

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

M*A*S*H-stjarnan Sally Kellerman er látin
Bandaríska leikkonan Sally Kellerman, sem þekktust er fyrir að hafa farið með hlutverk Margaret „Hot Lips“ O'Houlihan, í kvikmyndinni M*A*S*H, er látin. Hún varð 84 ára gömul.

Langelstur í leikhópnum: „Við eigum að lifa lífinu lifandi“
Söngleikurinn Langelstur að eilífu verður frumsýndur í Gaflaraleikhúsinu um helgina þar sem Siggi Sigurjóns og Iðunn Eldey Stefánsdóttir fara með hlutverk Rögnvalds og Eyju. Iðunn deilir hlutverki Eyju með Nínu Sólrúnu Tamimi en tvöfaldur leikhópur er fyrir öll barnahlutverkin.

„Vöndum okkur virkilega við valið á útgáfum“
Plötusnúðurinn Ali Demir stofnaði árið 2020 Distrakt Audio sem er „vinyl-only“ plötuútgáfufyrirtæki. Megináherslan er að para saman tónlistarmenn allstaðar að úr heiminum sem deila sömu ástríðu fyrir neðanjarðar, minimalískri hús tónlist. Efnið er svo gefið út á 12” vínyl plötu sniði.

Opin samskipti mikilvæg í öllum nánum samböndum
Á föstudag sendi hljómsveitin Supersport! frá sér glænýtt lag sem kallast taka samtalið. Lagið kemur út hjá reykvíska neðanjarðar-listasamlaginu og útgáfufélaginu Post-dreifingu.

Elísabet og Steinar Bragi tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Rithöfundarnir Elísabet Jökulsdóttir og Steinar Bragi eru í hópi þeirra fjórtán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Verðlaunin verða hafhent í Helsinki í Finnlandi 1. nóvember. Elísabet er tilnefnd fyrir Aprílsólarkulda og Steinar Bragi fyrir Truflunina.

Undirmeðvitundin ræður loka útlitinu
Sýning frönsku listakonunnar Claire Paugam, Anywhere but Here, var opnuð í Listasal Mosfellsbæjar 11. febrúar síðastliðinn. Næstkomandi laugardag, þann 26. febrúar, mun Claire verða með listamannaspjall á sýningunni klukkan 14:00-15:00. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Passenger væntanlegur til Íslands
Passenger kemur til landsins og heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu í sumar. Söngvarinn og lagahöfundurinn heitir Mike Rosenberg og hefur unnið til fjölda verðlauna og náð platínusölu víða um heim svo Íslendingar fagna eflaust komu hans.

Sigur Rós í upptökum í Abbey Road og tilkynnir fyrsta tónleikaferðalagið í fimm ár
Hljómsveitin Sigur Rós mun í vor og sumar fara á tónleikaferðalag. Munu þeir meðal annars koma fram í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Miðasalan hefst formlega á morgun.

Símon FKNHNDSM er plötusnúður mánaðarins
Dansþáttur þjóðarinnar, PartyZone, útnefnir plötusnúð mánaðarins í vetur og mun hann setja saman eitt eða fleiri „mixteip“ með danstónlist. Hann hefur frjálsar hendur og setur saman sett með tónlist sem hann er með í spilun þá stundina og einkennir hann eða hana tónlistarlega.

Afbyggir hugmyndir um fullkomnun í gegnum listina
Hildur Ása Henrýsdóttir opnaði einkasýninguna Marga hildi háð í Gallery Port á dögunum. Linda Toivio er sýningarstjóri og mun sýningin standa til þriðja mars næstkomandi.

Möguleikar ljóðsins eru endalausir
Stuttungur er nýstárlegri ljóðahátið sem haldin verður í annað skiptið á morgun, fimmtudag og fagnar framúrstefnulegri nálgun á tungumálið. Hátíðin leggur áherslu á að skapa framsækinn vettvang fyrir tilraunakennda ljóðastarfsemi af ýmsu tagi. Ásta Fanney Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri hátíðarinnar og bíður alla velkomna.

Frumsýnir enska útgáfu myndbands í Söngvakeppninni: „Við búum í raun öll á einu stóru hringlaga eldgosi“
Haffi Haff ákvað að fara alla leið í gleðinni sem fylgir Eurovision-keppninni og fór sjálfur í gerð myndbanda við bæði íslensku og ensku útgáfuna af laginu sem hann flytur í undankeppninni, Gía eða Volcano á ensku. Í dag frumsýnir Lífið á Vísi myndband við ensku útgáfu lagsins, Volcano. Það er þó nokkuð ólíkt íslensku útgáfunni sem frumsýnt var hér á Vísi fyrir tveimur vikum.

Leita til Ólafs Elíassonar um hönnun minnisvarða um Heimaeyjargosið
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita tvær milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til Vestmannaeyjabæjar vegna hugmyndavinnu fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey. Samningur hefur verið gerður við Stúdíó Ólafs Elíassonar um hugmyndavinnuna.

„Var búin að finna síðu sem seldi flottar hárkollur“
Dansparið og hjónin Hanna Rún og Nikita Bazev urðu á dögunum fyrst Íslendinga til að komast á heimsleikana í suður-amerískum dönsum, en leikarnir eru haldnir á fjögurra ára fresti.

Söngvari Procol Harum er fallinn frá
Breski söngvarinn Gary Brooker, forsprakki sveitarinnar Procol Harum, er látinn, 76 ára að aldri. Brooker var einn höfunda og söng vinsælasta lag sveitarinnar, A Whiter Shade of Pale, frá árinu 1967 sem fjölmargir tónlistarmanna hafa einnig tekið upp á sína arma.

Söngvarinn Mark Lanegan er látinn
Bandaríski söngvarinn Mark Lanegan, sem var forsprakki sveitarinnar Screaming Trees og var um tíma liðsmaður Queens of the Stone Age, er látinn, 57 ára að aldri.

Sannar sögur eftirlifenda skógareldanna í Ástralíu
Þáttaröðin Fires er komin inn á Stöð 2+.

Beint úr iðrum hins kvenlæga veruleika
Gjörningaklúbburinn stendur fyrir sýningunni Seiglu í NORR11 á Hverfisgötu. Sýningin mun standa til fyrsta mars næstkomandi og er unnin í samvinnu við Listval.

Ísland ekki í næsta hópi HBO Max
Fimmtán Evrópulönd fá aðgang að streymisveitunni HBO Max þann 8. mars næstkomandi en þeirra á meðal eru Pólland, Portúgal, Rúmenía og Holland.

Draumfarir gefa út lagð Kvíðinn
Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson skipa dúóið Draumfarir en kapparnir voru að senda frá sér lagið Kvíðinn.

Rak umboðsmanninn og réði pabba sinn
Söngkonan Dua Lipa hefur sagt skilið við umboðsmanninn sinn og réði pabba sinn Dukagjin í staðin en sjálfur var hann í rokkhljómsveit á sínum tíma. Hún er ekki að leita að öðrum umboðsmanni til þess að fylla í stöðuna eins og er svo feðginin munu starfa saman um óákveðin tíma. Áður voru það Ben Mawson og Ed Millet hjá TaP Management sem sáu um hennar mál.

Tónlistarborgin
Fyrsta stefnumótunin sem ég fór fyrir var að skrifa stefnu um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík til 2030, með góðu liðssinni bæði borgarfulltrúa og starfsfólks á skóla- og frístundasviði.

Elvis Presley fær mann til að kikna í hnjánum í kvikmyndahúsum
Stikla úr kvikmyndinni Elvis sem fjallar um líf og feril Elvis Presley er komin út og eru margir sem bíða spenntir eftir því að sjá myndina í heild sinni, enda á nógu að taka. Þeir Austin Butler og Tom Hanks eru í aðalhlutverkum.

Vilja að styttu af Leópold konungi verði breytt í minnisvarða um kongósk fórnarlömb
Nefnd á vegum borgarstjórnarinnar í Brussel hefur lagt það til að bronsstyttu af Leópold II, Belgakonungi, verði brædd og henni breytt í minnisvarða um milljónirnar sem fórust á valdatíma hans í belgísku Kongó.

Tónlistarfrumkvöðullinn Jamal Edwards látinn
Tónlistarfrumkvöðullinn Jamal Edwards er látinn aðeins 31 árs gamall. Tónlistarfyrirtæki hans SBTV kom mörgum stærstu stjörnum Bretlands á kortið.

„Ég er hrikalega ánægður með plötuna“
Mavelus er listamannsnafn tónlistarmannsins Ástþórs Þórhallssonar en hann var að senda frá sér stuttskífuna Moberg.

Brynja Hjálmsdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör
Brynja Hjálmsdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2022 fyrir ljóð sitt Þegar dagar aldrei dagar aldrei. Ljóðstafurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag en tuttugu ára afmæli hátíðarinnar er fagnað um þessar mundir.

Sýndu brellur sem íslenskt fyrirtæki gerði fyrir Witcher
Reykjavík Visual Effects (RVX) birtu á föstudaginn myndband sem sýnir þær tölvubrellur sem starfsmenn fyrirtækisins gerðu fyrir Netflix þættina Witcher. Þættirnir, bækur og tölvuleikir úr söguheimi Withcer njóta mikilla vinsælda um heim allan.

Njálssaga myndskreytt með 150 teikningum
Segja má að Brennu – Njálssaga hafi öðlast nýtt líf og „lifnað“ við með hundrað og fimmtíu teikningum af vettvangi atburða í sögunni. Myndirnar verða notaðar á skólavef aðallega ætluðum framhaldsskólum með styttri texta og útskýringum á tölvutæku formi og auðlesnari máli en í frumritinu

„Fyrirtækið var skírt þessum Bjarnhéðni til heiðurs“
Þeir unnu allan sólahringinn segir í gamalli blaðagrein um stofnendur Héðins hf. Fyrirtækis sem telst eitt af framúrskarandi fyrirtækjum landsins og hefur skapað þúsundir starfa á Íslandi í heila öld.