

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Myndlistaskólinn í Reykjavík býður fjölbreytt listnám á framhaldsskólastigi og nám á fjórða hæfnisstigi sem brúar bil milli framhaldsskóla- og háskólastigs. Einnig hefur skólinn í allmörg ár boðið einstaklingum með þroskaskerðingu eins árs diplómanám. Í listsköpun birtast oft hæfieikar einstaklinga sem hið hefðbundnda skólakerfi hefur ekki náð að draga fram.
Andrea Margrét Þorvaldsdóttir var á meðal þeirra sem útskrifuðust úr rafvirkjanámi við VMA síðastliðinn laugardag við hátíðlega athöfn. Hún skar sig úr nemendahópnum að því leyti að hún var orðin 47 ára gömul þegar hún hóf námið. Hún segir ADHD gefa henni ofurkrafta til að komast yfir allt sem hún þarf að gera.
Sex drengir eru í þann mund að klára 111 kílómetra göngu. Um er að ræða lokaverkefni þeirra í tíunda bekk Réttarholtsskóla, en tilgangurinn með göngunni er að styrkja börn á Gaza. Þeir hafa safnað um milljón króna til styrktar málefninu.
Soffía Sveinsdóttir er nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Soffíu í embætti skólameistara til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um ungmenni að kveikja eld í Hlíðahverfi í Reykjavík í dag. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að krakkarnir hefðu verið að kveikja í skólabókunum sínum.
Útskriftarferð nýstúdenta frá Verzlunarskóla Íslands hófst með þeim pirrandi hætti að ekið var á ítalska leiguflugvél þeirra á Keflavíkurflugvelli í morgunsárið. Vonandi reynist fall fararheill. Innan við tvö ár eru síðan ekið var á flugvél Verzlinga á ferðalagi.
Ragna María Sverrisdóttir dúxaði við Verzlunarskóla Íslands með tíu í meðaleinkunn en 330 nýstúdentar útskrifuðust frá skólanum um helgina. Nói Pétur Á. Guðnason var semídúx með 9,9 í meðaleinkunn. Nemendur Verzló héldu í útskriftarferð í dag sem gekk ekki áfallalaust fyrir sig.
Þann 11.maí síðastliðinn, hélt París Anna Bergmann, sextán ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri erindi á ráðstefnu félagi Ungra athafnakvenna, UAK.
Ég skellti mér í vöfflukaffi á laugardaginn hjá Miðflokknum. Að þessu sinn var Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands með ansi áhugaverða framsögu sem hann kallaði „Skólastarf á Ísland. Aukin gæði í allra þágu og raddir skólafólks í fyrirrúmi“.
Lestrarnám byrjar við fæðingu og jafnvel fyrr vilja sumir meina. Það að tala við, lesa, syngja og útskýra fyrir börnum er hluti af lestrarnámi þeirra.
Sex drengir, þeir Benjamín, Erik, Felix, Markús, Stefán og Óðinn lögðu af stað snemma í morgun í 111 kílómetra gönguferð til styrktar börnum á stríðshrjáðu Gasasvæðinu. Gangan mun taka þrjá daga.
Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja.
Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 22 ára. Skólinn er fyrir ungt fólk með brennandi áhuga á leikhúsi, til að kynna sér leikhús frá ólíkum hliðum og efla færni sína og þekkingu.
Fólki var heitt í hamsi á íbúafundi Reykjavíkurborgar og foreldra í Laugarnesskóla sem haldinn var í kvöld. Til umræðu var tillaga Reykjavíkurborgar um byggingu á nýjum skóla í Laugardal í stað viðbygginga við þá eldri er nú til umræðu á íbúafundi í Laugarnesskóla.
Skólastarfið í Flóaskóla í Flóahreppi var brotið upp á skemmtilegan hátt í dag því nemendur og starfsmenn komu ríðandi í skólann á hestum sínum.
Innritun leikskólabarna er vel á veg komin í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykjavík er búið að bjóða 1.715 börnum leikskólapláss. Meðalaldur við innritun er í kringum 22 mánuðir.
„Það er fyrirséð að um allan heim mun vanta fleira fólk í tæknigeirann í framtíðinni. Það er skortur á fólki nú þegar og fyrirséð að sá skortur er. Þannig að óháð öllu öðru, þá er það líka einfaldlega staðreynd að samfélögum vantar að fá fleiri konur til að velja tækni,“ segir Lena Dögg Dagbjartsdóttir, verkefnastjóri Vertonet.
Aðalstjórn Þróttar segir tillögu skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur um byggingu unglingaskóla í Laugardal hafa komið félaginu í opna skjöldu. Ein af þremur mögulegum staðsetningum slíks skóla er á íþróttasvæði Þróttar sem þeir rauðu og hvítu segja ekki koma til greina.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir það algert gáleysi að breyta málfræði tungumálsins án samtals. Hún ætlar að funda með RÚV um „nýlenskuna“ og notkun blaðamanna stofnunarinnar á henni. Sjálf sé hún ekki hrifin af þessari breytingu á tungumálinu.
Nám í félagsráðgjöf er fimm ára háskólanám sem skiptist í þriggja ára BA nám og tveggja ára MA nám. BA námið byggir á fjölbreyttum námskeiðum meðal annars um áföll og þroska, fjölskyldur, fátækt, ofbeldi, úrræði velferðarkerfsins, fjölmenningu, fötlun, samfélagið, stjórnkerfi og löggjöf um velferðar- og fjölskyldumál.
Nú er hægt að fá bókina um Karíus og Baktus á hebresku lánaða á bókasafninu á Selfossi og þar eru líka bókin um Litla prinsinn á arabísku lánuð út. Bókasafnið á nú nánast bækur á öllum þeim tungumálum, sem töluð er í grunn- og leikskólum Árborgar en þau eru fjörutíu talsins.
Það iðar allt af lífi og fjöri á Akranesi þessa dagana þegar diskó er annars vegar því nemendur Brekkubæjarskóla eru að sýna söngleikinn „Diskóeyjan“ í Bíóhöllinni.
Inga Fjóla Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri Kóraskóla hefur verið ráðin skólastjóri Kóraskóla. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Kópavogs frá því í gær en mikil ólga hefur verið meðal kennara í skólanum vegna ráðningu skólastjóra.
MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fer fram í dag þar sem starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg gefst tækifæri til að taka þátt og eiga samtal um menntun barna og þróun til framtíðar.
Nú þegar fyrstu úthlutun leikskólaplássa er lokið í Reykjavík lítur út fyrir að um 800 börn verði á biðlista þann 1. september. Af þeim eru 548 þeirra 12 til 17 mánaða og 255 18 mánaða og eldri. Inn í þessum tölum eru 40 börn sem bíða en eru með pláss á sjálfstætt starfandi leikskóla.
Ferðamál, ferðamennska og ferðamálafræði hefur verið ástríða mín lengi, og ég trúi því að nám í ferðamálafræði sé lykillinn að því að skilja ferðaþjónustuna og ferðamennsku og hvernig hún getur haft jákvæð áhrif á samfélagið okkar. Ferðamálafræði býður upp á einstakt tækifæri til að kafa djúpt í þessa spennandi og þverfaglegu námsgrein.
Fulltrúi meirihlutans í skóla- og frístundaráði borgarinnar segist vel skilja uppnám foreldra og skólasamfélags vegna stefnubreytingar í grunnskólamálum í Laugardal. Forsendur hafi þó breyst og bygging nýs unglingaskóla sé besti kosturinn í stöðunni.
Foreldrar barna í Vatnsendaskóla í Kópavogi hafa verið beðnir um að senda flugnanet með börnunum sínum í skólann. Ástæðan er mikill flugnafaraldur sem nú geysar í Vatnsendahverfinu.
Reykjavíkurborg hyggst ganga á bak eigin loforða um að framtíðaruppbygging skólastarfs í Laugardal verði á grundvelli farsælu skólanna okkar og óbreyttum hverfisbrag. Þegar borgaryfirvöld ákváðu á haustmánuðum 2022 að ganga í takt með íbúum hverfisins fögnuðu fulltrúar meirihlutans eftir „þverpólitískt samráð við hagaðila, stjórnendur, starfsmenn, foreldra og börn“.
Björn Kristjánsson, foreldri og kennari í Laugarlækjarskóla, segir ákvörðun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar að stefna að byggingu nýs unglingaskóla í Laugardalnum kalda vatnsgusu framan í skólasamfélagið.