
Arnar Daði: Mér fannst við sjálfum okkur verstir
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var að vonum svekktur eftir þriggja marka tap á móti FH í Kaplakrika í dag. Lokatölur 25-22.
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var að vonum svekktur eftir þriggja marka tap á móti FH í Kaplakrika í dag. Lokatölur 25-22.
Sigurjón Guðmundsson, markvörður HK, stimplaði sig inn í Olís-deildina með látum í leiknum gegn KA í síðustu umferð. Hann varði sérstaklega vel úr hornunum.
Nýr liður hér á Vísi er þegar Seinni bylgjan hitar upp fyrir hverja einustu umferð í Olís deild karla í handbolta í allan vetur.
Í viðtali við Vísi eftir eins marks tap Gróttu fyrir Íslandsmeisturum Vals, 21-22, í 1. umferð Olís-deildar karla óskaði Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Seltirninga, eftir að dómarar myndu sýna honum meiri virðingu.
Haukar unnu tveggja marka sigur á Fram, 29-27, þegar liðin áttust við á Ásvöllum í 1. umferð Olís-deildar karla í kvöld.
Einar Jónsson stýrði Fram í fyrsta sinn í deildarleik í átta ár þegar liðið tapaði fyrir Haukum í kvöld, 29-27. Hann kvaðst nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna en var svekktur með tapið.
Sigurjón Guðmundsson stóð vaktina í marki HK þegar að liðið tók á móti KA í fyrstu umferð Olís-deildar karla síðasta fimmtudag. Sigurjón varði 18 bolta og sérfræðingar Seinni bylgjunnar veittu honum verðskuldaða athygli. Sigurjón er sonur Guðmundar Hrafnkelssonar, fyrrum landsliðsmarkmanns Íslands.
Stjarnan hafði betur gegn Aftureldingu í hreint ótrúlegum leik í 1.umferð Olís deildar karla í kvöld en lokatölur voru 35-36 en sigurmarkið kom úr vítakasti á loka sekúndunni.
Rúnar Kárason lék sinn fyrsta deildarleik fyrir íslenskt lið í rúm tólf ár þegar ÍBV vann Víking, 27-30, í 1. umferð Olís-deildarinnar í gær.
Íslandmeistarar Vals verða að spjara sig án eins af allra bestu mönnum Olís-deildar karla í handbolta næstu mánuðina. Róbert Aron Hostert er á leið í aðgerð á hægri öxl á mánudaginn.
Grótta tók á móti Íslandsmeisturum Vals í fyrstu umferð Olís deildar karla í handbolta. Það var hart barist og aðeins eitt mark sem skildi liðin að þegar flautað var til leiksloka. Lokatölur 22-21 fyrir Val.
„Mér líður nákvæmlega eins og mér leið alltof oft í fyrra. Ég sagði við strákana að ef frammistaðan yrði góð, þá yrði ég sáttur. Við þurfum að fara breyta þeirri hugsun miðað við spilamennsku okkar og hvernig við spiluðum í dag,“ sagði Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, eftir eins marks tap á móti Val í dag. Lokatölur 22-21.
ÍBV vann sigur á Víkingum í 1.umferð Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld en leikurinn fór fram í Víkinni. Lokatölur 30-27 eftir að Víkingar höfðu leitt lengst af í leiknum.
Sebastian Alexandersson, þjálfari HK, var nokkuð brattur þrátt fyrir tap fyrir KA, 25-28, í kvöld. Sigur KA-manna var öruggari en lokatölurnar gefa til kynna en HK-ingar skoruðu síðustu sex mörk leiksins.
KA sigraði HK, 25-28, í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Sigur KA-manna var nokkuð öruggur en þeir komust mest níu mörkum yfir. HK-ingar löguðu stöðuna undir lokin.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með þremur leikjum í dag, fimmtudaginn 16. september.
Íslandsmótið í handbolta er að hefjast í vikunni og í dag fór fram kynningarfundur fyrir bæði Olís deildirnar og Grill 66 deildirnar.
Seinni bylgjan hóf nýtt tímabil á mánudagskvöldið þar sem var upphitunarþáttur fyrir Olís deild karla í handbolta sem hefst annað kvöld.
Valur mun verja Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild karla í handbolta og Fram verður Íslandsmeistari í Olís deild kvenna ef marka má árlega spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna fyrir tímabilið.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum á morgun, fimmtudaginn 16. september.
Jóhann Gunnar Einarsson eyddi kvöldi 36 ára afmælisdags síns í myndveri Seinni bylgjunnar í gær en sérfræðingurinn fékk líka að launum veglega afmælisköku.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum fimmtudaginn 16. september.
Handboltatímabilið hefst formlega á Stöð 2 Sport í kvöld er Seinni bylgjan hitar upp fyrir tímabilið í Olís-deild karla.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum fimmtudaginn 16. september.
Tímabilið í Olís-deildunum er handan við hornið og Seinni bylgjan er orðin fullmönnuð fyrir veturinn.
Leonharð Þorgeir Harðarson, hornamaður FH, hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild FH út keppnistímabilið 2024.
Aðeins mánuði eftir að Björgvin Hólmgeirsson hætti í handbolta hefur hann tekið skóna fram á nýjan leik og mun spila með Stjörnunni í Olís-deild karla í vetur.
Valur eru Meistarar meistaranna eftir að hafa unnið Hauka í Meistarakeppni HSÍ á Hlíðarenda í kvöld. Um hörkuleik var að ræða enda Íslandsmeistarar og deildarmeistarar að mætast í fyrsta leik tímabilsins. Lokatölur 28-24.
Hinn 29 ára gamli Pétur Júníusson þurfti að taka sér þriggja ára hlé frá handboltaiðkun vegna þrálátra meiðsla en er mættur aftur í Olís deildina með nýliðum Víkings.
Valur spilar leiki sína gegn Porec í Króatíu í 1. umferð Evrópudeildarinnar í handbolta í næstu viku, að því gefnu að allir leikmenn liðsins fái neikvæða niðurstöðu út úr kórónuveiruprófi á morgun.