aðrar greinar. Greininni sé mismunað.

Lasse Wellander er látinn
Sænski tónlistarmaðurinn Lasse Wellander er látinn, 70 ára að aldri. Hann var meðal annars gítarleikari fyrir sænsku hljómsveitina ABBA.

Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi
Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

„Þetta var stórkostleg björgun“
Á jóladagsnótt árið 1986 sökk flutningaskipið Suðurland við dularfullar aðstæður á leið sinni til Murmansk. Veður var slæmt og kafbátar á vegum Rússa og Breta voru á ferð í nálægð við skipið. Skipið tók á sig mikið högg, sjór flæddi nær stjórnlaust inn, og það tók að sökkva hratt.

Herra Hnetusmjör og Frikki Dór aftur á toppnum
Tónlistarmennirnir Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór sitja á toppi Íslenska listans með lagið Vinn við það. Lagið hefur flakkað upp og niður listann á síðustu vikum.

Fimmtíu ár liðin frá andláti Pablo Picasso
Þess er minnst á Spáni í dag, og reyndar víðar, að hálf öld er liðin frá andláti Pablo Picasso, mesta listmálara Spánar á 20. öldinni. Verk hans seljast sem aldrei fyrr en þó hefur fallið á glansmyndina eftir að ofbeldisfull samskipti hans við konur komust í hámæli.

Hefur aldrei látið kvíðann stoppa sig
„Það sem hefur líka hjálpað mér er að ég er strangtrúaður,“ segir tónlistarmaðurinn Birgir Steinn Stefánsson í viðtali í Einkalífinu á Vísi og Stöð 2+.